Morgunblaðið - 24.07.2021, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 2021
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Ólympíu-
leikarnir
voru settir í
Tókýó í gær við all-
sérstakar aðstæður.
Leikunum hefur verið frestað um
heilt ár og eru því fimm ár síðan
þeir voru haldnir síðast.
Fyrirmyndin að leikunum er
tekin frá Grikkjum til forna.
Grísku borgríkin ákváðu á sínum
tíma að hefja sig yfir kryt,
flokkadrætti og átök og senda
sína fremstu menn til að etja
kappi í íþróttum.
Í þeim anda var efnt til nú-
tímaleikanna og við hæfi að þeir
fyrstu voru haldnir í Grikklandi.
Andi Ólympíuleikanna hefur
reyndar ekki alltaf verið hafður í
fyrirrúmi. Nasistar héldu Ól-
ympíuleika í Berlín 1936 þar sem
þeir hugðust básúna nasismann
og ógeðfelldar hugmyndir sínar
um yfirburði hvíta mannsins. Í
hugum flestra eru þeir Ólympíu-
leikar á okkar dögum þekktastir
fyrir að þar bauð spretthlaup-
arinn sigursæli Jesse Owens,
sem var svartur á hörund, Adolf
Hitler byrginn eftir að hafa unn-
ið til fernra gullverðlauna og sett
þrjú heimsmet.
Misnotkun lyfja hefur einnig
sett svip sinn á leikana. Eftir-
minnilegast er þegar sprett-
hlauparinn Ben Johnson vann
yfirburðasigur í 100 metra hlaupi
og var gripinn skömmu síðar
fyrir að hafa neytt steralyfja til
að bæta frammistöðu sína.
Rússar eru í banni vegna lyfja-
hneykslis, en sú málamiðlun var
gerð að rússneskir íþróttamenn
fái að keppa séu þeir hreinir og
komist þeir á pall verður hvorki
rússneski fáninn dreginn að húni
né þjóðsöngurinn leikinn.
Í hugum flestra hafa leikarnir
þó markað sér sess vegna ein-
stakra afreka, sem á þeim hafa
verið unnin. Á leikunum koma
einnig ýmsar íþróttir í sviðs-
ljósið, sem allajafna fer minna
fyrir í fjölmiðlum.
Margir eiga sér sín eftirlætis-
augnablik eins og þegar eþíópski
maraþonhlauparinn Abebe Bi-
kila reif af sér skóna á miðri leið
á Ólympíuleikunum í Róm og
kom fyrstur í mark berfættur eða
ótrúlegt langstökk Bobs Bea-
mons á leikunum í Mexíkóborg
1968 þegar hann virtist aldrei
ætla að lenda og setti heimsmet,
sem var ekki slegið fyrr en 1991.
Sumar þjóðir hafa verið sigur-
sælli en aðrar á Ólympíu-
leikunum og helst medalíufjöldi
yfirleitt í hendur við stærð
þeirra, þótt það sé engin trygg-
ing. Þær þjóðir, sem unnið hafa
til færri verðlauna, kunna
kannski líka betur að meta þau.
Ekki eru mörg verðlaun í skápn-
um hjá Íslendingum, þótt miklu
muni að hafa unnið til verðlauna í
hópíþrótt, en víst er að þeir Ís-
lendingar, sem komist hafa á
pall, eiga vísan sess hjá þjóðinni.
Fjórir munu keppa fyrir Ís-
lands hönd á leikunum í Tókýó og
fylgja þeim góðar óskir um vel-
gengni. Það eru færri keppendur
frá Íslandi en oftast áður. Nokkr-
ar ástæður eru fyrir
því. Vitaskuld mun-
ar um að handbolta-
landsliðinu tókst
ekki að tryggja sér
þátttökurétt. Þá hefur þröskuld-
urinn til að öðlast keppnisrétt
verið hækkaður í hinum ýmsu
greinum. Hjá einhverjum setja
meiðsli strik í reikninginn og þá
hefur mörgum mótum verið
frestað vegna kórónuveirunnar
og því hafa ekki verið sömu tæki-
færi fyrir íþróttamenn til að
keppa og komast á leikana.
Ólympíuleikarnir eru að þessu
sinni haldnir við undarlegar
kringumstæður. Eins og sást á
opnunarhátíðinni voru engir
áhorfendur og þannig mun það
verða á leikvöngum og í íþrótta-
höllum út leikana. Það verður
örugglega furðulegt fyrir
íþróttamenn að keppa fyrir tóm-
um stúkum risastórra íþrótta-
mannvirkja. Þeir munu sakna
hvatningarinnar af áhorfenda-
pöllum og gæti það torveldað ein-
hverjum að virkja keppnisskapið
þrátt fyrir vitneskju um að við-
burðirnir séu í beinni útsendingu
um allan heim.
Ákvörðunin um að halda Ól-
ympíuleikana í Tókýó var um-
deild í upphafi og hefur dregið úr
stuðningi við þá heima fyrir eftir
að faraldurinn braust út. Ekki
bætir úr skák að kostnaður við
framkvæmdir fór fram úr áætl-
unum, þótt ekki eigi það að koma
á óvart.
Þá hafa komið upp ýmis
hneykslismál í kringum undir-
búninginn, nú síðast daginn fyrir
opnunarhátíðina þegar stjórn-
andi hennar var látinn fara vegna
ósmekklegs brandara um helför-
ina fyrir rúmum tveimur áratug-
um.
Þegar leikunum var frestað í
fyrra sögðu gestgjafarnir að þeg-
ar þeir loks yrðu haldnir myndu
þeir verða til marks um að mað-
urinn hefði unnið sigur á kórónu-
veirufaraldrinum og hægt yrði að
horfa björtum augum til fram-
tíðar.
Það stóðst ekki. Í Tókýó ríkir
nú neyðarástand vegna veir-
unnar og í fréttaskeytum segir,
að leikarnir séu haldnir í spenni-
treyju smitvarna. Íþróttamenn,
fylgdarlið þeirra og fjölmiðla-
menn þurfa að fara í daglegar
veiruskimanir.
Hafa ber þó í huga að það hef-
ur gerst áður að heimamenn, sem
hafi verið ósáttir við að halda
ætti Ólympíuleika í túnfætinum
hjá sér, hafi snúist þegar blásið
var til leiks og eftir á hugsað til
þeirra með stolti.
Nú hefur verið blásið til leiks í
Tókýó. Sviðljósið mun beinast
frá veirunni og umgjörðinni að
íþróttamönnunum og enn á ný
má búast við miklu sjónarspili og
afrekum sem aðeins verður hægt
að gapa yfir. Eftir Ólympíu-
leikana í Tókýó árið 1964 fannst
Japönum, sem þeir hefðu stimpl-
að sig rækilega inn hjá heims-
byggðinni og sýnt hvers þeir
væru megnugir. Hver veit nema
sú verði aftur raunin nú.
Leikar hafnir í Tókýó
ári á eftir áætlun}Ólympíuleikarnir
E
inu sinni lásu nánast allir unnendur
frelsis, vestræns samstarfs og
frjálsra viðskipta Morgunblaðið
sér til gagns og ánægju. Nú virð-
ist blaðið vera farið að veikjast í
trúnni á þessi ágætu gildi, sem er skaði, því ein-
mitt þessi þrenning hefur orðið Íslendingum til
mestrar gæfu undanfarna öld. Rifjum því upp
fyrir lesendum hvað frjáls markaður er:
„Á frjálsum markaði ákvarðast verð af kaup-
endum og seljendum á opnum og gegnsæjum
markaði. Lögmál framboðs og eftirspurnar
gilda, án allrar íhlutunar stjórnvalda. Enginn
nýtur forréttinda, leyndra upplýsinga, einok-
unar eða tilbúins skorts.“
Í lögum um stjórn fiskveiða segir: „Nytja-
stofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku
þjóðarinnar.“ Allt sanngjarnt fólk skilur þetta
svo að þjóðin megi ráðstafa þessari sameign og arðurinn
eigi að nýtast almenningi. Þó verður að hafa þann fyrirvara
á að við sem nú lifum og hrærumst á Íslandi verðum að
skila þessari eign jafngóðri eða betri til komandi kynslóða.
Þegar úthlutað er takmörkuðum gæðum býður það spill-
ingu heim. Pólitíkusar ívilna útgerðarmönnum sem
kveinka sér undan háum gjöldum til samfélagsins í formi
auðlindagjalds.
Þegar rætt er um sanngjarna greiðslu fyrir auðlindina
vilja flestir stjórnmálamenn styðja lítilmagnana í útgerð-
inni sem græða ekki nema tæpan milljarð á viku hverri.
Hluti af hagnaðinum er af kvóta sem útgerðarmenn leigja
frá sér á margföldu því sýndarverði sem þeir greiða í formi
auðlindagjalds.
Markmið heiðarlegs fólks er að þjóðin fái
sanngjarnt gjald fyrir auðlindina. Vinir út-
gerðarmanna heimta að stjórnmálamenn
ákveði afgjaldið. Fræðimenn deila um það
sem þeir kalla auðlindarentu sem er illreikn-
anlegt hugtak. Enda þarf ekkert að reikna
það ef markaðurinn ræður.
Þeir sem aðhyllast frjálsa samkeppni vilja
að framboð og eftirspurn ákveði auðlinda-
gjöld. Hversu hátt verður markaðsgjaldið,
spyrja sumir? Það er samt ekki aðalatriðið
heldur sanngirnin. Frjáls samkeppni mun
ráða niðurstöðunni.
Forsjárhyggjuflokkur eins og VG er auð-
vitað tortrygginn í garð frjáls markaðar.
Sumir urðu samt hissa á því að flokkurinn
hafði forystu um að lækka auðlindagjaldið,
en líklega kemur kjósendum flokksins fátt á
óvart eftir kjörtímabilið. Sjálfstæðisflokkurinn, sem áður
var brjóstvörn frjáls markaðar og víðsýni í landinu, hefur
aftur á móti kúvent í þágu hagsmuna hinna fáu. Örfáir
flokksmenn hafa bent á þetta óréttlæti, en þær raddir
þagna óðum. Nefna má Vilhjálm Bjarnason, sem áður var
samviska þingflokksins, og Gunnar Birgisson, sem lést nú
í vor.
Kvótakerfið er ágæt leið til þess að úthluta takmörk-
uðum gæðum, en auðlindagjaldið hefur verið málamynda-
gjald og Alþingi til hneisu. Þjóðin á skilið breytingar og
hún á skilið stjórnmálamenn sem þora að standa með
henni.
Benedikt
Jóhannesson
Pistill
Raddir skynseminnar þagna
Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
FRÉTTASKÝRING
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
G
osið í Geldingadölum hefur
greinilega farið minnk-
andi, að mati Jarðvísinda-
stofnunar Háskóla Ís-
lands. „Gosvirknin breyttist í lok júní.
Þá tók virknin að sveiflast milli tíma-
bila með öflugu hraunrennsli og síðan
kyrrum tímabilum á milli. Mæling-
arnar nú sýna að hraunflæði hefur
dregist verulega saman,“ segir í frétt
stofnunarinnar.
Þorvaldur Þórðarson, prófessor
í eldfjallafræði við Háskóla Íslands,
telur óvarlegt að fullyrða á þessu stigi
að verulega hafi dregið úr eldgosinu.
Hann bendir á að talsverð óná-
kvæmni sé í mælingum á vexti
hraunsins og þar með kvikufram-
leiðni. M.a. vanti góða mælingu á því
hvað hafi gerst undanfarið utan
Meradala. Hann segir ljóst að yfir-
borð hraunsins í Meradölum hafi
hækkað um meira en sex metra á síð-
ustu þremur vikum. Því hafi minnst
sex milljónir rúmmetra bæst við
hraunið þar. Sé því dreift á tímabilið
frá 26. júní til 19. júlí hafi flæðið í
Meradali verið um 3 m3/sek. Það sem
umfram er hafi þá leitað annað. Þor-
valdur bendir einnig á að tölur um
rúmmál hraunsins gefi ekki rétta
mynd af kvikuflæðinu.
„Það er mikið af holrúmum í
hrauninu og þetta gæti verið 20-25%
ofmat. Innan við 500 metra frá gíg-
unum getur verið mikið um skel-
hraun. Þá myndast þunn skel yfir
holrýmum sem geta verið allt að 80%
af rúmmáli hraunsins. Þessi þunna
skel getur verið 3-4 sentimetra þykk
og holrúm þar undir. Það er stór-
hættulegt að ganga á þessu því skelin
getur brotnað undan manni,“ sagði
Þorvaldur. „Ef við tökum allt inn í
myndina tel ég að það geti verið 30-
40% óvissa í þessum hraunmæl-
ingum.“
Gosið að verða fullorðið
Í dag eru 127 dagar frá því gosið
hófst. „Þetta er orðið dálítið fullorðið
núna hvað aldurinn varðar,“ segir
Þorvaldur. „Það er kominn ákveðinn
stöðugleiki og mynstur í virknina þó
að það séu frávik. Við fáum hrinur og
í þeim eru púlsarnir stundum svo tíð-
ir að við sjáum þá ekki. Þetta verður
þá eins og sígos. Mér þykir líklegt að
hrinurnar taki meiri kviku út úr kerf-
inu en kemur inn í það á sama tíma og
því þurfi kerfið að fylla aftur á á milli
hrinanna.“
Talið er að undir gígopinu sé
hraungeymir. Hugsanlega eru geym-
arnir tveir og annar þeirra í hrauninu
sjálfu. Þessi geymar geta haft áhrif á
hegðun gígsins, að mati Þorvaldar.
Hann segir að verið sé að skipuleggja
tilraunir til að skýra púlsavirknina í
gosinu. Það sé ljóst að kvikustróka-
virknin sé keyrð áfram af stórum gas-
bólum sem streyma upp með ákveðnu
millibili. Annað flæði færi svo mikið af
kviku út í hraunið óháð gasstreyminu.
Hraunið telst enn vera mjög lítið,
bæði að rúmmáli og flatarmáli.
„Ef gosið myndi stoppa núna þá
væri þetta með minni hraunum á
Reykjanesskaga,“ segir Þorvaldur.
„Þetta er því enn lítið gos. Við þurfum
að horfa nokkur ár fram í tímann,
miðað við þessa framleiðni, ef þessi
hraunbreiða á að verða sæmilega
stór. Þetta verður ekki að dyngju
fyrr en hraunið verður mun
stærra. En þetta hefur öll ein-
kenni sem við teljum að þurfi til að
búa til dyngju.“
Haldi gosið áfram nógu
lengi, í nokkur ár, muni
hraun renna í allar áttir
og enda með því að
breiðast nokkuð jafnt
í kringum gíginn.
Talsverð óvissa í
hraunmælingunum
Stærð hraunsins frá eldgosinu í
Geldingadölum var metin eftir
loftmyndum sem teknar voru 19.
júlí þegar 122 dagar voru frá
byrjun eldgossins. Einnig var
stuðst við gögn úr Pleiades-
gervitunglinu frá 2. júlí, sam-
kvæmt frétt frá Jarðvísinda-
stofnun Háskóla Íslands.
Landlíkön sem byggðu á þess-
um mælingum voru borin saman
við gögn frá 26. júní. Meðal-
hraunrennslið 26. júní til 2. júlí
var rúmlega 10 m3/sek en 2.-19.
júlí var það nokkru minna eða 7,5
m3/sek.
Hraunið er um 96 milljónir
rúmmetra og flatarmálið
tæplega 4 km2. Flat-
armálið jókst lítið síðustu
þrjár vikurnar. Þá rann
hraunið að
mestu í Mera-
dali og í brekk-
ur vestan
þeirra.
Hraunflæði
virðist minna
GELDINGADALAGOSIÐ
Þorvaldur
Þórðarson
Eldgosið í Geldingadölum 19. mars - 19. júlí
Flatarmál hrauns, km2
3,96
19. júlí var flatarmál
hraunsins um
3,96 ferkílómetrar
sem er á við
um 566 Laugardalsvelli
Heimild: Jarðvísindastofnun HÍ, Náttúru-
fræðistofnun Íslands og Landmælingar Íslands
Ný gosop
Hraunflæði, m3/s
7,5
Hraunrennslið er um
7,5 rúmmetrar á
sekúndu
Rennslið svarar til
að vera um 30
vörubílshlöss á mínútu
mars apríl maí júní júlí
mars apríl maí júní júlí