Morgunblaðið - 11.06.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2021
Best Sabinal Hotel 4*
Roquetas de Mar
ALMERÍA
06. - 16. júlí
Flug og gisting með hálfu fæði í 10 daga.
Sundlaugagarður og krakkaklúbbur!
www.sumarferdir.is | info@sumarferdir.is | 514 1400
verð frá 139.900kr.
á mann miðað við 2 fullorðna og 2 börn
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Hólmfríður María Ragnhildardóttir
hmr@mbl.is
Það rættist úr þátttöku í bólusetn-
ingum þegar leið á gærdaginn en
morgunninn leit ekki vel út að sögn
Óskars Reykdalssonar, forstjóra
Heilsugæslunnar á höfuðborgar-
svæðinu. Bólusetningar byrjuðu í
gærmorgun upp úr klukkan níu en
fyrir hádegi var tekin ákvörðun um
að kalla inn þrjá fleiri árganga sök-
um þess hve fáir mættu en einungis
helmingur þeirra sem fengu boð
fyrripart dags kom í sprautu.
Sóttu meira bóluefni
Þegar líða tók á daginn fór að bæt-
ast í hópinn og myndaðist aftur mikil
örtröð líkt og gerðist á þriðjudag.
Þegar mest lét náði biðröðin lang-
leiðina að Glæsibæ og þurftu ein-
hverjir að bíða í yfir tvo klukkutíma
eftir sprautu. Endaði það með að
meira bóluefni var sótt til Distica svo
fleiri voru bólusettir heldur en áætl-
að var í upphafi dags.
Óskar segir fólk upp til hópa hafa
verið þolinmótt og ætti ekki að líta
neikvæðum augum á góða mætingu
enda flestir ánægðir með að fá boð í
bólusetningu. Hann segir erfitt að
meta hvers vegna þátttaka um
morguninn hafi verið dræm enda um
unga og fríska einstaklinga að ræða
sem ekki væru í áhættuhópi. Telur
hann þá líklegt að margir hafi verið
uppteknir í vinnu eða mögulega ekki
á höfuðborgarsvæðinu þegar þeir
fengu boðið. Bendir hann þó á að
hálfhlægilegt sé að þegar fréttist af
biðröð í bólusetningu séu fleiri sem
drífa sig til að mæta, sem orsakar
þessar löngu biðraðir.
Upp úr fimm voru allar raðir
horfnar og þurfti enn og aftur að
kalla fleiri inn í bólusetningu. Fyrir
klukkan sex voru þó allir skammt-
arnir búnir.
Örtröð annan daginn í röð
- Fólk duglegra
að mæta þegar
fréttist af biðröð
Ljósmynd/Ari Páll Karlsson
Biðröð Þegar röðin var sem lengst náði hún frá Laugardalshöll og langleið-
ina að Glæsibæ. Bólusett var í gær með bóluefni Janssen gegn veirunni.
Ný skimunarstöð Öryggis-
miðstöðvarinnar fyrir Covid-19
hefur verið opnuð í Reykja-
nesbæ. Er hún einkum ætluð er-
lendum ferðamönnum. Geta
einstaklingar farið í skyndipróf
sem skilar niðurstöðum á 15
mínútum, samkvæmt frétta-
tilkynningu.
15 mínútna
skyndipróf
NÝ SKIMUNARSTÖÐ
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Sýnileg virkni í gígnum í Geldinga-
dölum breyttist snemma í gærmorg-
un. Þá dró úr reglulegum goshrinum
þegar hraunið gusaðist upp með
hléum. Þess í stað kom sístreymi.
Hrinurnar héldu þó áfram þannig að
stundum bætti í flæðið og svo dró úr
því en stöðugt streymdi hraun yfir
gígbrúnina. Þetta hélt áfram fram
eftir degi eins og sjá mátti t.d. á vef-
myndavél mbl.is.
Þorvaldur Þórðarson, prófessor í
eldfjallafræði við HÍ, sagði að sér
virtist að geymirinn sem myndaðist
undir gígopinu hefði fyllst af kviku.
Mikið hrun varð í gígbarminum kl.
04.10 í fyrrinótt og við það hækkaði
yfirborð hraunsins í gígnum. Þetta
virðist einnig hafa dregið úr afgösun
kvikunnar, a.m.k. tímabundið.
Hraunrásir undir yfirborðinu
flytja hraun frá gígnum. Þorvaldur
sagði að þær gætu þess vegna verið
tvær og önnur ofan á hinni. Svo
kvíslast flutningsleiðirnar í hinar
ýmsu áttir. Hraun streymir enn inn í
Geldingadali, niður í Meradali, í
Syðri-Meradal og niður í Nátthaga.
„Virknin sem við horfum á í gígn-
um hefur afskaplega lítil áhrif á
hraunrennslið. Það virðist vera ein-
hvers konar yfirflæði. Það er önnur
rás þarna undir sem viðheldur
hraunrennslinu,“ sagði Þorvaldur.
„Það er ekkert lát á þessu. Mest af
hrauninu rennur undir skorpunni og
sést ekki. Gosið er að einangra flutn-
ingsleiðarnar til að geta farið lengra.
Það hefur verið fullur gangur í
hrauninu, þótt það róist af og til.
Þetta virðist ekkert vera að hætta.“
Þorvaldur segir að einangrun
flutningsleiða hraunsins auki líkur á
að það þróist yfir í alvöru dyngjugos.
Hugsanlega sé þetta að sýna okkur
hvernig dyngjur byrja að myndast.
Menn hafa aldrei orðið vitni að
dyngjugosi og því verður fróðlegt að
fylgjast með framhaldinu.
Þorvaldur segir að mikil líkindi
séu með Þríhnúkagíg og geyminum
undir gosopinu í Geldingadölum.
Líklega er hann þó stærri í Geld-
ingadölum. Í veggjum Þríhnúkagígs
sjást margar hraunrásir og í kring-
um hann sjást merki um eins hraun-
polla og nú eru í kringum gíginn í
Geldingadölum. „Þetta er alveg
ótrúlega líkt,“ sagði Þorvaldur.
Skjáskot/mbl.is
Geldingadalir Mikið hrun varð úr gígbrúninni í fyrrinótt og niður í gíginn.
Við það breyttist takturinn í eldgosinu og var sístreymi hrauns í gær.
Takturinn í eldgos-
inu breyttist í gær
- Stór stykki féllu niður í gíginn
Landlæknir, sóttvarnalæknir og
Lyfjastofnun hafa móttekið mat
óháðra rannsóknaraðila sem tóku til
sérstakrar rannsóknar fimm andlát
sem urðu í kjölfar bólusetningar hér
á landi. Sem fyrr bendir ekkert til
þess að orsakasamhengi sé á milli
dauðsfallanna og bólusetninga.
Þetta kemur fram í skriflegu svari
landlæknis við fyrirspurn mbl.is,
sem birtist í gær. Auk andlátanna
voru einnig til skoðunar fimm tilfelli
mögulega alvarlegra aukaverkana
við bólusetningu, nánar tiltekið fimm
tilfelli blóðtappamyndunar.
Þrjú af fjórum bólu-
efnum skoðuð
Rannsóknin sneri að tilfellum sem
komu upp eftir að einstaklingar voru
bólusettir með bóluefnum Astra-
Zeneca, Pfizer og Moderna. Það eru
þrjú þeirra fjögurra bóluefna sem
eru í notkun hérlendis gegn kórónu-
veirunni, einungis bóluefni Janssen
er undanskilið.
Landlæknir svaraði ekki hvaða
óháðu sérfræðingar voru fengnir að
borðinu í rannsókninni, en í staðinn
var sagt að ekki væri fátítt innan
heilbrigðiskerfisins, þegar alvarleg
álitamál væru til sérstakrar skoðun-
ar, að óháðir aðilar væru fengnir að
borðinu.
Þá sagði einnig í svari landlæknis
að vonast væri til að niðurstöður
óháðu sérfræðinganna yrðu kynntar
innan skamms, nú þegar þær hefðu
borist embættinu. oddurth@mbl.is
Engar vísbendingar
um orsakasamhengi
- Niðurstöður rannsóknar á fimm andlátum kynntar bráðum
Margt var um manninn í Hádegismóum í gærkvöldi, en
þar stóðu Nike á Íslandi og Wodbúð fyrir 12 kílómetra
löngu utanvegahlaupi.
Leiðin hentaði hlaupurum af öllum getustigum og
biðu þeirra tónleikar og skemmtun við endamarkið og
var Jón Jónsson á meðal þeirra sem héldu uppi stuðinu.
Morgunblaðið/Eggert
Fjölmenni tók þátt í utanvegahlaupinu