Morgunblaðið - 19.07.2021, Síða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. JÚLÍ 2021
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
UMFERÐAREYJAR
Sérlausnir fyrir sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki
Henta vel til að stýra umferð, þrengja
götur og aðskilja akbrautir.
Til eru margar tegundir af skiltum,
skiltabogum og tengistykkjum sem
passa á umferðareyjarnar.
„ÉG HNERRAÐI BARA – ÉG ÁTTI EKKI
VON Á AÐ ALLIR HLYPU ÚT.“
„HANN KOSTAÐI TÍUÞÚSUNDKALL EN HÚN
FÓR BARA TVISVAR Í HANN.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að skarta sínu allra
besta.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
OG NÚ „SUMARLEYFI
KÖNGULS JÓLAÁLFS …
KÖNGULL ER
EKKI SÁ ALLRA
GÁFAÐASTI
… Á SUÐUR-
SKAUTINU“
HEI! ÞAÐ ER
KALT HÉRNA!
OG Á MEÐAN
ÉG MAN … STOPP!
ÞÚ HEFUR EKKI GERT ANNAÐ
Í FIMMTÁN MÍNÚTUR EN AÐ
TELJA UPP ALLA GALLA MÍNA!
SORRÍ… SVONA
LENGI?
JA, TÍMINN LÍÐUR ALDEILIS
HRATT ÞEGAR MANNI FINNST
SKEMMTILEGT!
konu. Hún og Haukur hafa farið inn í
Veiðivötn á hverju ári síðan 1985.
„Við höfum alltaf verið mikið fyrir
alls konar útiveru og síðustu árin hef
ég mikið verið að ganga um landið,
sérstaklega upp á fjöll og finnst það
ótrúlega gaman. Ég fór á Horn-
strandir núna í júlí og var að koma
eftir að ganga Laugaveginn, og það
var algjörlega magnað.“
Fjölskylda
Eiginmaður Guðríðar er Haukur
Þór Haraldsson húsasmiður, f. 16.19.
1959. Foreldrar hans eru hjónin
Halldóra Þórhallsdóttir, f. 7.7. 1934,
starfaði við aðhlynningu á Hrafnistu
í Reykjavík, og Haraldur Sigmunds-
son, f. 21.4. 1928, d. 13.10. 1993, bók-
ari. Þau bjuggu í Reykjavík.
Börn Guðríðar og Hauks eru 1)
Guðjón, f. 15.9. 1985, kerfisstjóri á
Landspítala háskólasjúkrahúsi.
Maki hans er María Ágústsdóttir,
BA í kvikmyndafræðum og þjón-
ustufulltrúi hjá Orkuveitunni. Þau
eiga Guðríði Maríu, f. 17.10. 2015, og
Ágúst Þór, f. 25.2. 2018, og búa í
Reykjavík. 2) Sigríður, f. 4.11. 1991,
mannauðssérfræðingur hjá Alvotech
og í meistaranámi í forystu og
stjórnun – með áherslu á mannauðs-
stjórnun við Háskólann á Bifröst, í
sambúð með Andra Valgeirssyni
lögfræðingi og þau búa í Kópavogi.
3) Halldóra Björk, f. 29.12. 1997,
nemi í sálfræði við HÍ, í sambandi
með Ársæli Inga Guðjónssyni geisla-
fræðingi.
Systur Guðríðar eru: 1) Hafdís
Ebba, f. 12.5. 1968, framhaldsskóla-
kennari og búsett í Kópavogi, og 2)
Díana, f. 31.10. 1973, framhalds-
skólakennari búsett í Hafnarfirði.
Foreldrar Guðríðar eru hjónin
Guðjón Jónsson, f. 13.2. 1939, og Sig-
ríður Sigurðardóttir, f. 20.8. 1942.
Þau búa í Reykjavík.
Guðríður
Guðjónsdóttir
Sigríður Bjarnadóttir
húsfreyja á Læk í Flóa, Hraungerðishreppi., Árn.
Guðmundur Snorrason
bóndi, vegaverkstjóri og oddviti á
Læk í Flóa, Hraungerðishreppi., Árn.
Jakobína Guðríður
Guðmundsdóttir
húsmóðir og verkakona í Reykjavík
Sigurður Guðmundsson
símamaður í Reykjavík
Sigríður Sigurðardóttir
starfsmaður hjá Íslandspósti
og Laugardalsvelli í Reykjavík
Kristín Pétursdóttir
húsfreyja á Berserkjahrauni í
Helgafellssveit, Snæf.
Guðmundur Sigurðsson
bóndi á Berserkjahrauni í Helgafellssveit, Snæf.
Sigríður Ásbjörnsdóttir
húsfreyja að Efra Skarði í Leirársveit
Magnús Magnússon
bóndi að Efra-Skarði í Leirársveit
Guðríður Magnúsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Jón Guðjónsson
verkamaður í Reykjavík
Málfríður Halldórsdóttir
húsfreyja á Fossi á Akranesi
Guðjón Einarsson
bóndi í Fjósakoti í Innri-Akraneshreppi. Sjómaður á Fossi á Akranesi
Úr frændgarði Guðríðar Guðjónsdóttur
Guðjón Jónsson
húsasmiður hjá Íslenskum
aðalverktökum í Reykjavík og
á Keflavíkurflugvelli
Gunnar J. Straumland skrifar á
Boðnarmjöð: „Heimiliskött-
urinn Tígri hefur gaman af því að
slaka á í garðinum og horfa á fugla.
„Bara horfa“, segir hann og veifar
Fuglavísi með fallegum litmyndum
og fróðlegum upplýsingum um lífs-
hætti fugla. Í morgun var hann í ró-
legheitum að dást að syngjandi
músarrindli, malandi með sjálfum
sér, en… „þá kom steypiregn og
vatnið óx og óx „……“:
Mænandi á músabróðurinn
mjálmandi rauk hann óður inn,
en stoppaði að bragði
og stóískur sagði:
„Þetta er svo gott fyrir gróðurinn!“
Hér yrkir Gunnar „Dróttkveðna
jarðelda“ við lýsandi mynd þar sem
gýs úr gígnum í Geldingadölum:
Drynur Heljar druna
drýpur glóð á nípu
brennur kviku brandur
bleikur liðast reykur.
Geigvænlegur gígur
gleiður myndar hreiður
grjóteggja í grýtu
grárra nornahára.
Benedikt Jóhannsson vísar í
„Læknisráð frá Hjálmari Frey-
steins að sögn Ragnars Inga“:
Ef finnst þér að fjörið sé búið
og farsæld sé lífið þitt rúið,
tvær limrur á dag
þær laga þinn hag,
og fleiri ef fárið er snúið.
Það eru „breyttir tímar“ segir
Friðrik Steingrímsson:
Mannlíf vort er mikið gallað
menning heimtar nýjan sið,
áreitni nú er það kallað
sem áður hét að reyna við.
Eyjólfur Ó. Eyjólfsson yrkir limr-
una „HEIÐARHARM“:
Í stórhríð ég hraktist um haga
hræddur með galtóman maga.
Nú er friðsemdin blá
þegar fjalltófa smá
finnur þar bein til að naga.
Guðmundur Arnfinnsson yrkir
um fugla og tóu (Ferskeytt, odd-
hent):
Vappar lóa um völl og mó,
vellir spói svinnur.
Arkar tóa út með sjó,
æti nóg þar finnur.
Elta hana sá ég svan,
sem hann bana vildi,
á harða kani herti flan,
svo hann það span ei þyldi.
Gömul vísa í lokin:
Höldum gleði hátt á loft;
helst það seður gaman.
Þetta skeður ekki oft
að við kveðum saman.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Heimiliskötturinn
Tígri og refshalar