Morgunblaðið - 24.07.2021, Síða 31
DÆGRADVÖL 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 2021
. up.is
Úrval útiljósa
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG FÉKK HANA Í PÓKERLEIK. ÉG VAR
MEÐ TVÆR ÁTTUR EN HINN VAR MEÐ ÞRJÁ
GOSA.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að senda honum
textaskilaboð.
MUNDU ÞAÐ AÐ EKKI ERU ALLAR
GJAFIR EITTHVAÐ SEM ÞÚ
HEFUR BEÐIÐ UM…
ÞAÐ SKIPTIRÖLLU MÁLI AÐ
VERA KURTEISOG ÞAKKA
FYRIR GJÖFINA
JÆJA, ERTU
ÁNÆGÐUR MEÐ
TAÐBJÖLLUNA?
JÁ, KÆRAR
ÞAKKIR!
BEST AÐ HASKA SÉR HEIM! EF
ÉG ER SEINN MUN HELGA HAFA
ÁHYGGJUR AF ÞVÍ HVORT ÉG
HAFI SÆRST Í BARDAGA!
EN ÞÁ FÆ ÉG KANNSKI
INNILEGRA FAÐMLAG ÞEGAR ÉG
KEM HEIM!
„ENGAR ÁHYGGJUR – VIÐ ERUM
TILBÚNIR Í SLAGINN.“
módel 44, og ég er búinn að gera
hann upp og fer oft á rúnt á honum
hérna með barnabörnin.“
Fjölskylda
Eiginkona Kristins Jóns er Þor-
björg Alexandersdóttir, fv. skrif-
stofustjóri, f. 13.12. 1941, og þau búa
á Rifi á Snæfellsnesi. Foreldrar Þor-
bjargar eru hjónin Alexander Guð-
bjartsson, f. 5.3. 1906, d. 21.4. 1968,
og Kristjana Bjarnadóttir, f. 10.11.
1908, d. 21.11. 1982. Börn Kristins
Jóns og Þorbjargar eru 1) Bergþór,
f. 28.3. 1964, d. 4.7. 1971; 2) Erla, f.
5.7. 1965, viðskiptafræðingur, gift
Erni Tryggva Johnsen verkfræð-
ingi; 3) Kristjana, f. 21.6. 1969, lyfja-
fræðingur, gift Magnúsi Ragnari
Guðmundssyni lyfjafræðingi; 4)
Bergþóra, f. 3.10. 1972, verkfræð-
ingur, gift Kristni Steini Trausta-
syni rafiðnfræðingi; 5) Halldór, f.
15.4. 1975, útgerðarstjóri, kvæntur
Írisi Ösp Hreinsdóttur húsfrú og 6)
Alexander Friðþjófur, f. 2.4. 1976,
framkvæmdastjóri, kvæntur Írisi
Ósk Jóhannsdóttur gæðastjóra.
Barnabörnin eru orðin 18 og lang-
afabörnin tvö. Systkini Kristins Jóns
eru 1) Ester Úranía póstafgreiðslu-
kona, f. 11.10. 1933, bjó lengst á Rifi
en er nú í Reykjavík; 2) Sævar skip-
stjóri, f. 30.10. 1936, býr á Rifi og 3)
Svanheiður Ólöf verkakona, f. 8.9.
1939, d. 30.10. 2020. Fósturbræður
Kristins Jóns eru Sæmundur Krist-
jánsson, leiðsögumaður á Rifi, f.
24.8. 1943, og Hafsteinn Björnsson,
vélstjóri á Rifi, f. 19.5. 1949.
Foreldrar Kristins Jóns eru hjón-
in Friðþjófur Guðmundsson útvegs-
bóndi, f. 27.10. 1904, d. 3.9. 1987, og
Halldóra G. Kristleifsdóttir húsfrú,
f. 27.11. 1912, d. 8.6. 1999. Þau
bjuggu á Rifi á Snæfellsnesi.
Kristinn Jón
Friðþjófsson
Kristrún Birgitta Oddsdóttir
húsfreyja í Holti í Fróðárhreppi
Árni Árnason
bóndi í Nýlendu í Fróðárhreppi, síðar í
Holti í Fróðársókn, Snæf.
Soffía Guðrún Árnadóttir
húsfreyja í Efri-Hrísum í Fróðárhreppi
Kristleifur Jónatanson
bóndi í Efri-Hrísum í Fróðárhreppi
Halldóra Guðríður
Kristleifsdóttir
húsfrú á Rifi
Halldóra Daníelsdóttir
húsfreyja á Mýrum í Eyrarsveit
Jónatan Jónsson
bóndi á Mýrum í Eyrarsveit
Jóhanna Sveinbjörnsdóttir
húsfreyja í Undirtúnum við
Helgafell í Helgafellssveit
Jón Oddsson
bóndi, Undirtúnum við Helgafell í
Helgafellssveit
Jófríður Jónsdóttir
húsfreyja á Rifi
Guðmundur Guðmundsson
útvegsbóndi á Rifi
Guðbjörg Stefánsdóttir
húsfreyja, Ólafsey, síðar ekkja á Ósi,
Narfeyrarsókn, Snæf.
Guðmundur Björnsson
bóndi í Ólafsey, Snæf., síðar húsbóndi á Ósi,
Narfeyrarsókn, Snæf.
Úr frændgarði Kristins Jóns Friðþjófssonar
Friðþjófur Baldur
Guðmundsson
útvegsbóndi á Rifi
Gátan er sem endranær eftir
Guðmund Arnfinnsson:
Kornungur hann kallast má.
Kenndur er við skugga sá.
Síst á kvennafar hann fór.
Frægum syngur hann í kór.
„Þá er það lausnin þessa vikuna,“
segir Helgi R. Einarsson:
Skondinn skríkir sveinn.
Skugga-Sveinn var stór.
Sveinn án svanna er hreinn.
Sveinar í drengjakór.
Eysteinn Pétursson segir, að
svona verði þetta núna:
Sveinbarn gamalt ekki er.
Aldrei Skugga-Sveinn var hér.
Sveinn hreinn konu sarð ei neina.
Svo er kór í Vín með sveina.
Guðmundur skýrir gátuna þann-
ig:
Sveinn er piltur ungur einn.
Útlagi var Skugga-Sveinn.
Ei sveinn við konu á fjörur fór,
Frægur er sveina Vínarkór.
Þá er limra:
Kokkurinn Sveinn er nú sálaður,
og sagt er, að hann yrði brjálaður
í fyrragær
og yrði ær,
af því að hann var kokkálaður.
Og síðan ný gáta eftir Guðmund:
Það er heillandi hásumarblíða,
að hádegi tekur að líða,
í morgun ég gekk útı́garði
og gátan varð til fyrr en varði:
Ég er ljósgjafi og lýsi upp veginn.
Ég er leiður í dag, segir peyinn.
Ég talinn er mannfýla mesta.
Ég er Móri og segi til gesta.
Helgi R. Einarsson lét limruna
„Nútíminn“ fljóta með lausn sinni á
gátunni:
Táningar símana tala’ í
tísta stöðugt og mala’ í
suður í Súdan,
Sandgerði’ og Bútan,
Bretlandseyjum og Balí.
Nú er veiran að hrjá okkur en
fyrir 100 árum og vel það var skól-
um í Reykjavík lokað vegna inflú-
ensu. Páll Ólafsson kvað:
Ósóminn er orðinn ber,
þó yfir hann sé mokað.
Svínastían opin er
en öllum skólum lokað.
Sigurður Ingimundarson orti:
Vinirnir mér vísa á bug
ég verð að láta nægja
að dragast burt með döprum hug
og drepast milli bæja.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Veit ég það Sveinki