Morgunblaðið - 24.07.2021, Blaðsíða 1
Erna Vala Arnar-dóttir veit fáttskemmtilegra enað spila verk eftirSchumann. 2
Hrukkur eruheiðursmerki
Schumanní uppáhaldi
LeikhúsmaðurinnViðar Eggertsson vill
nú taka að sér enn eitt hlutverkið en
hann hefur boðið sig fram til Alþingis
fyrir Samfylkinguna.Viðar þurfti að
berjast fyrir tilverurétti sínum fyrstu
ár ævinnar, en hann bjó á vöggustofu
vegna fátæktar móður sinnar. Nú
þegar hann er kominn á efri ár berst
hann áfram, nú fyrir eldri borgara og
hag þeirra.Viðar nýtur þess að stíga
inn á nýtt æviskeið og segir hrukkur
vera heiðursmerki lífsins. 12
25. JÚLÍ 2021SUNNUDAGUR
Mjólkurbúið áSelfossi slær í gegn
Peningarog pólitík
Veitingastaðir í Mjólkur-búinu á Selfossi hafa ekkiundan að elda ofan í gestiog gangandi. 20
TILBOÐ BEINT Í SÓL
Ólympíuleikarnir vorusettir á föstudag þrátt fyrir
óeiningu um hvort halda eigi
leikana í miðjum faraldri.10
L A U G A R D A G U R 2 4. J Ú L Í 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 172. tölublað . 109. árgangur .
HVAR & HVENÆR SEM ER
Vefsýningarsalurinn okkar er alltaf opinn!
www.hekla.is
HEKLA · Laugavegur 170 · Sími 590 5000 · www.hekla.is Í sumar er opið alla virka daga hjá HEKLU á Laugavegi og Kletthálsi en lokað er á laugardögum.
Škoda Enyaq iV
Verð frá 5.790.000 kr.
ÓLYMPÍUELDUR
TENDRAÐUR
Í TÓKÝÓ SPILMENN RÍKÍNÍS
GULLHETTA Á PLÖTU 34LEIKARNIR SETTIR 32-33
Gunnhildur Sif Oddsdóttir
Baldur S. Blöndal
Esther Hallsdóttir
Ríkisstjórn Íslands tók á fundi á
Egilsstöðum í gær ákvörðun um að
grípa til takmarkana innanlands í
viðleitni til að hefta nýja bylgju kór-
ónuveirunnar sem nú er í uppsigl-
ingu. Munu aðgerðirnar taka gildi á
miðnætti í kvöld. Þannig verða sam-
komutakmarkanir í gildi í þrjár vik-
ur hið minnsta sem banna fjölda-
samkomur fleiri en 200 manna, en
börn fædd 2016 og síðar teljast þar
ekki með. Þá mun eins metra regla
vera í gildi en börn fædd 2016 eru
sömuleiðis undanskilin þeirri reglu.
Grímuskylda í gildi
í sumum aðstæðum
Grímuskylda er tekin upp innan-
húss þar sem ekki er hægt að við-
halda fyrrnefndri fjarlægðarreglu.
Þótt meginreglan um fjöldatak-
markanir miðist við 200 manns, m.a.
í verslunarrými, mega veitingastað-
ir ekki bjóða fleiri en 100 inn fyrir
sínar dyr öðruvísi en að hólfaskipta
starfseminni. Þá verður veitinga-
stöðum gert að skrá gesti og vín-
veitingar skulu bornar fram til sitj-
andi gesta. Þá mega æfingar og
sviðslistasýningar ekki hafa fleiri en
100 á sviði í einu og slíkt hið sama
gildir um íþróttaæfingar og -keppn-
ir barna og fullorðinna.
Ljóst er að aðgerðir þessar munu
koma misharkalega niður á fólki.
Mestar virðast raskanir verða á
fyrirhuguðum útisamkomum. Þann-
ig hefur Þjóðhátíð í Vestmannaeyj-
um, sem haldin er um verslunar-
mannahelgi, verið slegin af og hið
sama má segja um bæjarhátíðina
Ein með öllu sem halda átti á Ak-
ureyri. Unglingalandsmót UMFÍ,
sem halda átti á Selfossi um sömu
helgi, er í uppnámi. Tónlistarhátíðin
Bræðslan á Borgarfirði eystri verð-
ur haldin en hápunktur hennar er á
morgun.
Forsvarsmenn Druslugöngunnar,
sem halda átti í dag, blésu viðburð-
inn hins vegar af í þeirri viðleitni að
„að sýna þá samfélagslegu ábyrgð
að gera það sem í okkar valdi stend-
ur til að koma í veg fyrir áframhald-
andi útbreiðslu smita,“ eins og það
var orðað í yfirlýsingu.
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, sagði á sam-
félagsmiðlum í gærkvöldi að hún
væri „döpur, svekkt og pirruð.“ Að-
gerðir stjórnvalda yllu henni gríð-
arlegum vonbrigðum. Segir hún auk
þess að sannfærandi rök skorti fyrir
þeim aðgerðum sem nú sé gripið til.
„Ef staðan er svona grafalvarleg,
eins og fullyrt er, af hverju tók
þetta þá ekki gildi á miðnætti í
kvöld? Af hverju er hátíðum og
djammi helgarinnar leyft að flæða
fram á miðnætti annað kvöld og
hvernig ætla stjórnvöld að stöðva
það nákvæmlega?“ Bendir hún þó á
að takmarkanirnar séu settar til
þriggja vikna og því sé ekki loku
fyrir það skotið að halda hátíðina
síðar á árinu.
Fæstir virðast veikjast
Í gærkvöldi staðfesti yfirlæknir á
Landspítalanum að af þeim 408 ein-
staklingum sem væru í eftirliti Co-
vid-göngudeildar þá væru 390 skil-
greindir „grænmerktir“ og væru
því með væg eða engin einkenni
sökum veirunnar. 18 eru „gulmerkt-
ir“ og því með aukin einkenni. Sé til-
lit tekið til þeirra þriggja sem liggja
á sjúkrahúsi vegna kórónuveirunn-
ar má því sjá að 95% þeirra sem eru
með virkt smit og greinst hafa eru
með lítil eða engin einkenni.
ÚTIHÁTÍÐIR BLÁSNAR AF
- Ríkisstjórnin grípur til að-
gerða innanlands gegn út-
breiðslu kórónuveirunnar
MKórónuveirufaraldur »2
Engan bilbug var að sjá á gestum í miðborg
Reykjavíkur undir miðnætti í gærkvöldi þrátt
fyrir yfirvofandi takmarkanir. Í kvöld taka gildi
takmarkanir sem gera vínveitingahúsum skylt
að slökkva ljósin á miðnætti og ekki má selja vín
eftir kl. 11.00. Því má ætla að þeir sem ætla að
halda uppteknum hætti við skemmtanahaldið
muni mæta fyrr í bæinn á komandi vikum en
verið hefur að undanförnu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skemmtanahaldi settar auknar skorður
- Bann lagt við fjöldasam-
komum í þrjár vikur þar sem
fleiri en 200 koma saman
- 95% smitaðra sem greinst
hafa í nýrri bylgju eru með
væg eða engin einkenni