Morgunblaðið - 11.06.2021, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 11.06.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2021 Jón Magnússon hæstarétt-arlögmaður skrifar að það hafi „komið á óvart að undan- förnu, hvað sá hópur, sem vill gera flest til að afsala þjóðinni ákvörðunarvaldi í eigin málum, ganga í Evrópu- sambandið, skipta um þjóð í landinu og tryggja útlend- ingum fullan að- gang að kaupum lands, fasteigna og annarra landgæða fer hart fram gegn þeim, sem krefjast þess, að allt vald sé í höndum þjóðkjörinna fulltrúa Ís- lendinga sjálfra og gjalda varhug við áformum um að afsala eða deila fullveldi þjóðarinnar meir en gert hefur verið, en krefjast þess í stað að Íslendingar sjálfir og Alþingi hafi fullt vald á eigin málum sér í lagi setningu ís- lenskra laga.“ - - - Tilefni þessara skrifa Jóns erundarleg atlaga Fréttablaðs- ins, og raunar ítrekuð, að einum frambjóðanda í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins sem nú stendur yfir í Suðvesturkjördæmi, Arnari Þór Jónssyni. - - - Jón bendir á að frambjóðand-inn „hefur vakið athygli á því, að fullveldi Íslands hefur verið skert og lagasetningar- valdið hefur að hluta verið flutt til Brussel. Hann hefur krafist þess, að við höfum sjálf með eig- in löggjöf að gera.“ - - - Það er umhugsunarvert aðáköfustu stuðningsmenn inn- göngu Íslands í Evrópusam- bandið og málgagn þeirra skuli hafa slíkar áhyggjur af því að Arnar Þór nái góðum árangri í prófkjörinu. Og það er í það minnsta óvenjulegt að fjölmiðill skuli beita sér á þennan hátt gegn nýliða í prófkjöri. Arnar Þór Jónsson Undarleg atlaga STAKSTEINAR Þrír rússneskir togarar komu til hafnar í Hafnarfirði í gærmorgun og fór fram ein stærsta „löndun“ sem hefur átt sér stað hér á landi þegar um 1.500 tonn af karfa voru flutt yfir í flutningaskipið Gogland Reefer. Fjöldi erlendra skipa sást í Hafnarfrði í gær og voru meðal þeirra rússnesku togararnir þrír; Aleksey Anichkin, Karacharovo og Ni- venskoye. Þá mátti einni sjá danska togarann Ocean Tiger og hinn grænlenska Polar Am- aroq sem var í slipp. Rússar landa í Hafnarfirði Morgunblaðið/Árni Sæberg Hafnarstarfsemi Mikið var um að vera í Hafnarfirði í gær og fjöldi erlendra skipa að koma og fara. Fjölmenni samfagnaði hjónunum Pétri Péturssyni og Sigríði Sigurð- ardóttur á veitingastaðnum Barion í Mosfellsbæ í fyrrakvöld þegar þau héldu „útgáfuteiti“ vegna rjóma- líkjörsins Jöklu sem þau settu ný- lega á markað. Þau hjónin sögðu frá langri þróunarsögu drykkjarins og þökkuðu fyrir veitta aðstoð. Jökla er gerð úr íslenskum rjóma og brátt verður alkóhólið einnig bruggað úr íslenskri mjólk þannig að þetta verður íslenskur drykkur. Jökla hefur fengið góðar við- tökur. Það sást meðal annars á fjölda vinsamlegra ummæla og mynda sem Pétur tók saman og sýndi á tjaldi í teitinu á Barion. Sömuleiðis hafa viðtökurnar ver- ið góðar í Vínbúðum ÁTVR. Jökla er nú fáanleg í níu búðum og renn- ur út. Pétur segist fá fyrirspurnir frá fólki sem vilji geta keypt drykk- inn í áfengisverslun í sinni heima- byggð en segir að ÁTVR hafi regl- ur um reynslutíma og gildi sömu reglur um allar þannig vörur. helgi@mbl.is Fjölmenni í útgáfuteiti rjómalíkjörsins Jöklu Morgunblaðið/Eggert Útgáfuhóf Rjómalíkjörnum var vel tekið af gestum Barion í gær. Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is HARLEQUIN spegill 63x93 cm – 14.990,- TWISTED glas 25 cl – 2.490,- stk. TWISTED ROUND karafla 1,5 l – 14.990,- MEADOW SWIRL vasi 20 cm – 7.190 kr ÚTSKRIFTAGJAFIR FLOWVASI – verð frá 2.690,- SKY kertastjaki – 9.990,- THE SHADOW kertastjaki – 8.190,- SCARLETT vasi 25 cm – 7.190,- Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.