Morgunblaðið - 19.07.2021, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.07.2021, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. JÚLÍ 2021 ✝ Sigrún Guð- jónsdóttir, Greniteig 9, Reykjanesbæ, fæddist 11. febr- úar 1932 á Lyng- um í Meðallandi, Vestur-Skaftafells- sýslu. Hún lést 5. júlí 2021, á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Reykjanesbæ. Foreldrar hennar voru hjónin Guðjón Ásmundsson, bóndi á Lyngum, f. 10. maí 1891, d. 13. nóvember 1978, og Guðlaug Oddsdóttir hús- freyja, f. 19. apríl 1904, d. 22. nóvember 2001. Þau eignuðust 13 börn. Sigrún var fimmta elst systkina sinna, sem eru: Guð- mundur, f. 1927, d. 2002, Guð- laugur, f. 1928, d. 2019, Oddný Margrét, f. 1929, Vilborg, f. 1930, d. 2012, Vigfús, f. 1934, d. 1935, Vigfús, f. 1935, d. 1960, Dagbjartur, f. 1937, d. 1993, Jóhanna, f. 1939, Sig- urður, f. 1940, Áslaug, f. 1942, Sigursveinn, f. 1945, og Stein- unn, f. 1947. 26. desember 1954 giftist Sigrún Sigurði Einarssyni, bifreiðastjóra frá Syðri-Steins- mýri í Meðallandi, V-Skafta- f. 8. apríl 1969. Maki Guð- sveinn Ólafur Gestsson. Þau eru búsett í Reykjanesbæ og eiga tvö börn; Ólöfu Rún og Birgi Örn, og eitt barnabarn. Afkomendur Sigrúnar og Sigurðar eru nú 25 talsins. Sigrún ólst upp á Lyngum í Meðallandi hjá foreldrum sín- um og systkinum. Hún starfaði undir hendi foreldra sinna að almennum hús- og bústörfum þegar aldur leyfði. Sigrún lauk barnaskólaprófi síns tíma. Hún stundaði framhalds- nám við Kvennaskólann á Hverabökkum í Hveragerði, um 18-20 ára aldurinn, 1950- 1952. Skólinn var frumkvöðull í sérmenntun kvenna. Sigrún og Sigurður hófu búskap í Keflavík árið 1953, er Sigurður fékk starf sem bifreiðastjóri í Keflavík hjá ýmsum fiskvinnslu- fyrirtækjum. Þau bjuggu fyrst í leiguhúsnæði í Hátúni 18. Árið 1956 byggðu þau hús á Greniteigi 9, Keflavík, og bjuggu þau þar alla sína bú- skapartíð. Sigrún til hinsta dags, eftir lát Sigurðar, eða samtals í 65 ár. Sigrún starfaði mestan hluta ævi sinnar við heim- ilisstörf og uppeldi á börnum sínum og barnabörnum. Hún hóf störf við gæsluvelli Kefla- víkur árið 1986 meðfram heimilishaldi og allt til ársins 2001-2002. Útför Sigrúnar fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 19. júlí 2021, klukkan 13. fellssýslu. Hann fæddist 10. júlí 1914, í Arnar- drangi, Landbroti, V-Skaftafellssýslu og lést 4. október árið 2000. For- eldrar hans voru Einar Runólfsson, f. 14. mars 1892, í Efri-Ey, Meðal- landi, V-Skafta- fellssýslu, d. 1. ágúst 1969, og Katrín Davíðs- dóttir, f. 14. febrúar 1896, í Fagurhlíð, Landbroti, V-Skaftafellssýslu, d. 3. júlí 1985. Börn Sigrúnar og Sigurðar eru fjögur: 1) Guðjón, f. 14. september 1954. Maki Stein- unn Njálsdóttir. Þau eru bú- sett í Kópavogi og eiga þrjú börn; Hróðmar Inga, Sigrúnu Dögg og Bjartmar Stein, og fimm barnabörn. 2) Bjarni Ás- grímur, f. 22. júní 1956. Maki Hansborg Þorkelsdóttir. Þau eru búsett í Reykjanesbæ og eiga þrjú börn; Sigurð Borgar, Birgittu Borg og Ásgerði Borg, og fimm barnabörn. 3) Sigurður, f. 22. nóvember 1967. Maki Árný Þorsteins- dóttir. Þau eru búsett í Dan- mörku og eiga tvo syni; Tóm- as og Matthías. 4) Sveinbjörg, Yndislega móðir mín, Sigrún Guðjónsdóttir, er látin 89 ára að aldri. Okkar samleið spannar tæp 67 ár og er ég afar þakklátur þeim örlögum að hafa fengið all- an þennan tíma með mömmu minni. Mikið verður það undarleg til- finning að vita ekki af veru þinni lengur á Greniteig 9, húsinu sem þið pabbi byggðuð, þegar þið komuð fyrst til Keflavíkur og bjugguð þar saman alla tíð og þú síðast ein eftir að pabbi dó árið 2000. Þar vorum við systkinin öll alin upp í umhyggju og ástúð. Ekki var við það komandi að þú myndir færa þig af Greniteig 9. Sagðir alltaf: „Á meðan ég get notað stigann sem mína leikfimi þá er ég ekki að fara neitt.“ Þér varð að ósk þinni, vildir búa í þessu húsi þar til yfir lyki. Móðir mín helgaði börnum sínum og barnabörnum stóran hluta lífs síns og var heimavinn- andi allt þar til hún varð 54 ára, að hún fór í starf utan heimilis og auðvitað við það sem hún gerði best og kunni best, að hugsa um börn, en nú voru það börn ann- arra á gæsluvöllum í Keflavík. Ættrækni var þér mikið mál. Varst með ættarskrá foreldra þinna, Guðlaugar og Guðjóns, uppi og bættir alltaf í með blýanti nýjum nöfnum og fæðing- ardögum hjá þeim, sem við átti og breyttir lokaniðurstöðunni um fjölda okkar skyldmenna á síð- ustu síðu. Þegar við síðan áttum næst samtal þá fékk ég að vita af öllum þeim nýju frænkum eða frændum, sem ég hafði eignast frá því við töluðu saman síðast. Jæja mamma mín, þá er okkar samræðum lokið á þessu tilveru- stigi. Ég mun sakna þess mikið að geta ekki tekið þessar sam- ræður við þig um nýja ættingja, afmæli systkina þinna og allt það sem er að gerast í þjóðfélaginu og þú vildir ræða og hafðir skoð- un á. Að morgni 5. júlí þegar ég ók af stað til Suðurnesja til að kveðja þig kom þetta fallega ljóð og söngur í útvarpið í bílnum hjá mér. Get ekki hugsað mér ljóð sem hefði átt betur við þig. Að- eins þessar tvær lokalínur í er- indinu væru nóg til að minnast þín og kveðja. Þig sem í fjarlægð fjöllin bak við dvelur og fagrar vonir tengir líf mitt við, minn hugur þráir, hjartað ákaft saknar, er horfnum stundum, ljúfum, dvel ég hjá. Heyrirðu ei hvern hjartað kallar á? Heyrirðu ei storm er kveðju mína ber? Þú fagra minning eftir skildir eina, sem aldrei gleymist, meðan lífs ég er. (Valdimar Hólm Hallstað) Ég vil þakka systkinum mín- um fyrir samveruna síðustu daga. Þó verkefnið hafi ekki ver- ið það sem við óskum okkur, þá hef ég þá trú að það muni gera okkur að betri manneskjum. Elskulega móðir mín, þakka þér fyrir allt það sem þú hefur gert fyrir mig og mína fjölskyldu. Þinn Guðjón. Sólarupprásin að morgni 5. júlí 2021, með sterka geisla sína hóf yndislegu tengdamóður mína, Sigrúnu Guðjónsdóttur upp til ljóssins í blómabrekkuna, sem tók á móti henni í eilífa um- hyggjufaðminn þar sem blómin opnuðu blómstur sín. Birtan var hin mesta á þessum árstíma, dagur og nótt runnu saman. Hún umlukti hina áþreifanlegu ná- lægð augnabliksins, þegar mann- eskja svífur inn í hinn eilífa svefn. Ljósbrot minninganna koma fram, þegar ég hitti Sigrúnu og Sigurð, verðandi tengdaforeldra mína, fyrst, vorið 1974. Hún kom á móti mér niður stigann með svuntuna, glaðleg og ánægð. Á kvöldverðarborðinu var saltkjöt, kartöflur, rófur og gulrætur, allt verkað heima, ræktað í matjurta- garðinum, og einnig radísur. Maturinn var reyndar einn af uppáhaldsréttum mínum úr Borgarfirðinum. Þarna mætti ég hreinræktuðum V-Skaftfelling- um, tungutak þeirra var skaft- fellskan, fallegasta mállýska okk- ar Íslendinga. Margt fleira fallegt mætti mér úr ranni Sig- rúnar; hógværð, lítillæti og spar- semi til orðs og æðis. Við áttum margar næðisstundir saman, jafningjasamræður sem ég met mikils og sakna sáran. Hún er ein jákvæðasta mann- eskja sem ég hef kynnst. Guð- laug Oddsdóttir, móðir hennar, var metnaðarfull fyrir hönd sex dætra sinna og allar stunduðu þær framhaldsnám. Sigrún fór 18-20 ára gömul í eins árs framhaldsnám við Kvennaskólann á Hverabökkum í Hveragerði. Kennslugreinar voru fjölbreyttar. Öll þau fræði tileinkaði Sigrún sér. Hún vann störf sín í hljóði og lauk verkum án þess að taka tíma frá öðrum. Hún stjórnaði af virðingu, var dagfarsprúð, listhneigð og næm. Hún var sterk fyrirmynd, gerði ekki mannamun, kom fram af sömu virðingu við börn og full- orðna. Heimilishald léttist um 1980, Sigrún vildi rifja upp sundnámið, við fórum saman. Hún fór mark- visst, þrisvar í viku, í sundlaug- ina við Sunnubraut í Keflavík. Sigurður ók konu sinni í sundið og sótti. Eftir lát hans gekk Sig- rún í sundið, sem var hennar lík- amsrækt. Hún sótti út á vinnu- markaðinn og bað mig að koma með sér, sem var sjálfgefið. Hún var mér bæði tengdamóðir og móðir í Keflavík. Gætti barna minna og hvatti mig til háskóla- námsins í íslensku. Sigrúnu var það mikill metnaður fyrir mína hönd. Vonandi náði ég að full- þakka það, með mínu tillagi í hennar lífi. Sigrún hóf störf við gæsluvelli Keflavíkur árið 1986 til ársins 2001-2. Hún átti farsælt starf með börnum og samstarfskon- um. Það er ekki sjálfgefið að samstarfsmenn eignist einlæga vináttu. Sigrún lagði ríka áherslu á að börn væru ekki atyrt, heldur að talað væri við þau. Börn fæðast skýr og greind, mestu skipti virðingin. Börnin áttu örugga höfn í fangi Sigrúnar jafnt sem öll barnabörn og lang- ömmubörn, sem kveðja hana með söknuði. Kveðjustund er sár, eftir hast- arleg veikindi Sigrúnar, 16. júní náði ég að dvelja hjá henni, eiga umhyggjustundir og kyrrláta samveru. Strengur hefur slitnað í tilverunni við fráfall hennar. Ég þakka henni umburðar- lyndið, sem hún leiddi inn í líf mitt. Bið góðan Guð að fylgja henni til ljóssins, megi hún hvíla í friði. Steinunn Njálsdóttir. Elsku amma mín er látin. Hún var búin að nefna það síðustu ár að hún væri orðin dálítið þreytt og gömul, að þetta væri nú kannski bara orðið gott. Núna hefur hún fengið frið. Ég er þess heiðurs aðnjótandi að vera skírð í höfuðið á henni, mér hefur alltaf þótt einstaklega vænt um það. Amma mín var yndisleg kona, hún var róleg og yfirveguð, hlý og notaleg. Ég eyddi miklum tíma hjá henni og afa þegar ég var að vaxa úr grasi, tíma sem í dag er mér mjög dýrmætur, minningarnar frá þeim tíma ylja núna. Amma tók alltaf á móti manni með hlýju og sinni notalegu nærveru. Mað- ur var ekki svangur í langan tíma eftir að hafa gengið inn heima hjá henni. Alltaf fann hún eitthvað gómsætt í kistunni, og einhvern veginn átti hún ávallt akkúrat það sem mann langaði í, eigin- leiki sem fáir geta leikið eftir. Amma var með mikið jafnað- argeð og þolinmæði hennar var aldrei af skornum skammti. Hún gat lesið sömu bókina upphátt 10 sinnum í röð ef maður óskaði þess. „Tóta tætibuska“ var í miklu uppáhaldi hjá mér þegar ég var lítil, og ég held svei mér þá að amma hafi ekki þurft að horfa á blaðsíðurnar þegar hún las bókina aftur og aftur, og aldrei sagði hún nei þegar ég bað hana um að lesa bókina enn einu sinni. Amma las mikið og eftir að ég varð fullorðin gátum við oft rætt um bókmenntir, þar hafði hún sterkar skoðanir og var ekki feimin við að viðra þær þegar við ræddum um bækurnar sem við höfðum lesið. Samtölin okkar voru skemmtileg og oft tókst henni að finna nýjan flöt á bók- inni sem gerði söguna enn áhuga- verðari. Amma fylgdist vel með frétt- um, hvort sem það voru íþrótta- fréttir eða stjórnmál þá var hún ávallt með puttann á púlsinum. Ósjaldan gat hún upplýst mann um hvernig síðasti leikur fór í enska boltanum eða hvort ís- lenska landsliðið í handbolta væri að standa sig. Amma var einstaklega jarð- bundin og raunsæ, mér fannst alltaf að yfirvofandi heimsendir væri það eina sem gæti sett hana úr jafnvægi. Ég hef reynt að temja mér hennar raunsæi og yf- irvegun á fullorðinsárum, ekki klakklaust en vonandi með ein- hverjum árangri. Minningar um ömmu munu eiga sérstakan stað í hjarta mínu um ókomna tíð. Sigrún Dögg Guðjónsdóttir, barnabarn. Sigrún Guðjónsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SOFFÍA G. JÓHANNSDÓTTIR frá Siglufirði, Kleppsvegi 62, verður jarðsungin frá Áskirkju miðvikudaginn 21. júlí klukkan 13. Jóhann Pétur Jónsson Kristín Salóme Steingrímsd. Einar Hjálmar Jónsson Erla J. Erlingsdóttir Hafdís Jónsdóttir Georg Kulp Kristrún Jónsdóttir Ólafur Fannar Vigfússon barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJARNI HERMANNSSON, lést miðvikudaginn 14. júlí á Hrafnistu Reykjavík. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 22. júlí klukkan 13. Kristín G. Bjarnadóttir Eyjólfur Gunnlaugsson Áslaug Bjarnadóttir Þórir Steingrímsson Jóhanna Bjarnadóttir Ólafur Jensson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, FRIÐRIK RAGNAR GÍSLASON, fv. skólastjóri Hótel- og veitingaskóla Íslands, lést 14. júlí á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Lundi Hellu. Útförin verður auglýst síðar. Sesselja Ada Kjærnested Bryndís Irene Friðriksdóttir Torben Christensen Auður Friðriksdóttir Jakob Bachman Erna Friðriksdóttir Jón Þór Viðarsson Linda Björk Friðriksdóttir Kristján Sigmundsson Friðrik Friðriksson Lilja Guðjónsdóttir Benjamín Friðriksson Kolbrún Steinunn Halldórsd. barnabörn og barnabarnabörn Elsku móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN ÞÓRISDÓTTIR, grafískur hönnuður, lést þriðjudaginn 13. júlí á líknardeild Landspítalans. Útför Rúnu fer fram í Áskirkju fimmtudaginn 22. júlí klukkan 13. Jón I. Jónsson Páll G. Jónsson Maren Temple Rúna Pálsdóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRN SIGURÐSSON frá Möðruvöllum í Hörgárdal, fv. lögregluvarðstjóri í Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi mánudaginn 5. júlí. Útförin verður frá Bústaðakirkju í Reykjavík mánudaginn 26. júlí klukkan 13. Ágústa Björnsdóttir Sigurður Björnsson Hanne Margit Hansen Kristján Björnsson Guðrún Helga Bjarnadóttir Björn Ágúst Björnsson Elísa Nielsen Eiríksdóttir María Kristín Björnsdóttir Robert Lacy Shivers barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGA ÍSAKSDÓTTIR, áður Hæðargarði 33, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni föstudaginn 9. júlí. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju í dag, mánudaginn 19. júlí, klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ljósið. Helga Þ. Einarsdóttir Steinunn J. Matthíasdóttir Ísak J. Matthíasson Hulda Gunnarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birt- ingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina mbl.is/sendagrein Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Undirskrift | Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.