Morgunblaðið - 11.06.2021, Side 24

Morgunblaðið - 11.06.2021, Side 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2021 Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranesi | Sími 511 2022 | dyrabaer.is Úrval náttúrulegra bætiefna og fóðurs fyrir hunda og ketti. Nánar á dyrabaer.is HOLLUSTA OG HEILBRIGÐI FRÁ 40 ÁRA Hrund fæddist 11. júní 1981 á Landspítalanum og ólst upp í Reykjavík og í þrjú ár í Kaupmannahöfn. Hún er stjórn- málafræðingur, með meistara- gráðu í blaða- og fréttamennsku og hefur að mestu unnið á fjöl- miðlum frá árinu 2005. Hún rit- stýrði m.a. tímaritinu Mannlífi og var fréttastjóri Stöðvar 2 og Bylgjunnar. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á bókum, hef vandræðalega gaman af því að sniglast um á bókasöfnum og skrifaði barna- og unglingabókina Loforðið, sem hlaut Íslensku barnabókaverð- launin árið 2007. Í vetur sat ég líka í dómnefnd Íslensku bók- menntaverðlaunanna, sem var einstaklega skemmtilegt verkefni. Ég spilaði lengi körfubolta og fikta við það enn þá þegar færi gefst til; ætti kannski að stefna á að verða elsti bumbuboltaleikmaður landsins þegar þar að kemur. Ég elska að ferðast á nýjar og gjarnan framandi slóðir og er komin með frekar harka- leg fráhvarfseinkenni frá utanlandsferðum. Ferðalög innanlands heilla líka og gekk ég nýlega á Snæfellsjökul, sem var fyrsta jöklagangan mín. Heilsa er mér hugleikin og stóra markmiðið í lífinu er að eiga innihaldsríkt og ham- ingjusamt líf með fólkinu mínu og halda góðri heilsu sem allra lengst.“ FJÖLSKYLDA Hrund er í sambúð með Óskari Páli Elfarssyni, f. 7.5. 1984, ljósmyndara og vörustjóra hjá Origo. Þau eiga börnin Sunnu Karen Óskarsdóttur, f. 9.2. 2016, og Sölva Berg Óskarsson, f. 30.8. 2018. Foreldrar Hrundar eru Þór Sigurjónsson byggingaverkfræðingur, f. 2.11. 1955, og Guðrún Gunnarsdóttir matvælafræðingur, f.19.3. 1957. Hrund Þórsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þú hefur þörf fyrir að bæta þig og reyna að ná betri árangri. Láttu ekkert trufla þig á meðan, þá verður þú sáttur við útkom- una. 20. apríl - 20. maí + Naut Þú þarft að leggja þig allan fram til þess að áheyrendur þínir viti hvað þú ert að fara. Reyndu að hemja skap þitt og forðast rifrildi. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þú átt að eiga auðvelt með að finna þér skoðanabræður ef þú aðeins lítur vand- lega í kringum þig. Gættu að því hvað þú seg- ir. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þú ert óvenjuhlédrægur í dag þar sen þér finnst þú ekki hafa neitt fram að færa. Náinn vinur þinn vekur undrun þína með því að hrósa þér. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þú þarft að berjast fyrir sjálfstæði þínu bæði heima fyrir og í vinnunni. Hlustaðu því á þá eldri og dragðu lærdóm af því sem þeir segja. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þú kemst ekki hjá því að taka þátt í samstarfi í dag svo gerðu þitt besta í stöð- unni. Samband þitt við maka fer batnandi, sem og samskipti þín út á við. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þroski þinn er augljós nú þegar hugsanir þínar eru gjörsamlega ólíkar hugsunum þín- um fyrir ári. Aðeins vel upplýstur maður get- ur innt þau störf af hendi, sem þér eru falin. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Ógn steðjar að einhverjum ná- komnum og þú verður fyrir barðinu á stjórn- semi og klækjum. Vertu staðfastur og þá fer allt vel að lokum. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Einhver hefur látið á þig reyna seinustu þrjár vikur, og nú er kominn tími til að snúa dæminu við. Vinur þinn er ekki allur þar sem hann er séður. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Temdu þér að sjá hlutina í sam- hengi og horfa frekar til heildarinnar en láta einstök smáatriði byrgja þér sýn. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þú þarft að læra betur að verja þig fyrir umhverfinu og þá sérstaklega að láta allt slúður sem vind um eyru þjóta. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þú hefur látið reka á reiðanum um sinn og uppgötvar nú hversu langt þig hefur borið af leið. Það er ekkert við því að segja, þótt aðrir séu ekki á sama máli og þú. skyldu aðeins 17 ára gömul og börn- in komu hvert af öðru, en ungu hjónin skildu og var Guðný einstök móðir frá 29 ára aldri. Það er greinilegt að Guðný hefur Unglingsárin voru skemmtileg og Guðný var mikið í hestamennsku og átti góðan hest. Það fór þó svo að hún seldi hestinn og keypti sér ís- skáp, því hún var búin að stofna fjöl- G uðný Harðardóttir fæddist 11. júní 1951 í Reykjavík. Hún var orkumikið barn og þótti móður hennar stundum nóg um. „Mamma sagði alltaf að systur mínar hefðu verið eins og ljós, en ég hefði verið á við tíu börn. Ég lék mér mikið með strákunum, hoppaði niður af bíl- skúrum og eyðilagði alla kjóla.“ Þau voru mörg uppátækin og sum hefðu getað endað illa. „Þegar ég var þriggja ára fór ég ein í strætó niður í bæ til að heimsækja Þóru frænku mína, sem rak hattabúð í mið- bænum. Vagnstjórinn áttar sig á því að ég er ein á ferð og spyr mig hver eigi mig og ég vissi nú heimilisfangið heima og hann skilaði mér heim þar sem mamma var úti á tröppum alveg grunlaus um ferðalagið.“ Guðný segir að margar svona sög- ur muni hún úr æskunni. Hættuleg- asta uppátækið var þó án efa sjó- ferðin til útlanda. „Þegar ég sá ljósin á Akranesi blika í myrkrinu var ég þess fullviss að þar væru þessi útlönd sem fólk talaði um. Ég og Gunna Beta, vinkona mín, fund- um spýtnafleka sem við drógum nið- ur í fjöru sem var talsvert þrekvirki, en hugmyndin var að fara til útlanda og sækja þar epli og appelsínur. Við vorum vel búnar undir ferðina með sína matarkexkökuna hvor í vas- anum og einhvern veginn komum við flekanum á flot og sigldum af stað. Það varð okkur til bjargar að þrír ungir menn sáu til okkar og stukku út í sjóinn til að bjarga okk- ur. Þannig fór um sjóferð þá.“ Rauðhærður eskimói Aðeins tólf ára gömul var Guðný send til Englands yfir sumar til að læra ensku. „Ég bjó hjá fjölskyldu og þegar ég kom var sonurinn á heimilinu búinn að safna saman öll- um krökkunum í hverfinu til að sjá þennan Íslending. Þegar ég birtist með mitt rauða hár, urðu krakk- arnir frekar skúffaðir því þau bjugg- ust við að sjá Eskimóa.“ Guðný var nokkur sumur á Englandi og lærði þar ensku og sögu og einnig tónlist, en faðir hennar hafði hug á að hún tæki við fyrirtækinu síðar meir. lagt allt sitt í uppeldi barna sinna og er mikil fjölskyldumanneskja. „Það er mikil ábyrgð og einnig forréttindi að ala upp barn. Á fimmtudögum voru sérstök fjölskyldukvöld hjá okkur, en þá var ekkert sjónvarp og þá var mikið fjör.“ Guðný hefur unnið mikið í gegn- um tíðina en hún hefur verið í ráðn- ingarbransanum frá árinu 1984. „Ég sótti um vinnu í Liðsauka og daginn eftir var mér boðið starf og þá var bara framkvæmdastjórinn, Oddrún Kristjánsdóttir og ég, en eftir þrjá mánuði þurftum við að bæta við starfsfólki. Eftir nánast tíu ára starf í Liðsauka ákvað Guðný að stofna sitt eigið fyrirtæki, STRÁ Starfs- ráðningar ehf., sem hún hefur rekið alla tíð síðan. „Mér fannst ofboðs- lega gaman að fara í sjálfstæðan rekstur og elskaði starfið og fannst það eitt það skemmtilegasta sem ég gerði. Í dag hef ég ákveðið að hætta rekstrinum og leggja fyrirtækið nið- ur og njóta bara lífsins með fjöl- skyldunni.“ Guðný og Guðjón hafa ferðast víða bæði um Ísland og erlendis og eftir að þau kynntust fór Guðný aft- ur í hestamennskuna. „Það er dásamlegt að fara í hestaferðir og skilja eftir síma og tæki og upplifa náttúruna í öllu sínu veldi. Ég varð amma 38 ára og það er bara dásam- legasta hlutverkið sem ég hef sinnt. Fjársjóðurinn minn er fjölskyldan mín og ég hef verið ótrúlega heppin þar.“ Fjölskylda Eiginmaður Guðnýjar er Guðjón Ármann Jónsson hrl., f. 6.12. 1948. Foreldrar hans eru hjónin Jón Ólafsson lögreglumaður, f. 28.2. 1923, d. 5.11. 2002, og Guðrún Valdís Ármann, húsmóðir og matreiðslu- kennari, f. 11.6. 1926, d. 23.6. 2019 á Eskifirði. Fyrri maki Guðnýjar er Birgir Óttar Ríkharðsson vélvirki, f. 4.10. 1950. Börn þeirra eru 1) Sævar verkfræðingur, f. 20.5. 1969. Hann er kvæntur Sigríði Síu Þórðar- dóttur, forstöðumanni yfir Dyna- mics hjá Advania, f. 14.9. 1970. Þau eiga börnin Sæunni Rut, f. 9.12. 1990, og Viktor, f. 19.7. 1997. 2) Erla Guðný Harðardóttir framkvæmdastjóri — 70 ára Fjölskyldan Aftari röð frá vinstri: Erla Björk og Eva María í móðurkviði, Sævar, Sæunn Rut og María Ósk. Fremri röð frá vinstri: Agnes Líf, Pétur Helgi í fangi mínu, Birgir Steinn í fangi Guðnýjar Lilju og Viktor. Reyndi að komast til útlanda á fleka Ferðalangar Hjónin Guðný og Guð- jón Ármann við Taj Mahal á Indlandi. Yngsta barnabarnið Eva María með Guðnýju ömmu á góðri stund. Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.