Skólablaðið - 01.04.1976, Blaðsíða 12
Draumvaka
i.
...öskrandi hlátur
strjúkandi hendur
hvetjandi stunur
og Taxi
og Taxi...
/
verélaun
Fljúgandi kvöld
undir stjömubliki eilífðar.
I óljósri leit að fegurð
reikum við um á afmörkuðum fleti
kennisetninga krossa
múlbundnar venju.
Fálmandi skuggar
kvenna og manna
undir skýjum hulinni víðáttu.
II.
I hugsýn
franskra nátta
fæðist annarleg kennd.
Hvíslandi vindblær
sem næðir um svarta slóðina
og boðar nýjan sannleika:
Ég er líf
sem lifir vegna lífsins.
Vínviður
og vex fyrir vínið.
Njóttu mín.
ölvaðri gleði
er bikarinn tæmdur
í sindrandi ljósi nýrra tima
og haldið af stað
(inn í goðumlíkan heim
ýktra ástríðna.
Vér rómantískir menn).
Franskar nætur.
Kvöld í klúbbnum
í draumvöku frelsis
magnaða með víngylltu hugrekki -
draumbundnu.
...bleiklitur koss
náfölvrar ásjónu
sameinas’t skærlitum ljósum...
(og gerir sitt ýtrasta
til að uppfylla tómið)
...gullnar veigar
og þrýstin biðjandi brjóst
titrandi í æði tónfallsins
verða eitt...
(á vörum huga þess
sem situr úti í horni
og nýtur ásta
aleinn)
Ljósbrot deyjandi klaka
á siglingu í vatnsmenguðu víni
ljóstrar upp um blekkinguna
í mansöng þjónsins.
En blekkingin
er fegri tveggja kvenna
sem haldast hönd í hönd
í hringdansi valkosta.
XV.
Pendúll tímans
sveipar svörtu klæði
hvern ófullnægðan draum
og vísar til sætis
fálmandi skuggum
á einstefnu eigin hugleysis.
Guðmundur Karl Guðmundsson, 4.B.
2.-3.
verélsun
Þeir slægir
slá taktinn á
trúnað og
vonir temja
kúga þig
kaupa þina
virðingarverðu
velsæmiskennd.
Eymdin i
unaði og
þín skynjun
skoðar tauminn
ósk um vernd
öryggi, náð
heilagra
þerrar tárin.
Guðni Bragason, 5.-D.
Litakassar
Barn vex í grasi
borar fingrum gegnum svörðinn
oní lina moldina
minnir þig á litakassann
sem þú opnaðir
þegar veröldin var bara svört og hvít
hversu ljúft var ekki að nema breytingu
á hinu hefðbundna formi hluta
fara um þá höndum
breyta
sjá liti
(hvemig þú beittir þeim
eins og mosavaxinn garðyrkjumaður
vatnsslöngu)
sjá lífið renna sundur og saman
sjá ljósið - leita
sjá myrkrið - þreifa
finna tómið fullt af háaloftum og kjöllurum
á meðan þú læddist um í blekkingunni
bak við heiminn
opnaðist annar litakassi
við morgunverðarborðið:
kaffi (eða te)
ristað brauð
morgunblað.
ölafur Grétar Kristjánsson, 4.-B.