Morgunblaðið - 11.06.2021, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 11.06.2021, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2021 vera þekkt sem „Íslandsmeistari í þjónustu og gæðum“. Mikilvægt að versla við íslenska verslun Skúli telur að faraldurinn hafi gert fólk meðvit- aðra um hve mikilvægt það sé að versla við íslensk fyrirtæki. „Þótt það sé dálítið dýrara að kaupa vörur á Ís- landi verður fólk að hugsa um heildarmyndina. Þá er fyrirtækið að skila virðisaukaskattinum, tekju- skattinum, laununum og fleiri gjöldum hingað sem erlendu fyrirtækin gera ekki,“ segir hann og legg- ur áherslu á að ef íslensk verslun dafnar sé það öllum til góðs. Skúli segir að framleiðsluörðugleikar í heim- inum hafi einkennt faraldurinn. Það hafi leitt til skorts á vörum í útivistageiranum og sérstaklega í hjólageiranum, þar sem íhlutaframleiðendur hafi dregist aftur úr þar sem eftirspurn hefur aukist til muna. Aðspurður segist Skúli ekki hafa tekið eftir verðhækkunum en segir mun erfiðara að fá hjólin til landsins. Skeifan hjólamiðstöð Reykjavíkur? „Ég myndi telja mikinn hag fyrir neytandann að hafa þetta allt á sama blettinum, og auðvitað erum við í samkeppni sama hvar búðin er staðsett. Skeifan er orðin hjólamiðstöð fyrir Reykjavík og fólk sem er að leita sér af reiðhjóli. Það á mjög auðvelt með að ganga hérna á milli verslana og bera saman verð og gæði. Ef það er ekki þjónusta við neytendur þá veit ég ekki hvað.“ Sala Sportís stórjókst eftir meiri aðsókn í útivist Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hjól Skúli Jóhann Björnsson segir að viðtökurnar við nýju búðinni hafi verið framar öllum vonum. - Vill að búðin verði þekkt sem „Íslandsmeistari í þjónustu og gæðum“ BAKSVIÐ Logi Sigurðarson logis@mbl.is Útivistarverslunin Sportís opnaði á dögunum nýja verslun í Skeifunni. Skúli Jóhann Björnsson, eig- andi Sportís, er hæstánægður með viðtökurnar. Verslunin flutti úr Mörkinni í Skeifuna í mun stærra húsnæði og hefur í kjölfarið opnað nýja hjóladeild. Skokka út í vonda veðrið „Viðtökurnar hafa verið framar öllum vonum. Það er búin að vera stöðug traffík síðan við opn- uðum 29. maí. Við bættum nýrri deild við Sportís sem ekki var til áður sem er reiðhjólin. Við erum með Giant- og Leaf-hjólin en einnig tengdar vörur, bæði fatnað, fylgihluti og varahluti fyrir hjól. Síðan verðum við með snjóbretti í þessari deild,“ segir Skúli og bætir við að það hafi löngu verið orðið tímabært að flytja starfsemina í stærra húsnæði. Salan jókst mjög í faraldrinum þar sem útivist varð vinsælli en áður vegna fjöldatakmarkana og lokana á líkamsræktarstöðvum. Hann vonar að í faraldrinum hafi fólk áttað sig á hvað það býr í fal- legu landi og haldi áfram að stunda útivist af kappi. „Ég held að þetta hafi bara verið hug- ljómun fyrir marga hversu gott það er í raun og veru að reima á sig hlaupaskóna og skokka út í góða veðrið, jafnvel vonda veðrið!“ segir Skúli og hlær. Netverslun gott tól fyrir fyrirtæki Sportís er líka með öfluga heildsölu sem hingað til hefur verið kjarnastarfsemi fyrirtækisins, en nú hefur verið mikil aukning á smásölu og sölu í net- versluninni þeirra. Skúli segir að þótt það hafi verið mikill gangur í sölu í netversluninni þá hafi aukningin verið meiri í versluninni. „Maður sér það bara núna að góð netsíða hefur mjög mikið að segja fyrir heimsóknir í búðina. Flestallar heim- sóknir byrja á netinu og síðan kemur fólk að skoða vöruna. Netið er því alveg frábært tól fyrir fyrirtæki,“ segir Skúli og bætir við að Sportís vilji 11. júní 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 120.47 Sterlingspund 170.71 Kanadadalur 99.75 Dönsk króna 19.754 Norsk króna 14.614 Sænsk króna 14.603 Svissn. franki 134.61 Japanskt jen 1.1014 SDR 173.96 Evra 146.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 178.9375 Hrávöruverð Gull 1890.45 ($/únsa) Ál 2439.0 ($/tonn) LME Hráolía 72.17 ($/fatið) Brent « Gengi krónu hef- ur styrkst um ríf- lega 5% það sem af er ári. Seðlabankinn hefur hætt gjald- eyrissölu á markaði og verða frekari af- skipti hans af gjaldeyrismarkaði líklega fremur sem kaupandi á næstunni. Þetta kemur fram í Korni greiningardeildar Íslandsbanka sem birt er á vef bankans. Þar segir einnig að ekki sé víst að frekari styrking krónu fylgi auknum ferðamannastraumi allra næstu mánuði en horfur séu þó á sterkari krónu þegar fram í sækir. „Gengi krónu hefur verið í fremur jöfn- um og þéttum styrkingarfasa frá því í nóvember síðastliðnum. Það sem af er ári hefur krónan styrkst um ríflega 5% sé miðað við viðskiptavegna gengis- vísitölu en um rúm 6% gagnvart evru.“ Í Korninu kemur fram að gengi krónu sé u.þ.b. 5% veikara gagnvart evru og 7% gagnvart bresku pundi en það var að jafnaði í janúarmánuði árið 2020, síð- asta mánuðinum áður en áhrifa Covid-19 tók að gæta á gjaldeyrismarkaði. „Veik- ing krónu gagnvart Bandaríkjadollar í kjölfar faraldursins er hins vegar alfarið gengin til baka og er krónan nú nærri 3% sterkari gagnvart dollaranum en hún var í janúarmánuði 2020.“ Krónan hefur styrkst um ríflega 5% Gengi Krónan ver- ið í styrkingarfasa. STUTT Sjö sprotafyrirtæki munu kynna verkefni sín á fjárfestadegi við- skiptahraðalsins Hringiðu í dag í Grósku. Í tilkynningu frá Icelandic Star- tups, sem keyrt hefur hraðalinn síð- ustu tíu vikur, kemur fram að þetta sé í fyrsta sinn sem hraðallinn keyr- ir. „Markmið Hringiðu er að hér rísi stór og stöndug fyrirtæki sem byggja á hugmyndafræði hringrás- arhagkerfisins,“ segir í tilkynning- unni en bakhjarlar Hringiðu eru hópur fyrirtækja og stofnana sem sjálf vinna innan hringrásarhagkerf- isins. Samkvæmt tilkynningunni eru verkefnin sem kynnt verða á föstu- daginn fjölbreytt en gestir fá m.a. að kynnast alsjálfvirkum gróðurhúsum, endurunnu plasti, hampi í stað frauð- plasts og lífrænum áburði framleidd- um af innfluttum ánamöðkum. Í tilkynningunni segir að öll verk- efnin dragi úr losun gróðurhúsaloft- tegunda, nýti affall og dragi úr nei- kvæðum umhverfisáhrifum. Þannig geti lausnirnar stuðlað að því að Ís- land standi við skuldbindingar sínar í umhverfismálum. Sækja í styrktarsjóði Í samstarfi við EVRIS á Íslandi og Inspiralia á Spáni stefna flest þessara fyrirtækja á að sækja áfram í styrktarsjóði á vegum Evrópusam- bandsins og mun Hringiðusjóðurinn styðja þau áfram í því, samkvæmt tilkynningunni. Bakhjarlar Hringiðu eru OR, at- vinnuvega- og nýsköpunarráðuneyt- ið, Reykjavíkurborg, Faxaflóahafn- ir, Terra, Sorpa og Þróunarfélögin á Grundartanga og Breið. Nýtt Sara Jónsdóttir og María Kristín Jónsdóttir eru stofnendur fyrirtækisins On to something. Sjö sprotafyrirtæki kynna verkefni sín - Áburður framleiddur af ánamöðkum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.