Morgunblaðið - 24.07.2021, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 24.07.2021, Qupperneq 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 2021 ✝ Guðrún fædd- ist á Brekku í Þingeyrarhreppi í Dýrafirði 1. mars 1938. Hún lést á Tjörn, dvalar- heimili aldraðra á Þingeyri, 14. júlí 2021. Guðrún var dótt- ir hjónanna Stein- þórs Árnasonar frá Brekku, bónda og sjómanns, f. 22. ágúst 1902, en hann féll í skotárás á línuveið- arann Fróða 10. mars 1941, og Ragnheiðar Stefánsdóttur hús- freyju, f. 27. október 1911, d. 28. nóvember 1985. Systkini Guð- rúnar eru Steinþór Sverrir, vél- stjóri á Ísafirði, sem lést af slys- förum 16. október 2008, f. 9. júlí 1939, Gunnar Steinþór, raf- virkjameistari á Ísafirði, nú bú- settur í Mosfellsbæ, f. 25. ágúst 1941, og Sigríður Kristín Lýðs- dóttir, bankastarfsmaður í Reykjavík, f. 28. nóvember 1951. Guðrún giftist 28. júní 1964 Hallgrími Sveinssyni, f. 28. júní 1940, d. 16. febrúar 2020, fyrr- verandi skólastjóra á Þingeyri, staðarhaldara á Hrafnseyri og bókaútgefanda Vestfirska for- lagsins. Foreldrar hans voru Hanna Kristín Guðlaugsdóttir húsfreyja, f. 25. september 1911 á Snældubeins- stöðum í Reykholts- dal, Borgarfirði, d. 1997, og Sveinn Jónsson húsasmið- ur, f. 24. apríl 1885 frá Sauðtúni í Fljótshlíð, d. 1957. Guðrún og Hall- grímur voru barn- laus. Guðrún útskrifaðist úr Hús- mæðraskóla Reykjavíkur 1957 og starfaði sem matráðskona m.a. á forsetasetrinu á Bessa- stöðum og Héraðsskólanum á Núpi. Guðrún og Hallgrímur voru bændur og staðarhaldarar á Hrafnseyri við Arnarfjörð, fæðingarstað Jóns Sigurðssonar forseta, í rúm 40 ár frá 1964 til 2005, og sáu um vörslu og um- hirðu staðarins fyrir hönd Hrafnseyrarnefndar. Guðrún var í sóknarnefnd Hrafnseyrar- kirkju. Einnig var hún með fjárbúskap á Brekku í Dýrafirði í mörg ár eftir búskaparlok á Hrafnseyri. Útför Guðrúnar verður gerð frá Þingeyrarkirkju í dag, 24. júlí 2021, og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku Gulla mín, Minningarnar eru svo ótal- margar. Öll árin á Hrafnseyri og svo á Brekku, vorin í sauðburð- inum og æðarvarpinu, heyskap og smalamennsku, þar sem við deildum bæði sorg og gleði. Fyrir rúmu ári hrundi tilvera þín er þú misstir klettinn í lífi þínu er Hallgrímur okkar lést mjög skyndilega og reyndist það þér ofraun en þú varst þá fyrir orðin heilsuveil. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að vera með þér og tekið þátt í umönnun þinni síðastliðna tvo mánuði á hjúkrun- arheimilinu Tjörn á Þingeyri en þar eyddir þú síðasta ævikvöld- inu. Þú ferð varlega yfir vaðið á leiðinni heim og guð fylgi þér Gunna mín, sagðir þú gjarnan er ég kvaddi þig við vaktlok. Ég bið guð að fylgja þér hjart- að mitt og þakka þér fyrir allt sem þú hefur kennt mér og deilt með mér og fjölskyldu minni gegnum lífið. Þín nafna Guðrún Steinþórsdóttir (yngri). Þegar komið er norður yfir Hrafnseyrarheiði liggur þjóðleið- in ofan við túnið á hinu forna býli Brekku í Brekkudal í Þingeyrar- hreppi. Þar bjuggu búi á önd- verðri öldinni sem leið hjónin Árni Guðmundsson, stýrimaður frá Ánanaustum í Reykjavík, og Guðrún Margrét Júlía Steinþórs- dóttir, klæðskeri frá Brekku. Þarna var tvíbýlt og bjuggu á móti þeim Árna og Guðrúnu hjónin Soffía Ásgeirsdóttir frá Bolungarvík og Andrés Guð- mundsson frá Brekku og voru þau Guðrún og Andrés hálfsyst- kinabörn. Börn Árna og Guðrúnar voru fimm: Guðmunda Ágústa, hús- freyja á Þingeyri, faðir hennar var Jón Jóhannsson sjómaður þar; Steinþór, bóndi á Brekku, faðir Guðrúnar, sem hér er minnst; Gunnar skipstjóri á Brekku; Gyða Ólafía, kjólameist- ari og annar eigandi Parísartísk- unnar í Reykjavík; og yngst var Áslaug húsfreyja í Þorbergshúsi á Þingeyri. 11. mars 1941 varð sá hörm- ungaratburður að þýskur kafbát- ur réðst á línuveiðarann Fróða ÍS 454 frá Þingeyri um 200 sjómílur suðaustur af Vestmannaeyjum. Í skothríðinni sem stóð með hléum í fulla klukkustund féllu fimm skipverjar: Steinþór, faðir Guð- rúnar, Gunnar skipstjóri, föður- bróðir hennar, Guðmundur móð- urbróðir hennar frá Hólum í Þingeyrarhreppi, Gísli, bróðir Andrésar á Brekku og Sigurður V. Jörundsson stýrimaður frá Hrísey. Dótturdóttir Árna og Guðrún- ar, þá á fjórða árinu, minnist þess er síra Sigurður Z. Gíslason á Þingeyri gekk heim túnið á Brekku að flytja fólkinu þessa sorgarfregn. Og árin líða. Guðrún gekk að eiga góðan dreng, Hallgrím, kennara og skólastjóra á Þing- eyri, Sveinsson, bónda á Hrafns- eyri og Brekku. Þau hjón voru staðarhaldarar á Hrafnseyri í rúm 40 ár og buðu ævinlega upp á myndarlegt kirkjukaffi eftir embætti hjá hinum ógleymanlega síra Stefáni sæla Eggertssyni, sóknarpresti á Þingeyri. Mat prestur Guðrúnu enda mikils, en þótti að vísu sá ljóður á ráði henn- ar, að hún skyldi einlægt þurfa að bardúsa í kokkhúsinu rétt á með- an hann væri að syngja messuna. Þótt Guðrún væri viðbrigða- gestrisin og ynni góðan beina hverjum sem að garði bar, hafði enda starfað fyrir innan stokk hjá Ásgeiri forseta á Bessastöðum, frænda sínum af Vigurætt, hélt hún samt þeim sið fyrri húsfreyja í landinu að setjast ekki sjálf til borðs, heldur stóð hún og horfði þögul og alvarleg í bragði á það sem fram fór. Svo segir í Landnámabók, að Grélöðu hinni írsku, konu Ánar rauðfelds, þess er bú gerði á Eyri við Arnarfjörð, hafi þótt þar hun- angsilmur úr grasi. Undir það mun Guðrún Steinþórsdóttir hafa tekið heils hugar. Hún var fædd- ur bóndi, sem kallað er; þekkti hverja kind og hafði þessa var- færnu hönd sem grípur mjúklega um hornið á ánni neðst svo að brotni ekki; natin vökukona æð- arvarps; verksígjörn með af- brigðum að hverju sem gekk og stórgjöful. Í mikilli þökk og bæn er Guð- rún Steinþórsdóttir kært kvödd. Guð gefi frið yfir legstað hennar og blessun yfir endurfundi henn- ar við þau, sem á undan henni eru farin af þessum heimi. Guð blessi minningu hennar og ástvinina alla. Gunnar Björnsson, pastor emeritus. Guðrún Steinþórsdóttir ✝ Þórunn Egils- dóttir fæddist í Reykjavík 23. nóv- ember 1964. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 9. júlí 2021. Foreldrar henn- ar eru Egill Ás- grímsson, f. 1.4. 1943, og Sigríður Lúthersdóttir, f. 28.4. 1939. Bróðir Þórunnar er Egill Örn Egilsson, f. 31.8. 1966, sambýlis- kona hans er Tiffany Staton. Eiginmaður Þórunnar er Frið- björn Haukur Guðmundsson, f. 21.4. 1946. Foreldrar hans voru Guðmundur Jónsson og Guðlaug Valgerður Friðbjarnardóttir. Börn Þórunnar og Hauks eru 1) Kristjana Louise Friðbjarn- ardóttir, f. 24.10. 1989,sambýlis- maður hennar Axel Örn Svein- björnsson. 2) Guðmundur Friðbjarnarson, f. 28.11. 1990, kvæntur Guðrúnu Helgu Ágústs- dóttur. Börn þeirra eru Anna Lísa og Alma Þórunn. 3) Hekla Karen Friðbjarnardóttir, f. 25.6. 2004. Þórunn gekk í Verslunarskóla Íslands, undi sér þar vel og var lagsstörfum og átti að baki setu í stjórn Kvenfélagsins Lind- arinnar, félagsmálanefnd Vopnafjarðarhrepps, stjórn Menntasjóðs Lindarinnar, or- lofsnefnd húsmæðra á Austur- landi, stjórn Sambands sveitar- félaga á Austurlandi, sveitastjórnarráði og miðstjórn Framsóknarflokksins, ráð- gjafanefnd Jöfnunarsjóðs sveit- arfélaga og hreindýraráði. Vorið 2013 var Þórunn kjörin á Alþingi fyrir Framsóknar- flokkinn. Hún sat í forsætisnefnd Alþings frá árinu 2015 þar til hún vék af þingi vegna veikinda árið 2019, þar af var hún 2. vara- forseti 2015-2016, 1. varaforseti 2016-2017, 5. varaforseti 2017 og 4. varaforseti 2017-2019. Þórunn var formaður þingflokks Fram- sóknarflokksins frá árinu 2015. Á Alþingi sat Þórunn í atvinnu- veganefnd 2013-2016, velferð- arnefnd 2013-2015, allsherjar- og menntamálanefnd 2016-2017 og 2019-2020, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, kjörbréfanefnd og í Íslandsdeild Vestnorræna ráðs- ins frá árinu 2017 til dánardags. Þórunn var formaður Íslands- deildar NATO-þingsins 2013- 2016 og formaður samgöngu- ráðs frá 2017 til dánardags. Útförin fer fram frá Vopna- fjarðarkirkju í dag, 24. júlí 2021, klukkan 14. hún formaður Mál- fundafélags VÍ árin 1983-1984. Hún út- skrifaðist sem stúd- ent vorið 1984 og hélt síðar það haust austur til Vopna- fjarðar til að starfa sem kennari um skamman tíma. Þegar kennara- verkfall skall á sama ár réð Þórunn sig í sláturhúsið á Vopnafirði. Þar kynntust hún og Haukur fyrst. Um vorið gerðist Þórunn kaupakona á Hauksstöðum í Vesturárdal á heimili Hauks og felldu þau hugi saman skömmu síðar. Þau giftu sig þann 27.6. 1987. Þórunn kenndi og sinnti bú- störfum áfram og útskrifaðist með B.Ed.-gráðu frá Kenn- araháskóla Íslands árið 1999. Hún starfaði sem skólastjóri árin 2005-2008 og sem verkefnastjóri hjá Þekkingarneti Austurlands, nú Austurbrú, árin 2008-2013. Þórunn sat í sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps 2010-2014 og var oddviti sveitarstjórnar til ársins 2013. Þórunn sinnti fjölmörgum fé- Það var mikið áfall að fá fréttir af því að hún Þórunn væri látin, við trúðum hreinlega ekki að þetta væri bara búið. Þrátt fyrir áföll og mótlæti í veikindunum var hún alltaf svo bjartsýn, mað- ur var svo sannfærður um að þetta myndi hafast og hún myndi standa uppi sem sigurvegari í þessari baráttu. En greinilega var henni ætlað eitthvað annað, svo mikið er víst. Ég var svo heppin að fá að kynnast Þórunni þegar ég giftist frænda hennar og varð okkur vel til vina. Við heimsóttum þau Hauk oft þegar við vorum á Aust- urlandi og mikið var gott að koma til þeirra og taka þátt í heyskap eða hjálpa til við matseld og bakstur því það var alltaf margt um manninn á Hauksstöðum. Ég á eina uppskrift að eplaköku sem er í miklu uppáhaldi og mun ég hér eftir nefna hana Eplaköku Þórunnar. Mér er ofarlega í huga síðasta samtalið sem ég átti við Þórunni en það var núna í júní þegar ég hringdi og bað hana um að taka upp myndband með kveðju til frænda síns þar sem hún kæmist ekki í afmælið hans því hún yrði að sinna öðrum verkefnum, eins og hún orðaði það. Þetta mynd- band er mér mjög kært og það var svo gaman hvað hún tók því hátíðlega og gerði þetta snilldar- vel enda var hún yfirfrænka og hún bar þann titil svo sannarlega með sóma. Við eigum eftir að sakna þín mikið elsku Þórunn okkar og við verðum dugleg að rifja upp góðar minningar um bestu yfirfrænk- una. Ég bið að heilsa honum pabba því hann fór í sumarlandið sama dag og þú og ég er sannfærð um að það verður mest gaman hjá ykkur tveim. Guð veri með þér, elsku Þór- unn okkar. Elsku Haukur og fjölskylda, við vottum ykkur innilega samúð og biðjum guð að styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Kolbrún og Sigmar. 30 ár, því laust niður eins og eldingu þegar ég fékk fréttirnar: í ár voru 30 ár síðan ég kom á Hauksstaði fyrst, í maí 1991. Við kynntumst haustið áður, nánar tiltekið í nóvember 1990, þú þá komin á steypirinn og ég hafði aldrei séð ófrískari konu. Amma Sirrý (eins og ég kallaði hana upp frá því) hafði nefnt við pabba að von væri á þér í bæinn til að eignast þitt annað barn, en það vantaði stúlku til að fara út með Kristjönu, þá ársgamla, á róló meðan á dvölinni stæði. Ég man eftir að hafa heyrt á tal mömmu og pabba: Sigga systir væri kjörin í verkefnið en hún var eitthvað upptekin. Svo ég sagðist alveg vera til í að leika við þetta barn sem kæmi utan af landi til að bíða fæðingar yngra systkinis. Eftir það voru uppvaxtarár mín meitluð í stein. Við nutum sam- vista í nokkra daga og þegar ég fékk fréttirnar um að blessað barnið væri fætt varð ég hálfvon- svikin, það þýddi að þessar nýju vinkonur mínar voru á heimferð. Það gladdi mig því mikið við kveðjustund okkar þegar þú bauðst mér í heimsókn næstkom- andi sumar og upphófst mikil bið. Eftir einhver samtöl fullorðna fólksins varð úr að ég fór úr höf- uðstaðnum með flugi til Akureyr- ar og þar beið ég ein, 11 ára göm- ul, tengiflugs til Vopnafjarðar til tveggja vikna heimsóknar og barnapössunar. Röð atvika og ef- laust sú staðreynd hversu vel við náðum saman varð til þess að dvölin lengdist upp í tæplega fjögurra mánaða dvöl og heim þurfti á endanum að draga mig með töngum. Fjögur sumur tókst þú á móti mér á Vopnafjarðarflugvelli og í einni vetrarheimsókn meðan á kennaraverkfalli stóð. Ég skrif- aði þér reglulega og lýsti sigrum og ósigrum, hugur minn var alltaf fyrir austan og ég taldi niður vetrarmánuðina, fékk leyfi snemma frá skóla að vori og und- anþágu til að mæta eftir réttir að hausti. Á unglingsárunum bauðst mér „alvöru“ vinna í Reykjavík og þar með lauk sumardvöl minni og sambandið minnkaði en í hvert sinn er ég leitaði til þín, þrátt fyr- ir að langt liði á milli, varstu alltaf til staðar eins og klettur og hvatt- ir mig áfram. Að vera trú sjálfri mér og láta ekki aðra stjórna til- finningum mínum. Verkvit og vinnusemi lögðuð þið Haukur inn hjá mér og ég er þakklát fyrir það. Tíminn bíður ekki eftir neinum og nú upplifi ég að hafa sólundað tíma mínum undanfarin ár. Ekki verið í nægu sambandi en ég veit alveg hvað þú hefðist sagt mér, að lifa í núinu og bæta svo bara úr því. Við glötum ekki gleðinni Þór- unn mín, en það er margt sem við munum sakna. Síðsumars ætlaði ég að renna til þín austur í Hauksstaði og ganga með þér út að brú eins og við gerðum með vagninn í maí 1991 og ég vonaði að jafnvel næðum við lengra. Nú held ég í Hauksstaði í fyrsta sinn án þess að hitta þig en þess í stað hitti ég allt fólkið sem elskar þig og við minnumst gleðinnar með þér á ólíkum stað og ólíkum tím- um. Að hafa fengið að alast upp á Hauksstöðum hjá þér og Hauki var mín helsta gæfa í lífinu. Elsku Haukur, Kristjana og Guðmundur og kæru amma Sirrý og afi Egill, megi æðri máttar- völd leiða ykkur í gegnum þessa erfiðu tíma. Ykkar Kristín Sigmarsdóttir. Þórunn elsku vinkona okkar var ljósberi í gegnum lífið. Hún bar hag samferðamanna sinna ávallt fyrir brjósti. Hún bjó yfir mikilli samkennd og hafði þann eiginleika að létta byrðar ann- arra og gleðja. Þetta mátti glöggt sjá í allri hennar nálgun í leik og starfi. Stórt skarð er hoggið í vin- kvennahópinn. Við kynntumst í Kvennaskólanum í Reykjavík, þá 13 ára gamlar, og tókum okkur nafnið „Kvenfélagið“. Þórunn var gjarnan miðpunktur alls kyns uppátækja og smitaði alla með gleði sinni. Hún var traust vin- kona, hrein og bein, var ekki að flækja hlutina. Það sem við ekki vissum þá, þegar við vorum að byrja að hlæja saman og kynnast í Kvennó var að þessi vináttu- og tryggðarbönd myndu lifa alla tíð. Fjarlægðir skildu oft að en þegar við hittumst var eins og við hefð- um hist í gær, hreinskiptnar og einlægar. Við deildum gleði og sorg, en umfram allt vorum við sterk kvennaheild. Þórunn átti marga liti í sínum kassa. Þórunn var skíðakona, barn náttúrunnar og bóndi, kenn- ari, skólastjóri og oddviti, kven- félagskona og þingkona, besta vinkona sem hægt var að hugsa sér og umfram allt var hún fjöl- skyldukona. Í öllum þessum hlut- verkum í gegnum lífið var eftir henni tekið. Hún valdi alltaf bjarta liti. Hún var atorkusöm og setti mark sitt á menn og málefni, gerði allt af hugsjón og heiðar- leika. Fjölskyldan skipaði heiðurs- sess í lífi hennar. Æskuheimilið hjá Sirrý og Agli og bróður henn- ar Agli Erni í Hvassaleitinu ein- kenndist af ást og virðingu. Faðmur þeirra var stór og náði líka til okkar, vinkvenna Þórunn- ar. Stóð heimilið okkur alltaf opið og höfum við verið sem hluti af fjölskyldunni. Þegar Þórunn stofnaði sína fjölskyldu á Hauksstöðum í Vopnafirði ásamt elskulegum eiginmanni, Friðbirni Hauki, byggði hún á þeim sterka grunni og góðu gildum sem hún fékk í veganesti. Heimili þeirra á Hauksstöðum ber þess glöggt merki, eins og sjá má hjá börnum þeirra, Kristjönu Louise, Guð- mundi og Heklu Karen, sem standa saman eins og klettur. Einurð, hlýja, samheldni og styrkur einkenna fjölskyldulífið. Þórunn var mikið náttúrubarn. Eftir stúdentspróf frá Verzlunar- skólanum gerðist hún kennari á Vopnafirði. Engan grunaði að þarna ætti hún eftir að eiga heima allt sitt líf en Þórunn fylgdi alltaf hjartanu og fór óhrædd sín- ar eigin leiðir. Hún naut íslenskr- ar náttúru í faðmi fjölskyldunnar á Hauksstöðum. Vissi hún ekkert betra en að gróðursetja tré, standa með veiðistöng í miðri á, hengja út þvott og ganga á Rjúpnafell. Í náttúruna sótti hún innblástur og andlegan styrk. Við erum eilíflega þakklátar fyrir samfylgdina með okkar elsku vinkonu í nær 45 ár. Við sendum fjölskyldunni innilegustu samúðarkveðjur. Minning um góða vinkonu lifir. Við munum ávallt halda í heiðri hina gullnu reglu Þórunnar: „Glötum ekki gleðinni.“ Ljósið hennar mun fylgja okk- ur áfram. Erna Milunka Kojic, Gyða Björnsdóttir, Hrund Hafsteinsdóttir, Ingunn Hansdóttir og Valgerður Rúnarsdóttir. Þær eru ófáar minningarnar um þig elsku Þórunn mín sem hafa flogið í gegnum huga minn undanfarna daga. Allt frá því ég kom fyrst til að vera í sveit á Hauksstöðum 12 ára gamall til síðustu heimsóknar núna í maí. Um leið og ég er þakklátur fyr- ir allar okkar samverustundir þá syrgi ég þær sem aldrei verða. Ég mun ávallt minnast þín með væntumþykju, gleði í hjarta og með þakklæti fyrir að hafa alltaf verið til staðar fyrir mig og börn- in mín. Þó að kali heitur hver, hylji dali jökull ber, steinar tali og allt hvað er, aldrei skal ég gleyma þér. (Vatnsenda-Rósa) Þinn heimalningur, Arnar Már. „Vinur er sá sem skilur fortíð þína, trúir á framtíð þína og tekur þér eins og þú ert í dag.“ (Orðskviður 24:17.) Þannig var Þórunn vinkona okkar sem við kveðjum nú. Hún barðist og barðist og barðist, en svo kom að endalokum. Það var svo líkt henni að kveðja þegar sveitin okkar er hvað fegurst. Sumardagar og –nætur renna saman í eina dásemdardýrð. Það hjálpar okkur að takast á við sorgina, söknuðurinn kemur seinna. Við vinkonur og vinir Þór- unnar getum þakkað forlögunum að hafa eignast vináttu hennar. Það var allt stórt í fari hennar; hjartað, sálin, ástúðin, umhyggj- an, hjálpsemin. Að vinna með Þórunni var allt- af skemmtilegt, hvort sem unnið var að málningu réttarinnar með pensilinn á lofti, sveiflandi bens- ínsöginni við trjásnyrtingu í kirkjugarði, í stórveislum eða eld- húsinu í Kaupvangi. Alltaf stafaði af henni framtakssemin, dugnað- urinn og glaðlyndið. Kvenfélagið Lindin hefur misst virkan félaga, sveitarfélagið einn af sínum bestu þegnum. En sárastur er þó missir Hauks, Heklu, Guðmundar, Kristjönu og fjölskyldna, foreldra og bróður Þórunnar. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra. Ágústa Þorkelsdóttir. Komið er að kveðjustund. Það er með mikilli sorg og trega sem ég sest niður, drep niður penna Þórunn Egilsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.