Morgunblaðið - 24.07.2021, Síða 16

Morgunblaðið - 24.07.2021, Síða 16
BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Sala á þúsundum fermetra af skrif- stofuhúsnæði við Hlemm gæti skap- að tækifæri fyrir fjárfesta til að inn- rétta íbúðir á eftirsóttu svæði. Þetta er mat Magnúsar Árna Skúlasonar, framkvæmdastjóra Reykjavík Economics. Ríkiskaup hafa óskað eftir tilboð- um í nokkrar húseignir við Hlemm (sjá teikninguna hér til hliðar) sem eru samtals um 8.200 fermetrar. Skal tekið fram að fleiri aðilar eiga eignarhluti í húsunum. Umræddar eignir hafa hér verið settar inn á teikningu af fyrirhuguðu Hlemmtorgi en lokað verður fyrir bílaumferð að Hlemmi. Með því verður til eitt stærsta torg miðborg- arinnar en ætlunin er að þar verði ýmis þjónusta í boði. Nýr og endurgerður Hlemmur var tekinn í notkun fyrir nokkrum misserum en þar er nú mathöll. Fram kom í ViðskiptaMogganum að fjárfestar hefðu keypt húsnæði hostelsins við Hlemm, á Laugavegi 105, fyrir 770 milljónir. Hyggjast þeir innrétta allt að 36 íbúðir. Samgöngur skipta máli Magnús Árni segir aðspurður að fjárfestar kunni að horfa til þess að Hlemmur verði borgarlínustöð og að reynslan ytra bendi til að samgöngu- miðstöðvar hækki fasteignaverð. Meðal annars af þeim sökum geti reynst hagkvæmt að breyta um- ræddu skrifstofuhúsnæði í íbúðir. Ávinningurinn fari þó eftir ástandi húsnæðisins og hversu miklu þarf að kosta í ný votrými og annað sem til þarf svo innrétta megi íbúðir. „Við gætum horft fram á sömu þróun við Hlemm og sjá má víðar í Reykjavík þessa dagana sem felst í umbreytingu á skrifstofuhúsnæði í íbúðir. Það væri tilvalin leið til að auka framboð á íbúðum og einnig til að þétta byggð,“ segir Magnús Árni. Þá bendir hann á að fjarvinna fær- ist í vöxt og að sú þróun kunni að draga úr þörf fyrir skrifstofuhús- næðið sem nú er komið í sölu. Þá séu skrifstofurnar komnar til ára sinna en kröfur um aðbúnað hafi breyst. Laugavegur 105 – hvítmálaða stórhýsið vestan við Hlemm – er töluvert hærri bygging en umrætt skrifstofuhúsnæði (sjá teikningu). Þá var gamla Búnaðarbankahúsið austan við Hlemm hækkað og því breytt í CenterHótel Miðgarð. Spurður hvort fjárfestar kunni að skoða möguleika á að byggja ofan á húsin bendir Magnús Árni á að byggja mætti ofan á þau inndregnar hæðir sem raski ekki götumynd. Talið berst næst að kaupverðinu fyrir húsnæði hostelsins sem var sem áður segir 770 milljónir eða um 317 þúsund krónur á fermetra. Getur reynst kostnaðarsöm Spurður hvort ríkið kunni að hafa þetta söluverð til hliðsjónar segir Magnús Árni það ekki sjálfgefið. Umbreytingin geti enda orðið kostn- aðarsamari en á gamla hostelinu. Hitt sé ljóst að ef íbúðir verði inn- réttaðar í þessu skrifstofuhúsnæði við Hlemm muni þær verða eftirsótt- ar vegna nálægðar við þjónustu. Þá bendir Magnús Árni á að upp- bygging Hlemmtorgs verði fram- hald af mikilli endurnýjun á svæðinu sem henti orðið betur fyrir íbúðir. Hverfisgatan hafi tekið stakkaskipt- um í kjölfar uppbyggingar og tvö CenterHótel verið opnuð hvort sínu megin við Hlemm. Um 350 íbúðir hafi verið byggðar á Hampiðjureitn- um og á Einholtsreitnum og um hundrað stúdentaíbúðir verið byggð- ar í Brautarholti. Þá séu samtals um 80 íbúðir áformaðar í Skipholti 1 og á GuðjónÓ-reitnum í Þverholti. Þessu til viðbótar má rifja upp áform Frímúrarareglunnar um hótel í Bríetartúni og uppbyggingu skrif- stofuturns á Höfðatorgi, ásamt því sem rætt hefur verið um að flytja lögregluna í nýjar höfuðstöðvar. Einnig er laus reitur á baklóð um- rædds skrifstofuhúsnæðis eftir að verkstæði brann til kaldra kola. Magnús Árni segir að þótt um- breyting á skrifstofuhúsnæði í íbúðir geti glætt Hlemmsvæðið lífi megi ekki fórna þeirri fjölbreytni í at- vinnu- og menningarlífi sem ein- kennt hafi miðborg Reykjavíkur. „Það má ekki fórna öllu undir hót- el og íbúðir heldur þarf að gæta þess að hafa blandaða byggð fyrir fólk á öllum aldri. Þetta gæti orðið mjög þéttbýlt svæði,“ segir Magnús Árni. Skapar tækifæri við Hlemmtorgið - Hagfræðingur segir fjárfesta kunna að sjá tækifæri í að breyta skrifstofuhúsnæði við Hlemm í íbúðir - Það sé tilvalin leið til að fjölga íbúðum - Mikil uppbygging er áformuð við fyrirhugað Hlemmtorg Eignir við Hlemm til sölu 4 3 1 2 Heimilisfang Til sölu er* m2 Hæð 4 Laugavegur 114 Öll eignin 2.291 Allar hæðir 3 Laugavegur 116 Matshluti 1 356 2. hæð Matshluti 2 768 3. hæð Matshluti 3 773 4. hæð 1 2 Rauðarárstígur 10 (Laugavegur 118b) Matshluti 2 2.565 1. hæð Matshluti 1 1.418 Aðrar hæðir Alls 8.171 RAUÐARÁRSTÍGUR SNORRABRAUT HV ER FI SG AT A LA UG AV EG UR *Fastanúmerum er hér sleppt til einföldunar. Heimild: Ríkiskaup. Mynd: Tillaga Mandaworks og DLD að nýju Hlemmtorgi 16 FRÉTTIR Viðskipt | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 2021 Mávabraut 1a, 230 Reykjanesbæ Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is 5 herbergja íbúð á 1. hæð í fjórbýli, ásamt bílskúr, á eftirsóttum stað í Keflavík. Skólar, íþróttamannvirki og þjónusta í göngufæri. Jóhannes Ellertsson Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677 Júlíus M Steinþórsson Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555 Verð 41.900.000 Birt stærð eignar er 123,7 m2 auk bílskúrs 23,95 m2 Matthew Evans var kjörinn nýr inn í stjórn Icelandair Group síðdegis í gær þegar hluthafafundur var hald- inn í félaginu. Tekur hann sæti Úlf- ars Steindórssonar, sem ákvað að víkja úr stjórninni, nú þegar fjárfest- ingarfyrirtækið Bain Capital, sem Matthew starfar hjá, hefur keypt 16,6% hlutafjár í Icelandair. Á fund- inum samþykktu hluthafar félagsins að gefið yrði út nýtt hlutafé sem Bain Capital kaupir fyrir 8,1 milljarð króna. Að loknum hluthafafundinum skipti ný stjórn með sér verkum og var Guðmundur Hafsteinsson, sem verið hefur meðstjórnandi í stjórn- inni, kjörinn formaður. Þá var Nina Jonsson kjörin varaformaður í stað Svöfu Grönfeldt sem gegnt hefur því hlutverki. Svafa situr áfram í stjórn- inni. Bain Capital er stærsti hluthafi Icelandair eftir kaupin en bréfin keypti félagið á genginu 1,43. Hluta- bréf Icelandair hækkuðu talsvert í viðskiptum gærdagsins, áður en hluthafafundurinn var haldinn. Hækkuðu bréfin um 5,6% og stóðu að loknum viðskiptum í genginu 1,51. Bréfin hafa gefið þó nokkuð eftir á síðustu dögum í kjölfar tíðinda af aukinni útbreiðslu Delta-afbrigðis kórónuveirunnar hér á landi og í ná- grannalöndunum. Bain Capital er nú langstærsti hluthafi Icelandair en næststærsti hluthafinn er Brú lífeyr- issjóður með 4,77% hlut. Þá á Lífeyr- issjóður starfsmanna ríkisins 3,98% og Gildi lífeyrissjóður er með 3,6% hlut. Morgunblaðið/Árni Sæberg Formaður Guðmundur Haf- steinsson tók sæti í stjórn 2020. Guðmundur nýr stjórnarformaður - Bain Capital orðinn stærsti hluthafi Icelandair

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.