Morgunblaðið - 24.07.2021, Qupperneq 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 2021
Hægindastóll
model 7227
Leður – Stærðir XS-XL
Verð frá 389.000,-
NJÓTTU
ÞESS AÐ SLAKA Á
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (með Visa / Euro) í allt að 6 mánuði.
Húsavík er stundum nefnd höfuð-
borg hvalaskoðunar í Evrópu. Í
Skjálfandaflóa er algengast að sjá
hnúfubak, hrefnur, hnýðinga og
hnísur. Jafnvel steypireyður,
stærsta dýr jarðar, kíkir stundum
við.
Á Húsavík eru þrjú hvalaskoð-
unarfyrirtæki; Norðursigling,
Gentle giants og Húsavík Advent-
ure. Í fyrrasumar dróst starfsemin
verulega saman vegna heimsfarald-
ursins. Þótt þetta sumar komist
ekki í hálfkvisti við 2019 þá er það
töluvert betra en 2020.
Mikið líf hefur verið á Húsavík
síðustu daga. Veitingastaðir eru
uppbókaðir, hillur verslana tómar
og hvalaskoðunarbátar barma-
fullir.
Hörður Sigurbjarnarson, eigandi
Norðursiglingar, segist hafa tekið á
móti 13.000 farþegum það sem af er
mánaðarins. Hlutfall Íslendinga er
15% en áður fyrr var það alltaf í
kringum 5%. Hann telur ferðaþjón-
ustuna vera að þróast þannig að Ís-
lendingar líti nú á landið sitt sem
álitlegan áfangastað fyrir sumar-
fríið.
Ferðamenn aftur farnir að sækja í hvalaskoðunarferðir frá Húsavík út á Skjálfandaflóa
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Breytt við-
horf Ís-
lendinga
Umsögn skipulagsfulltrúa liggur fyr-
ir í máli Vöku. Er þar mælt gegn því
að Vaka fái undanþágu til að halda
áfram með móttökustöð á Héðins-
götu 2. Engar frekari athugasemdir
eru gerðar við aðra þætti starfsem-
innar. Vaka missti fyrir skömmu
starfsleyfi sitt á Héðinsgötu 2.
Ástæðan var sú að í deiliskipulagi er
aðeins gert ráð fyrir léttum iðnaði á
svæðinu. Íbúar kærðu ákvörðun
Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, að
veita Vöku starfsleyfið, til úrskurð-
arnefndar umhverfis- og auðlinda-
mála. Var fallist á með íbúum að
starfsemi Vöku gæti ekki talist léttur
iðnaður í skilningi laganna.
Starfsemi Vöku er fjórþætt. Áður
var öll starfsemin á einu starfsleyfi
en nú hefur Vaka ákveðið að sækja
um fjögur starfsleyfi. Sótt er um sér-
stakt leyfi fyrir móttökustöð fyrir úr-
gang, annað vegna bílapartasölu,
þriðja fyrir bifreiða- og vélaverk-
stæði og það fjórða fyrir hjólbarða-
verkstæði.
Meðan beðið er eftir afgreiðslu
umsóknanna hefur Vaka óskað eftir
undanþágu frá ráðherra til að halda
starfsemi sinni áfram. Heilbrigðis-
ráðuneytið leggur þá fram umsögn
auk þess sem óskað var eftir umsögn
skipulagsfulltrúa, enda var starfs-
leyfið fellt úr gildi vegna skipulags-
legra athugasemda.
Í umsögn skipulagsfulltrúa kemur
fram að móttökustöð fyrir úrgang sé
ekki í samræmi við skipulagsskil-
mála. Aftur á móti telur skipulags-
fulltrúi ekki ástæðu til að gera at-
hugasemd við hin þrjú starfsleyfin
sem Vaka sækist eftir.
Íbúar eru ósáttir við þessa niður-
stöðu. Telja þeir ljóst, af greinagerð-
um Vöku hf. sem fylgja umsóknun-
um, að starfsemi bílapartasölu og
bifreiða- og vélaverkstæðis sé hluti af
úrvinnsluferli fyrirtækisins. Með því
að hafna leyfi um móttökustöð, en
gefa grænt ljós á hin þrjú starfsleyfin
sé í raun verið að leyfa fyrirtækinu að
starfa óbreytt áfram í Héðinsgötu.
Mælt gegn undanþágu fyrir Vöku
- Móttökustöð fyrir úrgang samræmist ekki deiliskipulagi - Íbúar telja að Vaka muni starfa óbreytt
Móttökustöð Íbúar vilja að fyrir-
tækið finni starfseminni annan stað.
ÁTVR hefur birt hvatningu til við-
skiptavina sinna um að vera snemma
á ferðinni, enda sé vikan fyrir versl-
unarmannahelgi ein annasamasta
vika ársins í Vínbúðunum.
Í fyrra seldust 786 þúsund lítrar
af áfengi í þeirri viku og tæplega 141
þúsund viðskiptavinir komu í Vín-
búðirnar. Það sem af er júlí hefur
sala í Vínbúðunum verið 0,5% meiri
en í júlí á síðasta ári. Að jafnaði hef-
ur sala undanfarnar vikur verið um
600 þúsund lítrar líkt og árið 2020.
Gera má ráð fyrir að júlí verði sölu-
hæsti mánuður ársins í Vínbúðunum
eins og í fyrra, segir í frétt á heima-
síðu ÁTVR.
Að jafnaði er föstudagurinn fyrir
verslunarmannahelgi einn af anna-
sömustu dögum ársins. Í fyrra seld-
ust 229 þúsund lítrar þann dag og
alls fengu um 38 þúsund viðskipta-
vinir þjónustu í Vínbúðunum. Flestir
koma á milli kl. 16 og 18 og þá þurfti
oft að grípa til þess ráðs að hleypa
viðskiptavinum inn í hollum.
„Fyrir þá sem vilja forðast bið og
langar biðraðir er gott að huga að
því að vera tímanlega. Gott ráð er að
kíkja við fyrri part vikunnar og fyrri
part dagsins,“ segir í fréttinni.
Í Vínbúðunum er opið samkvæmt
venju á föstudag og laugardag um
verslunarmannahelgi en lokað
sunnudag og mánudag, frídag versl-
unarmanna. sisi@mbl.is
ÁTVR undirbýr
annasama viku
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Annríki Stundum þarf að hleypa viðskiptavinum Vínbúðanna inn í hollum.