Morgunblaðið - 19.07.2021, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 19.07.2021, Qupperneq 12
VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Áhugavert er að fulltrúar atvinnu- lífsins skulii ekki hafa spyrnt betur fótunum við hugmyndum um hækk- un mótframlags launagreiðanda vegna lífeyrissjóðsiðgjalda. Þá er óheppilegt að ekki beri meira á um- ræðu um hvernig háir skattar, gjöld og önnur íþyngjandi atriði bitna á samkeppnisfærni og rekstrargetu ís- lenskra fyrirtækja. Þetta segir Skafti Harðarson, for- maður Samtaka skattgreiðenda, og er tilefnið nýlegt ríkisstjórnar- frumvarp um breytingar á líf- eyrismálum. Efnahags- og við- skiptanefnd Al- þingis vísaði frumvarpinu aft- ur til ríkisstjórn- arinnar m.a. vegna gagnrýni sem hafði komið fram um skort á samráði við samningu frumvarpsins. Skafti bendir á að gagnrýnin hafi þó einkum beinst að minniháttar út- færsluatriðum en ekki þeirri stað- reynd að verið væri að bæta veru- lega við byrðar launagreiðenda. „Með hækkuðu mótframlagi var rík- isstjórnin í reynd að lögfesta fyrir allan vinnumarkaðinn atriði sem samið var um í síðustu kjarasamn- ingalotu ASÍ. En vitaskuld er það aðila á vinnumarkaði að semja um þessi mál, og ekki ríkisins að setja lög um slíkar skuldbindingar.“ Þá nefnir Skafti að lítið hafi verið gert til að láta ganga til baka þær miklu hækkanir sem urðu á trygg- ingagjaldi og fjármagnstekjuskatti eftir bankahrun, og þvert á móti hafi fjármagnstekjuskatturinn verið hækkaður í tíð núverandi ríkis- stjórnar. Auk þess hefur skortstefna á lóðamarkaði leitt til þess að fast- eignagjöld af atvinnuhúsnæði hafa hækkað til muna. „Fasteignaskatt- arnir eru orðnir að eins konar eilífð- arvél fyrir sveitarfélög eins og Reykjavíkurborg sem virðist halda lóðaframboði niðri með vísvitandi hætti enda leiðir lítið framboð til lóðaskorts sem svo aftur leiðir til hækkunar á fasteignaverði og stærri skattstofns,“ útskýrir Skafti og bæt- ir við að þegar tryggingagjaldið var hækkað á sínum tíma hafi verið látið í veðri vaka að um tímabundna að- gerð væri að ræða til að bregðast við auknu atvinnuleysi. Atvinnuástandið hafi síðan batnað en tryggingagjald- ið aðeins lækkað lítillega, og í agn- arsmáum skrefum: „Það sannast hér einu sinni enn að fátt er jafn varan- legt og tímabundnir skattar.“ Í raun tekið af hlut launþegans Skafti segir að eitt af mörgum skrefum sem taka mætti í rétta átt væri að koma því betur til skila til launþega að þau gjöld sem vinnu- veitandinn þarf að greiða með hverj- um starfsmanni eru í reynd tekin af launaseðlinum. „Orðræðan hefur á sér þann keim að t.d. hækkað trygg- ingagjald og hækkað mótframlag séu einfaldlega atvinnurekenda- skattur, og þykir fáum ástæða til að sýna atvinnurekendum sérstaka samúð. Er eins og fólk sjái ekki sam- hengið á milli sinna eigin launakjara og þeirra gjalda sem lögð eru á vinnuveitandann, og umræddir skattar og framlög eru í raun að skerða hlut launþegans þó svo að greiðslan fari fram hinum megin borðsins.“ Bendir Skafti t.d. á að ótal dæmi megi finna um fyrirtæki sem sáu sig knúin til að fækka starfsfólki þegar tryggingagjaldið var hækkað sem mest. „Á þeim tíma vann ég hjá byggingavörufyrirtæki og voru stjórnendur einfaldlega í þeim spor- um að ekki var til peningur fyrir hækkun tryggingagjaldsins, og óhjá- kvæmilegt að segja upp fólki í réttu hlutfalli við auknar byrðar ef ætti að takast að brúa bilið. Þannig má leiða rök að því að skatturinn sem fjár- magnar atvinnuleysisbæturnar bein- línis auki við eða viðhaldi atvinnu- leysi.“ Hinn almenni launþegi virðist ekki gera sér grein fyrir hve háar upp- hæðirnar eru og minnir Skafti á að nýlegar upplýsingar frá Hagstofu Íslands hafi leitt í ljós að meðallaun í landinu árið 2020 voru í kringum 670.000 kr. Ef rýnt er í tölurnar kostar einstaklingur með þessi laun vinnuveitandann 910.000 kr. á mán- uði þegar launatengd gjöld eru talin með, en launþeginn fær hins vegar aðeins um 508.000 kr. útborgaðar. Eru launin um 74% af kostnaði vinnuveitanda og útborguð laun ekki nema tæplega 56% af heildarkostn- aði launagreiðandans. Er þá eftir að bæta við öðrum kostnaði vinnuveit- anda s.s. vegna veikinda, afleysinga og uppsagnarfrests, og vegna þeirr- ar vinnu sem fer í utanumhald og rétt skil á greiðslum. „Eðlilegast væri að launþegar sjálfir þyrftu að standa skil á þessum greiðslum öll- um: sköttum verklýðsfélaga, ríkis- og sveitarfélaga og lífeyrissjóðs- greiðslum. Þá væri öllum þessum álögum ekki tekið af jafn miklu fá- læti og nú er,“ segir Skafti. Taka verður neikvæð áhrif skatta með í reikninginn Skatta- og gjaldaumhverfið veldur efnahagslegu tjóni langt umfram þær krónur og aura sem stjórnvöld hafa af fólki og fyrirtækjum. Vísar Skafti m.a. til frægrar rannsóknar James Gwartneys sem leiddi í ljós sterkt samhengi á milli aukinna um- svifa ríkisins og minnkandi hagvaxt- ar. „Há gjöld hafa svo sterk letjandi áhrif á að fólk vinni og skapi aukin verðmæti. Þetta hafa bæði ríkis- stjórnir Jóhönnu Sigurðardóttur og Katrínar Jakobsdóttur viðurkennt með óbeinum hætti með átaksverk- efninu Allir vinna sem felur í sér endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna útseldrar vinnu iðnaðarmanna og hafði einmitt þau tilætluðu áhrif að almenningur keypti meira af þjónustu þeirra,“ segir Skafti. „Á svipaðan hátt hefur ósamkeppnis- færni íslensks skattaumhverfis verið viðurkennd með sérúrræðum eins og tímabundnum afslætti af tekjuskatti erlendra sérfræðinga sem ráða sig til starfa hjá íslenskum fyrirtækjum. Alla skatta þarf að meta út frá þeim beinu áhrifum sem þeir hafa á neyslu, framleiðslu og hagvöxt, en ekki einvörðungu út frá þeim krón- um sem skila sér í ríkissjóð.“ Að mati Skafta felast mikil sóknarfæri í því að taka skatta- og gjaldaumhverf Íslands í gegn og ljóst að væri t.d. vel gerlegt að minnka tekjur ríkissjóðs til muna án þess að skerða þá þjónustu sem al- menningur vill síst missa. Þá megi líta til góðrar reynslu Íra af því að skapa fyrirtækjum hagfellt skatta- umhverfi en eins og þekkt er tókst þeim að laða til sín fjölda stór- fyrirtækja með því að stilla sköttum í hóf og uppskáru mikla atvinnusköp- un og hækkaðar skatttekjur til lengri tíma litið. „Afskekkt eyland fjarri stórum mörkuðum þyrfti að bjóða enn betur en Írar og fátt sem mælir gegn því að gera Ísland að skattaparadís.“ Sjá ekki samhengið á milli launa og gjalda Morgunblaðið/Ómar Byrði Skafti leggur til að í stað þess að láta vinnuveitendur annast greiðslu á launatengdum gjöldum og sköttum yrði það á ábyrgð launþegans sjálfs. „Þá væri öllum þessum álögum ekki tekið af jafn miklu fálæti og nú er.“ Stór biti » Meðallaunþeginn fær aðeins útborgað sem nemur 56% af kostnaði vinnuveitandans. » Reykjavíkurborg virðist vís- vitandi ýta upp fasteignaverði til að stækka fasteignaskatts- stofninn. » Tryggingagjald lækkar löt- urhægt þrátt fyrir styrkingu vinnumarkaðarins. » Háir skattar hafa letjandi áhrif og dempa verðmæta- sköpun í hagkerfinu. » Vert að skoða góða reynslu Íra af að stilla sköttum í hóf. - Formaður Samtaka skattgreiðenda bendir á hve lítið af kostnaði vinnuveitandans ratar í vasa launþega - Tækifæri fólgin í að taka íslenskt skattaumhverfi til endurskoðunar Skafti Harðarson 12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. JÚLÍ 2021 PON er umboðsaðili PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður Sími 580 0110 | pon.is Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna! GÆÐI OG ÞJÓNUSTA 19. júlí 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 123.61 Sterlingspund 171.05 Kanadadalur 98.21 Dönsk króna 19.615 Norsk króna 14.046 Sænsk króna 14.244 Svissn. franki 134.43 Japanskt jen 1.122 SDR 175.91 Evra 145.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 178.3593 « Þvert á spár markaðsgreinenda lækk- aði væntingavísitala bandarískra neyt- enda í byrjun júlí. Reuters greinir frá þessu og bendir á að bjartsýni neytenda vestanhafs hafi ekki mælst minni í fimm mánuði. Michiganháskóli metur viðhorf neyt- enda með reglubundinni könnun og mældist væntingavísitalan 80,8 stig í júlí sem er töluverð lækkun frá júnímán- uði þegar vísitalan mældist 85,5 stig. Könnun sem Reuters gerði á meðal hag- fræðinga leiddi í ljós að þeir væntu að meðaltali 86,5 stiga í júlí. Þróunin kann einkum að skýrast af því verðbólguskoti sem núna gengur yfir Bandaríkjamarkað og standa neytendur m.a. frammi fyrir verulegri hækkun á verði heimilistækja, bifreiða og fasteigna. Þá sýnir könnun Michiganháskóla að almenningur væntir um 4,8% verðbólgu á þessu ári. Hins vegar reikna svarendur með að langtímaverðbólga verði í kring- um 2,9% markið. ai@mbl.is Væntingar bandarískra neytenda á niðurleið STUTT Ráðherrar OPEC-ríkjana og sam- starfslanda náðu samkomulagi á sunnudag um að auka olíu- framleiðslu sína. Samkomulagið fel- ur einnig í sér að hækka fram- leiðsluviðmið ákveðinna þjóða en undanfarnar vikur hafa fulltrúar Sameinuðu arabísku furstadæm- anna þrýst fast á um að fá stærri skerf af olíufraleiðslukvóta OPEC í samræmi við framleiðslugetu lands- ins. Að sögn FT felur nýja samkomu- lagið í sér að heildarframleiðsla olíu eykst um 400.000 föt á dag strax í ágúst, og vex síðan í áföngum þar til í árslok þegar aukningin verður orðin tvö milljón föt á dag miðað við núverandi framleiðsluþak. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur ekki verið hærra í þrjú ár en mark- aðsgreinendur benda á að það hve hægt OPEC-hópurinn hyggst fara í sakirnar sé til marks um óvissu um hversu hratt alþjóðahagkerfið rétt- ir úr kútnum nú þegar versta skeið kórónuveirufaraldursins virðist að baki. OPEC-löndin og samstarfslönd þeirra minnkuðu olíuframleiðslu sína um 10 milljón föt á dag í apríl á síðasta ári þegar eftirspurn var með minnsta móti en hafa aukið fram- leiðsluna í smáskrefum eftir því sem hagkerfi heimsins hafa tekið að styrkjast á ný. Vantar enn tæplega sex milljón föt til að ná fyrra fram- leiðslumagni. Sumum þótti krafa furstadæm- anna til marks um vaxandi tog- streitu innan OPEC og að djúpstæð gjá kynni að myndast innan samtak- anna. Abdulaziz bin Salman, orku- málaráðherra Sádi-Arabíu, sagði niðurstöðu helgarinnar til marks um getu aðildarríkja OPEC til að leysa úr ágreiningsmálum sínum og að nú ætti að vera orðið mun skýr- ara hvert olíumarkaðurinn stefnir. Suhail Al Mazrouei, orkumála- ráðherra furstadæmanna, sagði blaðamönnum að þrátt fyrir þær deilur sem á undan væru gengnar myndu SAF áfram halda fulla tryggð við OPEC-samstarfið. ai@mbl.is Abdulaziz bin Salman Al-Saud Suhail Al Mazrouei OPEC-hópurinn eykur olíuframleiðslu « Stóru bandarísku hlutabréfavísitöl- urnar þrjár lækkuðu um 0,75 til 0,86% í vikulok meðal annars vegna áhyggja fjárfesta af nýjum tölum sem sýna fjölgun kórónuveirutilvika í Bandaríkjunum. Stjórnvöld tilkynntu 70% aukningu tilvika á milli vikna á meðan dauðs- föllum fjölgaði um 26%. Gæti það haft kælandi áhrif á hagkerfið ef þró- unin heldur áfram með sama hætti. ai@mbl.is Delta-afbrigðið gerir fjárfesta órólega

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.