Morgunblaðið - 19.07.2021, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 19.07.2021, Qupperneq 27
bolta. Tvö smitanna eru rakin til þess smits sem greindist hjá skipu- leggjanda liðs á leikunum og það þriðja hjá keppanda Suður-Kóreu í ólympískum lyftingum. _ Milwaukee Bucks er komið í 3:2- forystu í úrslitaeinvígi sínu við Phoenix Suns í NBA-deildinni í körfu- knattleik eftir nauman 123:119-sigur í æsispennandi leik, þeim fimmta í einvíginu, í Phoenix síðustu nótt. Milwaukee nægir einn sigur í viðbót til að verða meistari. Giannis Ante- tokounmpo skoraði 32 stig fyrir Mil- waukee. _ Íslandsmeistarinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir hafnaði í 50. sæti á Gant Ladies Open-mótinu í Finnlandi um helgina. Mótið er hluti af Evr- ópumótaröðinni í golfi. Guðrún náði sér ekki almenni- lega á strik á fyrsta hring er hún lék á 77 högg- um en hún lék síð- ustu tvo hringina á 74 höggum og bætti stöðu sína. Hún lauk leik á 12 höggum yfir pari. _ Ragnhildur Kristinsdóttir úr Golf- klúbbi Reykjavíkur bar sigur úr být- um í Hvaleyrarbikarnum í golfi á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði í gær. Þetta er í annað sinn á þremur árum sem Ragnhildur vinnur mótið en hún gerði það einnig 2019. Hún lék 54 holur á samtals 218 höggum og var alls fimm höggum yfir pari. _ Atvinnukylfingarnir Haraldur Franklín Magnús og Guðmundur Ágúst Kristjánsson fengu báðir sjö fugla á lokahring á Euram Bank Open-golfmótinu í Ramsau í Aust- urríki í gær. Mótið er hluti af Áskor- endamótaröð Evrópu. Haraldur lauk leik á fimm höggum undir pari í 43. sæti og Guðmundur á þremur undir í 55. sæti. _ Íslenska kvennalandsliðið í hand- knattleik skipað leikmönnum 19 ára og yngri tryggði sér í gær fimmta sæti í B-deild Evrópumeistaramóts- ins með sigri á Norður-Makedóníu í vítakeppni, 32:30, en staðan eftir venjulegan leik- tíma var 28:28. Rakel Sara Elv- arsdóttir skoraði átta mörk fyrir Ís- land. _ Heimamenn í Japan og Frakkar undirbúa sig nú fyrir handknattleiksmót Ólympíu- leikanna í Tókýó og léku í gær vin- áttulandsleik. Skemmst er að segja frá því að mikið var skorað í honum þar sem Frakkar settu boltann 47 sinnum í netið hjá lærisveinum Dags Sigurðssonar í Japan. Japanir skor- uðu sjálfir 32 mörk og því ljóst að varnarleikur hefur ekki verið í miklu aðalhlutverki hjá liðunum. ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. JÚLÍ 2021 Svíþjóð Gautaborg – Mjällby ............................... 3:2 - Kolbeinn Sigþórsson lék fyrstu 88 mín- úturnar með Gautaborg, skoraði og lagði upp tvö mörk. Örebro – Hammarby............................... 0:2 - Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn með Hammarby. Norrköping – Häcken ............................. 0:1 - Ísak B. Jóhannesson lék allan leikinn með Norrköping, Ari Freyr Skúlason fyrstu 59 mínúturnar en Jóhannes Kristinn Bjarnason var ekki í leikmannahópnum. - Oskar Tor Sverrisson kom inn á sem varamaður í uppbótartíma hjá Häcken. Valgeir Lunddal Friðriksson lék ekki vegna meiðsla. Elfsborg – Östersund .............................. 3:0 - Hákon Rafn Valdimarsson var ekki í leikmannahópi Elfsborg. Staða efstu liða: Malmö 12 8 2 2 29:16 26 Elfsborg 12 7 1 4 18:12 22 Djurgården 10 6 3 1 16:6 21 AIK 11 6 2 3 15:11 20 Hammarby 11 5 3 3 22:15 18 Norrköping 11 5 2 4 14:10 17 Gautaborg 11 3 6 2 14:12 15 Häcken 11 4 3 4 16:15 15 Kalmar 11 3 5 3 11:13 14 B-deild: GAIS – Brage ........................................... 0:2 - Bjarni Mark Antonsson kom inn á sem varamaður á 74. mínútu hjá Brage. Västerås – Helsingborg .......................... 0:4 - Böðvar Böðvarsson lék allan leikinn með Helsingborg. Värnamo – Öster ..................................... 2:0 - Alex Þór Hauksson kom inn á sem vara- maður á 80. mínútu hjá Öster. Noregur Kristiansund – Sandefjord ..................... 2:0 - Brynjólfur Willumsson lék fyrstu 83 mínúturnar með Kristiansund. - Viðar Ari Jónsson lék allan leikinn með Sandefjord. Lilleström – Molde .................................. 1:1 - Björn Bergmann Sigurðarson lék ekki með Molde vegna meiðsla. Sarpsborg – Bodö/Glimt ........................ 2:2 - Emil Pálsson kom inn á í uppbótartíma hjá Sarpsborg. - Alfons Sampsted lék allan leikinn með Bodö/Glimt og lagði upp mark. Strömsgodset – Stabæk.......................... 2:1 - Ari Leifsson lék allan leikinn með Strömsgodset en Valdimar Þór Ingimund- arson sat allan tímann á bekknum. Tromsö – Rosenborg............................... 1:3 - Adam Örn Arnarson var allan tímann á bekknum hjá Tromsö. - Hólmar Örn Eyjólfsson var allan tímann á varamannabekk Rosenborg. Haugesund – Vålerenga ......................... 3:1 - Viðar Örn Kjartansson lék ekki með Vålerenga vegna meiðsla. Odd – Viking ............................................ 3:2 - Samúel Kári Friðjónsson lék fyrstu 58 mínúturnar með Viking. Staða efstu liða: Molde 14 9 3 2 34:13 30 Bodø/Glimt 14 7 4 3 29:15 25 Kristiansund 13 7 2 4 13:12 23 Rosenborg 14 6 4 4 26:19 22 Vålerenga 14 5 6 3 25:20 21 Odd 12 5 4 3 18:18 19 Haugesund 11 5 3 3 15:10 18 Lillestrøm 11 5 3 3 15:14 18 Viking 13 5 3 5 24:27 18 Strømsgodset 12 4 4 4 17:21 16 Arna-Björnar – Lyn ................................ 3:1 - Guðbjörg Gunnarsdóttir var allan tím- ann á bekknum hjá Arna-Björnar. B-deild: Aalesund – Jerv ....................................... 1:1 - Davíð Kristján Ólafsson lék allan leikinn með Aalesund. KNATTSPYRNA EM U19 kvenna B-deild í Norður-Makedóníu: Leikið um 5.-8. sæti: Ísland – Kósóvó .................................... 37:23 Leikið um 5. sæti: Ísland – Norður-Makedónía................ 32:30 Vináttulandsleikur karla Japan – Frakkland .............................. 32:47 - Dagur Sigurðsson þjálfar lið Japans. HANDBOLTI Úrslitakeppni NBA Fimmti úrslitaleikur: Phoenix – Milwaukee ....................... 119:123 _ Staðan er 3:2 fyrir Phoenix og sjötti leik- ur í Milwaukee aðfaranótt miðvikudags. KÖRFUBOLTI KNATTSPYRNA Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin: HS Orkuv.: Keflavík – Víkingur R...... 19.15 Domunsovav.: Leiknir R. – Stjarnan.. 19.15 Í KVÖLD! FÓTBOLTI Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is „Þetta gerðist hratt. Um leið og ég heyrði í þeim þá var þetta mjög spennandi og þeir sýndu mér mjög mikinn áhuga. Þetta er mjög spenn- andi verkefni,“ sagði Hjörtur Her- mannsson, landsliðsmaður í fótbolta, í samtali við Morgunblaðið. Hjörtur gerði í síðustu viku fjögurra ára samning við ítalska B-deildarfélagið Pisa. Hann kom til félagsins eftir fimm ár í herbúðum Bröndby í Dan- mörku þar sem hann varð danskur meistari á síðustu leiktíð. „Það var orðið ljóst að ég vildi breyta til og prófa eitthvað nýtt eftir fimm ár í Skandínavíu. Ég vildi láta reyna á það í Evrópu. Þeir sann- færðu mig um að það væri spenn- andi fyrir mig að koma til þeirra og þroskast sem leikmaður og hjálpa þeim í þeirra verkefni að þroskast sem lið. Þeir eru með nýjan eiganda og nýjan íþróttastjóra og það er mikið í þetta lagt. Þetta félag vill bæta sig mikið á næstu árum og sjá mig sem púsl í þeirri uppbyggingu,“ sagði Hjörtur. Pisa leikur heimaleiki sína á hin- um sögufræga Arena Garibaldi, en hann var byggður árið 1919 og því orðinn 102 ára gamall. Mikil upp- bygging á sér stað á bak við tjöldin hjá Pisa því nýtt æfingasvæði og nýr heimavöllur eiga að rísa á næstu ár- um. Liðið hafnaði í 14. sæti B- deildarinnar á síðustu leiktíð en ætl- ar sér stærri hluti. „Völlurinn er sögufrægur og flott- ur. Hann angar af sögu en á sama tíma er kominn tími á hann. Planið hjá félaginu er að byrja að byggja nýjan völl innan tveggja ára. Ég hef ekki séð aðstæður persónulega því ég fór beint í æfingaferð með liðinu. Ég hef bara séð æfingasvæðið á mynd og það er fínt, en þeir eru byrjaðir að byggja nýtt æfinga- svæði. Þetta er félag í mikilli upp- byggingu sem mikið er í lagt. Það er spennandi að fá að fylgja þeim í þeirri ferð.“ Hefði getað beðið lengur Hjörtur var samningslaus eftir síðustu leiktíð í Danmörku og hafði úr þónokkrum tilboðum úr að velja. Pisa var hins vegar spennandi kost- ur frá upphafi. „Það var af nógu að taka. Sum tilboð voru meira spenn- andi en önnur. Maður hefði alveg getað beðið lengur inni í félaga- skiptagluggann og það hefði eitt- hvað getað dottið, það er alltaf ef og hefði, en þegar þetta kom inn og eft- ir að ég ræddi við íþróttastjórann og þjálfarann fannst mér þetta mjög heillandi fyrir mig og mína fjöl- skyldu að koma hingað, hefja nýtt líf og taka þátt í nýju ævintýri í fótbolt- anum og reyna að skapa sér nafn á Ítalíu.“ Hjörtur er ekki eini íslenski leik- maðurinn sem skipti yfir í B- deildarfélag á Ítalíu í sumar því Brynjar Ingi Bjarnason og Þórir Jó- hann Helgason eru orðnir leikmenn Lecce. Árbæingurinn er spenntur fyrir að mæta þeim. „Íslendingar hafa alltaf haft gott orð á sér um alla Evrópu og við er- um eftirsóttir. Það virðist vera að- eins meira flæði hingað núna en hef- ur verið. Þetta eru átta tímar á milli í akstri svo ég sé lítið til þeirra utan vallar. Það verður gaman að mæta þeim í þessari deild og vonandi fá þeir að spila sem mest. Ég reikna sjálfur með að fá að spila mikið hér og vaxa sem leikmaður,“ sagði Hjörtur. Hjörtur er 26 ára gamall varnar- maður, uppalinn hjá Fylki, og lék síðan með PSV Eindhoven í Hol- landi og Gautaborg í Svíþjóð áður en hann gekk til liðs við Bröndby árið 2016. Hann hefur leikið 22 A- landsleiki, skorað í þeim eitt mark, og verið í byrjunarliði Íslands í fjór- um síðustu landsleikjum. Ætlar að skapa sér nafn á Ítalíu - Hjörtur Hermannsson er kominn til Pisa á Ítalíu - Mikil uppbygging í gangi AFP Ítalía Hjörtur Hermannsson er orðinn leikmaður Pisa á Ítalíu. Bandaríkjamaðurinn Collin Mori- kawa heldur áfram að fagna ótrú- legum árangri en hann varð í gær sigurvegari á The Open-risamótinu í golfi á Royal St. George’s- golfvellinum í Kent á Englandi. Suður-Afríkumaðurinn Louis Oosthuizen var í forystunni fyrstu þrjá dagana og hafði eins höggs forystu eftir þriðja hringinn í gær. Morikawa, sem er aðeins 24 ára, náði hins vegar að snúa taflinu við í gær og stendur því uppi sem sigur- vegari. Hann lék lokahringinn á 66 höggum, fjórum undir pari, og lauk keppni á alls 15 höggum undir pari. Hringina fjóra lék hann á 67, 64, 68 og svo 66 höggum. Bandaríkjamaðurinn Justin Spieth var annar á 13 höggum und- ir pari en Oosthuizen endaði jafn Spánverjanum Jon Rahm í 3.-4. sæti, báðir léku á 11 höggum undir pari. Morikawa hefur átt ótrúlegt ár. Hann vann sitt fyrsta risamót, PGA-meistaramótið, í ágúst á síð- asta ári í fyrstu tilraun. Þá var þetta í fyrsta sinn sem hann tekur þátt í The Open. Hann er fyrsti kylfingurinn í sögunni til að vinna tvö risamót í fyrstu tilraun. Vann annað stór- mótið í fyrstu tilraun AFP Risamót Collin Morikawa fagnar sigrinum á The Open í gær. Elísabet Rut Rúnarsdóttir úr ÍR stóð sig vel á EM 20 ára og yngri í frjálsíþróttum í Tallinn á laugardag þegar hún náði sjöunda sæti í úrslit- um sleggjukasts. Besta kast Elísa- betar Rutar var 60,87 metrar, sem er smávægileg bæting frá undan- úrslitunum þegar hún kastaði 60,61 metra. Elísabet Rut, sem er 18 ára gömul, á Íslandsmetið í sleggju- kasti fullorðinna. Það setti hún í apríl síðastliðnum á vetrarkastmóti í Laugardalnum þegar hún kastaði 64,39 metra. Ljósmynd/Þórir Tryggvason Tallinn Elísabet Rut Rúnarsdóttir náði fínum árangri í Tallinn á laugardag. Elísabet sjöunda á EM

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.