Morgunblaðið - 19.07.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 19.07.2021, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. JÚLÍ 2021 Smáauglýsingar Atvinnuhúsnæði Húsnæði undir fótaðgerða- stofu til leigu staðsett í Samfélagshúsinu Bólstaðarhlíð 43. Allar nánari upplýsingar veitir Ragga í síma 535-2760 eða á netfangið ragnhildur.thor- steinsdottir@reykjavik.is Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Inntökupróf í læknisfræði og tannlækningar Í Palacký University í Olomouc Tékklandi verður haldið á netinu 5 ágúst nk. Umsóknarfrestur til 28. júlí. Inntökupróf dýralækningar í Dyralæknaháskólann í Košice Slóvakiu verður haldið 19 ágúst nk. Umsóknarfrestur til 6. ágúst nk. Uppl. kaldasel@islandia.is og 8201071 Húsviðhald Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Opin vinnustofa kl. 9 - 12. Jóga kl. 10. Handavinna kl. 12-16. Félagsvist kl. 12:45. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Heitt á könnunni. Kaffisala kl. 14:30-15.30. Allir velkomnir. Sími: 411-2600. Boðaþing 9 Bingó í BOÐANUM annan hvern mánudag kl. 13 Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi, spjall og blöðin kl. 8:10-11:00.Tæknilæsi námskeið Apple kl. 9-12. Opin Listasmiðja kl. 9-12. Ganga kl. 10. Hádegismatur kl. 11:30-12:30. Félagsvist kl. 13. Tæknilæsi námskeið Android kl. 13-16. Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30. Garðabæ Poolhópur í Jónshúsi kl. 9:00. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13:00. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11:00. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 12:40. Bridge í Jónshúsi kl.13:00. Ganga fyrir fólk m/göngugrind fer frá Jónshúsi kl. 14.00. Smiðjan Kirkjuhvol opin kl. 13:00 – 16:00 Gerðuberg Opin handavinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8:30, heitt á könnunni. Kúndalínijóga kl. 11:15 –12:00. Stefnum á ferðalag á Snæfellsnes og siglingu um Breiðafjörð þann 9. ágúst til 10. ágúst. Skráning stendur yfir, Gjábakki Opin vinnustofa í allt sumar í Gjábakka á þriðjudögum og fimmtudögum milli kl.13 og 15. Á staðnum verður boðið upp á málningu, pensla og blöð. Kennt verður á spjaldtölvu í Gjábakka alla þriðjudaga milli kl 13. og 15 í sumar. Gullsmári Milli kl.13 og 15 verður boðið upp á kennslu á snjalltæki. Spjaldtölva á staðnum. Félagsvist kl. 20.00 Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall kl. 8:30-10:30. Leirnámskeið "hér og nú" kl. 9:00-11:00. Stólaleikfimi kl. 13:30. Frisbígolf námskeið kl. 14:00. Seltjarnarnes Kaffspjall í króknum frá kl. 9, leikfimi í salnum Skólbraut kl. 11, handavinna og samvera í salnum Skólabraut kl. 13, síðasta snjallsímanámskeiðið kl. 13:30 í salnum Skólabraut. Í næstu viku förum við í fjórðu og síðustu göngu og kaffihúsaferðina okkar. Að þessu sinni er ferðinni heitið í Hafnafjörð. Skráningarblað er í króknum á Skólabraut og hjáThelmu í s: 8663027 Vantar þig pípara? FINNA.is ✝ Gísli Garðar Óskarsson fæddist í Reykjavík 3. maí 1942. Hann lést á Landspít- alanum í Fossvogi 1. júlí 2021. Foreldrar hans voru Óskar Gísla- son, bóndi í Húna- koti, f. 4.2. 1918, d. 16.6. 2001, og Lovísa Anna Árna- dóttir húsfreyja, f. 24.11. 1920, d. 6.1. 2009. Systkini Garðars eru: Árni, f. 24.5. 1940, Katrín, f. 1.9. 1944, og Margrét Auður, f. 1.5. 1958. Eftirlifandi eiginkona Garð- ars er Sigrún Ósk Bjarnadóttir (Sirrý) frá Reykjavík, f. 4.7. 1943. Þau gengu í hjónaband í Árbæjarkirkju í Reykjavík þann 28.10. 1967. Börn Garðars og Sirrýjar eru þrjú, barna- Garðar ólst upp í Þykkvabæ frá unga aldri og undi hann hag sínum þar vel. Hann lauk prófi í bifvélavirkjun og starf- aði á Bifreiðaverkstæði Kaup- félags Rangæinga ásamt því að vinna vítt og breitt um ná- grannasveitirnar á gröfu. Garðar og Sirrý byggðu sér hús í Húnakoti 2 árið 1968 og voru í félagsbúi með foreldrum Garðars þar sem stunduð var kartöflurækt í stórum stíl ásamt sjálfsþurftarbúskap með fáeinar skepnur. Garðar lauk meistaraprófi í bifvélavirkjun árið 1969 en kartöfluræktin togaði sífellt meira í hann svo að hann ein- beitti sér alltaf betur og betur að henni. Nágrannar hans nutu þó góðs af kunnáttu hans enda var hann greiðvikinn og hag- leiksmaður á járn hvort sem um var að ræða lagfæringar eða gagngerar endurbætur á hinum ýmsu tækjum. Á sínum yngri árum var Garðar virkur í ýmsu félags- starfi. Hann var í stjórn Stang- veiðifélags Rangæinga, einn af stofnfélögum Kartöfluverk- smiðjunnar í Þykkvabæ, spilaði bridge allar helgar, starfaði í björgunarsveit og var virkur félagi í Lionsklúbbnum Skyggni á Hellu í fjöldamörg ár. Garðar var heimakær og undi sér best úti í náttúrunni, hvort sem var við leik eða störf. Börn og málleysingjar hændust að honum og mátti oft sjá krakkaskara og dýr í návist hans. Á sumrin var fjölskyldan dugleg að fara í útilegur og veiðiferðir og ferðuðust þau hjónin mikið bæði innanlands sem og erlendis með Lions- félögum, vinafólki og fjöl- skyldu. Garðar og Sirrý bjuggu og störfuðu í Þykkvabænum allt þar til þau brugðu búi og fluttu upp á Hellu á 65 ára afmæli Garðars hinn 3. maí 2007. Seinustu árin vann Garðar að því að gera upp Fordson Dexta sem faðir hans hafði keypt nýj- an árið 1959 og þrátt fyrir að því verki væri svo gott sem lok- ið átti sú uppgerð hug hans all- an allt til dánardags. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. börnin níu og eitt barnabarnabarn. 1) Óskar Gísla- son, f. 12.6. 1967. Börn Óskars eru Elíza Lífdís, í sam- búð með Guðlaugi Sindra Helgasyni, Þengill Otri, í sam- búð Stáòa Štain- erová, Gísli Rúnar, í sambúð með Jenný Þórðar- dóttur og eiga þau eina dóttur, Kolka Rún og Bóel Þöll. 2) María Anna Gísladóttir, f. 2.8. 1971. Börn Maríu Önnu eru Axel og Lea, í sambúð með Andreas Silvnäs. 3) Ægir Garðar Gíslason, f. 29.12. 1975, kvæntur Fjólu Dögg Þorvaldsdóttur. Börn Ægis eru Gísli Garðar og Agnes Ósk. Barn Fjólu úr fyrra sambandi er Þorvaldur Elías. Afi var ekki allra, en afi var sannarlega minn. Hjá afa og ömmu átti ég annað heimili, enda heimili ekki þar sem þú býrð heldur þar sem þú nýtur ástar og skilnings. Þegar ég var lítil horfði ég með stjörnur í augunum á afa og sagði hverjum sem heyra vildi, já, og eflaust fleirum, að afi minn væri svo snjall að hann gæti bil- anagreint bíla með því einu að þefa út í loftið! Afi hefði nú gert lítið úr þessum hæfileika en mér þótti það mikið til þess koma að þegar ég óx úr grasi fetaði ég sama menntaveg og afi. Mér fannst spennandi að sniglast með afa úti í skúr og það gladdi mig þegar ég var orðin að- eins eldri að afi treysti mér fyrir því að gera við upptökuvélina. Afi var þannig, hann sagði okkur til og síðan fengum við að spreyta okkur sjálf. Eins og þeg- ar ég fékk að keyra bláa Ford- traktorinn um 10 ára aldur, þá komu afi og pabbi honum í gang, síðan var mér bent á olíugjöfina og bremsuna og með það var ég farin með flatvagninn í stóra garðinn upp með vegi. Þegar ég kom svo 17 ára með bílakerru og bakkaði inn í hlöðu sagði afi mér ekki til heldur stóð og sagði sposkur að ég hlyti að finna út úr þessu sjálf með öll þessi Þykkva- bæjargen. Haustin voru í sérstöku uppá- haldi hjá mér því þá var margt um manninn í kartöfluupptöku. Seinasta haustið sem afi og amma voru með kartöflur tók ég mér frí í vinnu og var hjá þeim í upptöku. Það var skrítið haust þar sem við vorum yfirleitt bara þrjú. Ég man að ég læddist fram úr á morgnana og athugaði hvort hitinn væri kominn upp fyrir núllið, hellti upp á kaffi og vonaði að þau myndu ekki vakna fyrr en runnið væri á könnuna, því mér fannst þau eiga skilið að fá að hvílast aðeins lengur. Þegar amma fór síðan heim úr görð- unum að græja mat var afi á traktornum og ég ein á vélinni. Okkur tókst nú samt að klára þetta saman. Þessi tími er minn- ing sem er mér afar kær enda ljúfsár endir á þeirra búskap. Eftir að afi og amma fluttu á Hellu renndi ég oft til þeirra í kaffi enda ekkert betra til að hreinsa hausinn en að setjast nið- ur og hlusta á ömmu segja sögur og afa leiðrétta jafn harðan, mér til ómældrar skemmtunar. Nú getur amma logið hverju sem er að mér! Eftir því sem heilsan versnaði reyndi ég að létta undir eins og ég gat þó ekki væri annað en að slá. Stundum fórum við líka saman inn í skúr þar sem afi var að gera upp Fordson Dexta og ef hann var í vandræðum bað ég hann um að segja mér til með þeim orðum að til þess hefði hann jú verið að eignast barna- börn, svo að hann gæti verið hausinn og við hendurnar. Afi var lúmskasti grínisti sem ég hef kynnst. Hann átti það til að henda fram hárfínum sneiðum eða athugasemdum sem yfirleitt fæstir tóku eftir, en þá leit hann í augun á mér og glotti svo að lítið bar á og ég kímdi á móti. Þessi augnatillit eru mín kærasta minning um afa, þetta var okkar strengur, þessi glettni og vissa um að við tvö skildum hvort ann- að fullkomlega. Takk fyrir allt, elsku afi. Takk fyrir að gera mig að sjálfstæðum einstaklingi og takk fyrir alla kaffibollana. En umfram allt, takk fyrir allan hláturinn! Þín sonardóttir Elíza Lífdís Óskarsdóttir. Gísli Garðar Óskarsson Elskuleg tengdamóðir mín, Ragnheiður Zóp- hóníasdóttir, lést í svefni á sólríkum sumarmorgni. Daginn áður gengu börnin hennar fjögur ásamt fleirum úr fjölskyldunni yfir Fimmvörðuháls. Síðasta símtalið var við dóttur hennar, Margréti. Hún vildi vita hvern- ig okkur hefði gengið og hvort það væri ekki allt í lagi með alla. Síðasta kveðjan hennar til okkar hljómaði yfir Þórsmörk, baðaða í geislum kvöldsólarinn- ar. Morguninn eftir lagði hún af stað í sína hinstu för. Ragnheiður Zóphóníasdóttir ✝ Ragnheiður Zóphóníasdótt- ir fæddist 26. ágúst 1930. Hún lést 29. júní 2021. Útförin fór fram 15. júlí 2021. Minningarnar streyma fram frá þeim hartnær 40 árum sem ég átti samleið með henni. Hún lét mig strax finna að ég væri velkomin í fjöl- skylduna þrátt fyr- ir að ég væri nú að taka einkasoninn frá henni og væri kannski ekki alveg úr rétta hreppnum, Hrunamað- ur að ætt og uppruna og hún gegnheill Gnúpverji! Ragga var afskaplega vin- mörg og best leið henni með eldhúsið fullt af fólki, hellti upp á könnuna af röggsemi og snar- aði fram gómsætum veitingum. Hún sagði sögur með sínum sterka rómi, var einstakur húmoristi og gerði óspart grín að sjálfri sér og ýmsum uppá- tækjum. Fáum hef ég kynnst sem þótti eins gaman að flakka og Röggu. Hún var dugleg að heimsækja vinkonur sínar og fjölskyldu. Hún átti mjög gott með að lesa í fólk og aldrei heyrði ég hana hallmæla nokkrum manni. Ef hún vissi að einhvers staðar voru erf- iðleikar var hún fyrst til að mæta og veita huggun. Ragga var hamhleypa til verka, rösk og sætti sig ekki við hangs. En að sama skapi gat hún stundum misst þolin- mæðina, t.d. við saumavélina og þá hljóp Stebbi gjarnan undir bagga. Stebbi tengda- pabbi var kletturinn hennar, yfirvegaður og gegnheill. Þau voru eins og jin og jang, ólík hjón að eðlisfari. Ragga missti mikið þegar hann lést haustið 2016, lífið glataði tilganginum og glampinn í augunum dofn- aði. Ragga var stálminnug á menn og atburði. Hún gat farið með Gunnarshólma eftir Jónas án þess að hika og mundi ótrú- legustu hluti. Ragga var ástrík og góð amma. Hún taldi aldrei eftir sér að passa fyrir okkur, þ.e.a.s. ef hún var ekki á vakt á Ljósheimum en þar vann hún í um 15 ár þar til hún varð sjö- tug. Nammiskúffan hennar ömmu á Engjaveginum var alltaf full, barnabörnunum til mikillar ánægju. Hún var mikil ungamamma og vildi helst hafa öll börnin sín undir vængnum, vernda þau og varðveita. Hún fylgdist með af miklum áhuga þegar þau flugu úr hreiðrinu eitt af öðru. En hreiðrið henn- ar Röggu tæmdist aldrei held- ur fylltist jafnóðum af litlum barnabörnum og langömmu- börnum sem hún tók undir vænginn sinn og sýndi sína ein- stöku hlýju og nærgætni. Komið er að kveðjustund. Ég sakna hlýja faðmlagsins hennar Röggu tengdamóður minnar, hlátursins, lífsgleðinn- ar og ekki síst vináttunnar. Um leið þakka ég fyrir að hafa fengið að vera henni samferða og eiga allar þessar dýrmætu minningar. Guð blessi minn- ingu Ragnheiðar Zóphónías- dóttur. Elín Kristbjörg Guðbrandsdóttir. Minningarvefur á mbl.is Minningar og andlát Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að- gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum. " 3,0'*2 ,5 (1 .''( *!!4&)#'/(5 *2 þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber (1 +-'%*2 $/ (15(5 /(/'4,/(5 *!!4&)#'/(5 ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina. www.mbl.is/andlát

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.