Morgunblaðið - 19.07.2021, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. JÚLÍ 2021
Guðmundur Sv. Hermannsson
gummi@mbl.is
Ítölsk stjórnvöld hafa ákveðið að
banna stórum skemmtiferðaskipum
að sigla inn í miðborg Feneyja frá og
með 1. ágúst en lengi hefur verið var-
að við því að stór skemmtiferðaskip
kunni að valda óbætanlegum
skemmdum á borginni
„Þessi tilskipun er mikilvægt skref
í átt til þess að vernda lónið og sýkin í
Feneyjum,“ sagði Mario Draghi, for-
sætisráðherra Ítalíu, eftir að bannið
var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í
síðustu viku.
Draghi bætti við, að opinberu fé
verði varið til að draga úr áhrifum
þessa banns á afkomu borgarbúa en
borgin hefur haft miklar tekjur af
farþegum sem koma þangað með
skemmtiferðaskipum
Stóru skemmtiferðaskipin geta
lagst að bryggju í iðnaðarhöfninni
Marghera. Ítalskir stjórnmálamenn
segja að það sé þó aðeins tímabundin
lausn og viðraðar hafa verið hug-
myndir um að byggja nýja höfn ein-
göngu fyrir skemmtiferðaskip.
Að sögn AFP-fréttastofunnar ligg-
ur tillaga fyrir fundi Menningar-
málastofnunar Sameinuðu þjóðanna,
UNESCO, um að setja Feneyjar á
lista yfir menningarminjar í hættu.
Borgarbúar segja, að öldugangur frá
stóru skemmtiferðaskipunum, þegar
þau sigla framhjá Markúsartorginu,
valdi skemmdum á undirstöðum
húsa og raski viðkvæmu vistkerfi
lónsins.
Einstakt meistaraverk
Umræðan um hrörnun Feneyja
komst á skrið að nýju fyrr í sumar
þegar skemmtiferðaskip birtust að
nýju í borginni en kórónuveiru-
faraldurinn sá til þess, að skipin og
ferðamenn héldu sig til hlés á síðasta
ári.
Feneyjar voru skráðar á heims-
minjaskrá UNESCO árið 1987 og
borginni var þá lýst sem einstöku
meistaraverki í arkitektúr. En stofn-
unin lýsti því yfir í júní, að finna
þyrfti leiðir til að koma ferðaþjónustu
í borginni í sjálfbært horf.
Dario Franceschini, menningar-
málaráðherra Ítalíu, sagði í síðustu
viku að ríkisstjórnin hefði ákveðið að
grípa til aðgerða nú til að koma í veg
fyrir að borgin yrði sett á lista yfir
heimsminjar í hættu.
„Frá og með 1. ágúst fá stór skip
ekki lengur að fara til Feneyja gegn-
um Markúsarlónið, Markúsarsíkið og
Guidecca-sí3kið,“ sagði Enrico Giov-
annini, ráðherra innviða.
Þeir sem geta sýnt fram á fjár-
hagslegt tjón vegna þessarar ákvörð-
unar fá fjárstyrki og einnig verður fé
veitt til að bæta aðstöðuna í Marg-
hera-höfninni.
Vernda hreinleika borgarinnar
Giovannini sagði, að siglingabannið
væri nauðsynlegt skref til að vernda
umhverfið, landslagið og listrænan og
menningarlegan hreinleika Feneyja.
Bannið mun þó aðeins ná til
stærstu skemmtiferðaskipanna og
skip, sem flytja allt að 200 farþegum,
eru skilgreind sem „sjálfbær“ og fá
áfram að sigla gegnum miðborgina.
En skip, sem ýmist eru yfir 25 þúsund
tonn að þyngd, 180 metra löng eða
lengri, yfir 35 metrar á hæð eða losa
meira en 0,1% af brennisteini, fá ekki
að sigla þessa leið.
Marco Michielli, varaformaður
ítölsku ferðamálasamtakanna, sagði
að nýju reglurnar væru góð mála-
miðlun.
„Lausnin sem byggist á Marghera-
höfninni tryggir, að skip munu áfram
koma til Feneyja og þannig viðhalda
störfum og fyrirtækjarekstri og á
sama tíma verður Giudecca-síkið
laust við skipaumferðina,“ sagði
hann.
Umræðan um áhrif skemmti-
ferðaskipaumferðar á Feneyjar hef-
ur vakið alþjóðlega athygli. Í júní
birtist opið bréf þar sem ítölsk
stjórnvöld voru hvött til að grípa til
aðgerða til að verja borgina skemmd-
um því hætta væri á að hún „flyti
brott“ á bylgjum frá farþegaskipum.
Undir bréfið skrifuðu m.a. heims-
þekktir listamenn, þar á meðal Mick
Jagger, söngvari Rolling Stones, og
kvikmyndaleikstjórinn Francis Ford
Coppola og framámenn í alþjóðlegu
listalífi á borð við Richard Arm-
strong, forstjóra Solomon R. Gug-
genheimsafnsins í New York.
AFP
Skip í borg Dráttarbátur dregur farþegaskipið Orchestra yfir lónið fram hjá Markúsartorginu í
miðborg Feneyja á Ítalíu. Nú verður stórum skemmtiferðaskipum bannað að sigla þessa leið.
Skemmtiferðaskip í skammarkrók
- Ítölsk stjórnvöld hafa ákveðið að banna stórum skemmtiferðaskipum að sigla gegnum miðborg
Feneyja - Rætt um það innan UNESCO að setja borgina á lista yfir menningarminjar í hættu
500 m
100 km
Stórum skipum úthýst í Feneyjum
RÓM
Í TAL ÍA
Feneyjar
+ 180 metra löng
S"-% /.) '�((-0 (*# +-1
L!"$0 /,*0-
S!'0"� �/ 0-%%#�.*
+,/ 0�)"&-.*�$
+ 25.000 tonn + 35metra há + 0,1% bennisteinslosun
Markúsar-
sýkið
©Mapcreator . io/©HERE
FENEYJAR
Skipið á myndinni: 294 metrarMSC ORCHESTRA
Giudecca
Marghera
iðnaðarhöfnin
Markúsar-
torgið
Staðfest er að 190 manns eru látnir
og tuga er enn saknað í Þýskalandi
og Belgíu vegna mikilla flóða í Evr-
ópu að undanförnu. Í Þýskalandi eru
159 hið minnsta látnir og 31 í Belgíu.
Áframhaldandi rigningu er spáð á
svæðinu og hafa yfir þúsund her-
menn verið sendir til vesturhluta
Þýskalands til að aðstoða við björg-
unaraðgerðir.
Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, segist skelfingu lostin eftir
heimsókn sína á flóðasvæðin í Vest-
ur-Þýskalandi í gær, þar sem eyði-
leggingin er algjör og fjöldi fólks
hefur týnt lífi. Íklædd gönguskóm
gekk Merkel um þorpið Schuld í
Rínarlandi, sem hefur orðið hvað
verst úti í flóðunum miklu á meg-
inlandi Evrópu síðustu daga.
Merkel, sem senn kveður vett-
vang stjórnmála, hlýddi á frásagnir
björgunarliða og íbúa þorpsins sem
Ahrfljót þurrkaði stóran hluta út af
og skildi ekkert eftir sig nema al-
gjöra eyðileggingu.
AFP
Hamfarir Innsigla þurfti inngang á kaffihúsi í Þýskalandi.
190 látnir og tuga
er enn saknað
- Rigningu áfram spáð í Evrópu