Morgunblaðið - 19.07.2021, Qupperneq 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. JÚLÍ 2021
Kvikmyndaunnendur og sérfræð-
ingar á Cannes-hátíðinni eru ýmsu
vanir enda flóra kvikmynda þar
gríðarleg. Hinum franska leikstjóra,
handritshöfundi og leikkonu Valérie
Lemercier tókst þó að koma þeim
allrækilega á óvart með kvikmynd-
inni Aline, sem byggist á ævi Celine
Dion. Lemercier leggur áherslu á að
hún taki sér hæfilega mikið skálda-
leyfi með því að láta söngkonuna í
myndinni heita Aline Dieu. Lemerc-
ier hefur áður gert Díönu prinsessu
svipuð skil á hvíta tjaldinu.
Þeir blaðamenn, sem voru við-
staddir sýningu myndarinnar í
Cannes síðastliðinn þriðjudag, virð-
ast vera sammála um eitt og það er
að þetta sé með furðulegustu kvik-
myndum sem þeir hafa séð.
57 ára í gervi fimm ára barns
Leikstjórinn sjálfur, hin 57 ára
Lemercier, leikur skálduðu Dion-
týpuna Aline Dieu og þykir takast
vel til enda nauðalík Dion af þeim
stillum að dæma sem birtar hafa
verið úr myndinni. Það sem vakið
hefur furðu er að leikkonan leikur
Aline þessa á öllum æviskeiðum.
Líka þegar Aline á að vera fimm ára.
Þetta er það fyrsta sem gagn-
rýnendur virðast reka augun í og
hamast við að lýsa þessu undarlega
leikaravali fyrir þeim sem ekki hafa
barið þessa óvenjulegu senu augum.
Aline er fimm ára og treður upp í
brúðkaupi eldra systkinis. Í fyrstu
er skotið aftan frá og virðist þá vera
um eðlilegt fimm ára gamalt barn að
ræða. En þegar myndavélin færir
sig fram fyrir barnið kemur í ljós að
þar blasir hin 57 ára Lemercier við í
tölvugerðri smækkaðri mynd og
barnið undarlegt sem því nemur.
Áhorfendur virðast flestir hafa verið
í losti yfir þessu óhugnanlega
fullorðinsbarni og það gefið tóninn
fyrir kvikmyndaupplifunina í heild.
Því næst er Aline orðin tólf ára og
nálgast því leikkonuna Lemercier
óðfluga í aldri. Eða þannig. Þegar
hér er komið sögu kynnist Aline um-
boðsmanninum Guy-Claude Kamar
(Sylvain Marcel), sem er byggður á
umboðsmanni Dion, René Angélil,
sem hún átti svo síðar eftir að gift-
ast. Hin 57 ára Lemercier er því,
þegar hér er komið sögu, í hlutverki
12 ára barns sem fellur fyrir hinum
fertuga Guy-Claude. Aldeilis ekkert
undarlegt þar á ferð.
Fyrri hluti myndarinnar fjallar að
mestu um þessi kynni Aline og um-
boðsmannsins, samband sem þróast
í ástarsamband þegar Aline er um
tvítugt. Enn leikur sú á sextugsaldri
stúlkuna. Eftir það er stiklað á stóru
í lífi hinnar fullorðnu Aline og þykir
mörkum farið heldur hratt yfir sögu.
„Nei, hún heitir Aline“
Lemercier er þekkt fyrir gaman-
myndir og kemur því ekki á óvart að
grínið sé aldrei langt undan, þó að
um dramamynd sé að ræða. Í einu
atriðinu ávarpar Guy-Claude Aline
til dæmis sem „Celine“ en móðir
hennar er fljót að leiðrétta þann mis-
skilning: „Nei, hún heitir Aline.“
Þetta þykir lýsandi fyrir húmorinn
sem einkennir myndina.
Celine Dion sjálf er enginn aðili að
málinu og virðist ekki hafa tjáð sig
um kvikmyndina. Leikstjórinn og
leikkonan Lemercier sagði í viðtali
við bandaríska fjölmiðilinn Variety
að franskur umboðsmaður söngkon-
unnar hefði gefið handritinu grænt
ljós en Dion hafi hins vegar hvorki
lesið handritið né séð myndina.
Óvenjuleg og eftirminnileg
Það virðist vera upp og ofan hvort
framleiðendum myndarinnar hafi
tekist að kaupa réttindin til þess að
hafa hin frægu lög Dion í myndinni.
„My Heart Will Go On“ er í það
minnsta á sínum stað sem gerði
þeim kleift að endurskapa eftir-
minnilegan flutning Dion á óskars-
verðlaunahátíðinni 1998. Sópraninn
Victoria Sio ljær Aline rödd sína og
þykir ná Dion ansi vel, þótt aðeins
vanti upp á krúsidúllurnar í radd-
beitingunni.
Blaðamaður New York Times
segist ekki geta skilið helminginn af
ákvörðunum leikstjórans en segir
myndina þeim mun eftirminnilegri.
Flestir sem skrifað hafa um mynd-
ina virðast sammála. Myndin sé afar
óvenjuleg en það passi Celine Dion
ágætlega enda sé hún þekkt fyrir að
vera nokkuð kynlegur kvistur með
húmorinn í lagi. Öðrum þykir mynd-
in afskaplega flöt og ekki í takt við
áhugaverðan feril Dion, svo skoðanir
eru greinilega skiptar. Allir eru þó
sammála um að Lemercier í gervi
fimm ára stúlku sé saga til næsta
bæjar. ragnheidurb@mbl.is
Eftirminnileg Franski leikstjórinn Valérie Lemercier kom áhorfendum
heldur betur á óvart í gervi Aline, persónu sem er byggð á Celine Dion.
Frönsk furðumynd um
Celine Dion á Cannes
- Gagnrýnendur furðu lostnir yfir kvikmyndinni Aline
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
„Á tímabili var þetta eins og alger
eyðimerkurganga. Við reyndum að
missa ekki sjónar á því hver við er-
um og hvað við stöndum fyrir,“ segir
Brynhildur Guðjónsdóttir borgar-
leikhússtjóri um kórónuveiru-
faraldurinn. Þremur vikum eftir að
hún tók við starfi sínu var starfsemi
leikhússins nánast í lamasessi vegna
heimsfaraldurs og samkomutak-
markana sem honum fylgdu.
„Covid var reiðarslag fyrir alla en
þetta var sviðslistum alveg sérlega
þungt,“ segir Brynhildur sem er
gestur í nýjasta þætti Dagmála.
Samspil sviðs og salar
Leikhúsið þrífst á því að taka á
móti fólki og því áttu samkomutak-
markanir afar illa við reksturinn.
„Leikhús er samspil þess sem ger-
ist á milli sviðs og salar. Það veit
enginn hvað þetta er, en það þrá allir
að beisla þetta. Það er vegna þess að
þarna mætumst við og þarna er
mannsandinn í sinni tærustu mynd,“
segir Brynhildur.
Hún er búin að vera í krísustjórn-
un nánast alveg síðan hún tók við en
nú horfir til betri vegar og eru metn-
aðarfull verk á dagskrá leikhússins
næsta haust.
„Við getum ekki beðið. Ég fæ al-
veg gæsahúð í puttana þegar ég tala
um þetta,“ segir Brynhildur spennt.
Spennandi leikár er í burðar-
liðnum og er m.a. sýningin Níu líf,
sem fjallar um líf Bubba Morthens
tónlistarmanns á dagskrá. Hún var
frumsýnd á leikárinu 2019 til 2020.
„Ég leyfi mér að fullyrða það að
aldrei í næstum 125 ára sögu Leik-
félags Reykjavíkur hafi stóra sýn-
ingin, sem er Níu líf, saga Bubba
Morthens, þurft að bíða heilt leikár,“
segir Brynhildur.
Tíminn í faraldrinum hefur verið
vel nýttur innan Borgarleikhússins,
að sögn Brynhildar. Búið er að stór-
bæta þjónustuna, laga til og betrum-
bæta veitingastaðinn. Þá var opn-
aður nýr bar í leikhúsinu á sama
tíma og óheimilt var að selja áfengi
þar. Sá mun eflaust koma að góðum
notum í vetur.
Morgunblaðið/Hallur Már
Stjóri „Við getum ekki beðið,“ segir Brynhildur um komandi leikhúsvetur.
Var reiðarslag
fyrir sviðslistir
- Bjartari tímar vonandi fram undan