Morgunblaðið - 11.06.2021, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2021
Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is
Verbena
hinn fullkomni
sumarilmur
BGS vill hærra skilagjald
„Við höfum lengi talið að þetta
gjald þurfi að hækka, helst umtals-
vert mikið, til að það sé raunveruleg-
ur hvati til að farga gömlum bílum,“
sagði Jóhannes Jóhannesson, stað-
gengill framkvæmdastjóra Bíl-
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Meirihluti umhverfis- og samgöngu-
nefndar Alþingis leggur til að skila-
gjald af bílum verði hækkað í 30.000
krónur, en það hefur verið 20.000
krónur í um sex ár. Þetta kemur
fram í breytingatillögu við frumvarp
umhverfis- og auðlindaráðherra um
breytingu á lögum um hollustuhætti
og mengunarvarnir, lögum um með-
höndlun úrgangs og lögum um úr-
vinnslugjald.
Í nefndaráliti meirihlutans segir
að með því að hækka gjaldið skapist
hvati til að úr sér gengnum ökutækj-
um sé skilað á móttökustöðvar. Sam-
band íslenskra sveitarfélaga segi í
umsögn að sveitarfélög á höfuðborg-
arsvæðinu þurfi að borga a.m.k.
30.000 kr. fyrir að fjarlægja ökutæki
af víðavangi. Samkvæmt gjaldskrá
Vöku kosti allt að 25.000 kr. að fjar-
lægja ökutæki. Þá er geymslukostn-
aður ekki tekinn með.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
(HER) lagði til í umsögn sinni um
frumvarpið að skilagjald af bílum
yrði hækkað umtalsvert. HER bend-
ir á að í frumvarpinu sé lagt til að
gjaldið verði óbreytt, 20.000 krónur.
HER efast um að þessi upphæð sé
næg hvatning til eigenda að skila inn
ökutækjum.
greinasambandsins (BGS). Hann
segir að í umferð séu gamlir bílar
sem menga miklu meira en við vilj-
um. Auk þess mundi það auka öryggi
í umferðinni að farga úr sér gengn-
um bílum.
„Ég held að 20.000 krónur dugi
varla fyrir því að láta flytja bíl til að
farga honum,“ sagði Jóhannes.
Jóhannes kvaðst telja að hækka
þyrfti skilagjaldið í 80-100 þúsund
kr. til að það verði hvati til að koma
gömlum bílum úr umferð. Annars
liggi þeir bara númerslausir í reiði-
leysi og valdi sjónmengun og annarri
mengun. Engin ástæða sé til þess.
1.000 númerslausir árið 2020
Í umsögn HER kemur fram að á
árinu 2020 hafði það afskipti af 1.000
númerslausum ökutækjum á borgar-
landi. Stóran hluta þeirra þurfti að
fjarlægja af borgarlandi og taka í
vörslu þar sem eigendur sinntu því
ekki að fjarlægja bílana þrátt fyrir
viðvörun og frest til að gera svo.
„Ljóst er að 20.000 kr. hafa ekki
verið nægur hvati til þess að eigend-
ur þeirra hafi talið ástæðu til að
sækjast eftir þeirri fjárhæð. Af þess-
um 1.000 ökutækjum lenti kostnaður
við að fjarlægja og farga um 190 öku-
tækjum á Reykjavíkurborg þar sem
eigendur ýmist fundust ekki eða
urðu ekki við áskorun um að leysa
ökutækið út og greiða tilfallinn
kostnað.“
HER telur að það geti varla talist
sanngjarnt að sveitarfélagið beri all-
an kostnað af þessu. Eðlilegt sé að
Reykjavíkurborg og HER eigi þess
kost að fá skilagjaldið til að mæta út-
lögðum kostnaði við förgunina.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Förgun Greiddar eru 20.000 krónur í skilagjald þegar bílum er fargað. Lagt
er til að gjaldið verði hækkað í 30.000 krónur. Mynd úr myndasafni.
Skilagjald af bílum verði hækkað
- Skilagjaldið hefur verið 20.000 kr. í meira en sex ár - Ekki nægur hvati til að
farga gömlum bílum - Meirihluti þingnefndar og fleiri leggja til hækkun gjaldsins
Einhverjum landsmönnum hafa
undanfarið borist falskir tölvupóstar
sem sendir voru út í nafni Leiðrétt-
ingarinnar og sagðir vera á hennar
vegum. Þetta kemur fram í frétt frá
Skattinum. Vakin er athygli á því að
netfangið sem pósturinn er sendur
frá er ekki á vegum Skattsins.
„Í þetta skipti hafa svikahrappar
tekið staðlaðan texta sem sendur er
frá Skattinum þegar séreignar-
sparnaði er ráðstafað inn á lán og
sett falska slóð á bak við hlekkinn
sem vísar ekki á leiðrétting.is, eins
og hann ber með sér, heldur inn á
aðra vefsíðu. Sú vefsíða kann að
innihalda óværu,“ segir í fréttinni.
Fólk er beðið að fara varlega og
smella ekki á hlekki í tölvupóstinum
sé minnsti grunur um að eitthvað
geti verið að. Eins á fólk alls ekki að
gefa upp kortanúmer eða aðrar fjár-
hagslegar upplýsingar nema um
trausta vefsíðu sé að ræða.
gudni@mbl.is
Svikapóstar í
nafni Leiðrétt-
ingarinnar
Meirihluti heilbrigðisnefndar leggur
til þá breytingu við þingsályktunar-
tillögu um aðgengi að vörum sem
innihalda CBD og um að heilbrigðis-
ráðherra láti kanna regluverk um
málið, að breytingar sem ráðherra
leggi til „heimili íslenskum framleið-
endum að framleiða vörur úr CBD“.
CBD er annað tveggja helstu
virku efnanna í kannabisplöntum en
það er ekki vímugjafi. Í upphaflegri
þingsályktunartillögu sem 15 þing-
menn standa að er því beint til ráð-
herra að láta fara fram könnun á því
regluverki sem gildir um sölu og
markaðssetningu á vörum sem inni-
halda CBD og í kjölfarið leggi hann
til þær breytingar sem eru nauðsyn-
legar til að auka aðgengi að vörum
sem innihalda CBD.
Tveir þingmenn með fyrirvara
Þingmennirnir Halldóra Mogen-
sen, Helga Vala Helgadóttir og Vil-
hjálmur Árnason standa að breyt-
ingartillögunni auk Höllu Signýjar
Kristjánsdóttur og Ólafs Þórs Gunn-
arssonar sem rita undir með fyrir-
vara. Þá lýsir Hanna Katrín Frið-
riksson sem er áheyrnarfulltrúi í
nefndinni sig samþykka áliti meiri-
hlutans.
Í nefndaráliti er m.a. vísað til ný-
legra dóma Evrópudómstólsins um
að ekki sé hægt að skilgreina CBD
sem ávana- og fíkniefni og segja
megi að „tilraunir til að koma í veg
fyrir markaðssetningu slíkra efna
hér á landi, í það minnsta þegar um
væri að ræða sölu yfir landamæri,
gætu falið í sér brot gagnvart
ákvæðum EES-samningsins um
frjálsa vöruflutninga“.
Megi fram-
leiða vörur
úr CBD
- Vísað til dóma
Evrópudómstólsins
CBD Er unnið úr kannabisplöntu.