Morgunblaðið - 24.07.2021, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 24.07.2021, Qupperneq 37
Fyrsta plata Ólafs Kram, sigurvegara Músíktilrauna, er gríðarhressandi og sveitin sjálf eins og bylmingsgustur í gegn- um íslenskt tónlistarlíf. Passið ykkur bara! TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Ég vissi varla hvert ég ætlaði þeg- ar ég sá Ólaf Kram leika á Músík- tilraunum. Það þarf eitthvað mikið að koma til ef sveitin atarna fer ekki með sigur af hólmi hugsaði ég. Í blaði þessu, er ég skrifaði um undanúrslitin, notaði ég orð eins og framúrskarandi, frumlegt, ástríðu- fullt, leitandi og hrífandi og um úrslitaatið skrifaði ég m.a.: „Ólafur Kram steig ekki feilspor … Tónlist- in er dásamleg … Textarnir frá- bærir, úthugsaðir og með skemmti- legum hendingum. Spilamennska örugg, samhent og allir meðlimir syngjandi.“ Já, ég hreifst eins og svo margir. Þarna kom svo margt sam- an sem hitti okkur öll í hjartastað. Fyrir stuttu kom svo út sex laga plata, nefrennsli/kossaflens, sem reyndar var tekin upp síðasta haust. Sveitin var þá skipuð Iðunni Gígju Kristjánsdóttur (hljómborð og söngur), Guðnýju Margréti Eyjólfs (bassi og söngur), Birgittu Björg Guðmarsdóttur (trompet og söngur), Eydísi Kvaran (gítar og söngur) og Öldu Særós Bóasdóttur (trommur). Platan var tekin upp í æfingaskúr sveitarinnar (Stúdíó Frakkland) þar sem upptökumenn voru Sævar Andri Sigurðarson og Auðunn Orri Sigurvinsson. Sævar hefur nú leyst Öldu af á trommu- settinu en að öðru leyti er hljóm- sveitarskipanin hin sama. Lifandi, lifandi, alveg sprelllifandi… Fögnuður Ólafur Kram, eins og sveitin er skipuð á plötunni nefrennsli/kossaflens. Gáskinn og gleðin sem maður sá í magnaðri framkomu sveitar- innar á Tilraununum skilar sér vel. Það er víða leitað fanga í tónlist- inni, sveitir eins og Grýlurnar, Kol- rassa krókríðandi, Dúkkulísur, Slits, Raincoats og Dolly Mixture koma óneitanlega upp í hugann en um leið er sterk vísun í íslenska tónlist frá áttunda áratugnum, hvort sem það er meðvitað eður ei. Kammerpopparar eins og Melchior og Diabolus in Musica en þó eink- um Spilverkið. Ég mun aldrei gleyma því hvernig Iðunn hljóm- borðsleikari beitti sér á undan- úrslitakvöldinu, söng sem andsetin væri og manni varð eiginlega ekki um sel. Steig fram, kinnroðalaust, og gólaði glæsilega yfir salinn eins og ekkert væri sjálfsagðara. Magn- að! Gott dæmi um þessi áhrif eru í hinu stórkostlega lokalagi „Hor- gemlingur“. Ég hugsa um Risaeðl- una og Afródítu, „költ“-band sem er hvað þekktast fyrir lagið „Taktu mig Karíus“ (á safnsnældunni Strump, 1990). Ólafur Kram er beinlínis hættulegur í þessu til- tekna lagi. Söngurinn er svakaleg- ur – manni rennur kalt vatn milli skinns og hörunds – eitthvað svo lifandi, kraftmikill og sniðugur. Hér er gólað og gargað á milli snilldarlegra textahendinga og lagasmíðin hlýðir engum reglum, það er hægt á og hraðað og allt gengur það fullkomlega upp. „Mik- ið er gott að vera til“ er sungið og hressilega ýjað að því að sé kannski ekki svo gott. Platan byrj- ar hins vegar á laginu „ómægad ég elska þig“ þar sem segir: „Ástin er svo mikil subba/Hún tekur aldrei til eftir sig/Og Nietzsche sagði að ástin væri dauð/En hann hitti aldr- ei neinn eins og þig.“ Þvílík snilld! Er hægt að fara fram á mikið meira! Annað er eftir þessu og þetta er bara svo hressandi eitt- hvað. Alvörutextar og -hugmyndir, tilfinnanleg ástríða og óbilandi hug- rekki. Ólafur Kram er á blússandi siglingu og Iðunn staðfesti við pistilritara í gegnum tölvupóst að verið væri að vinna í meira efni enda þessi plata meira en hálfs árs gömul að telja og sum lögin jafnvel eldri. Ég freistaðist líka til að spyrja hana út í textana, sem eru á kjarnyrtri litríkri íslensku. Svaraði hún þessu til: „Við höfum alltaf lagt mikið upp úr því að skrifa á íslensku og höfum bara miklu meira gaman af því að vinna með t.d. myndlíkingar, óalgeng orð og svo framvegis, frekar en að hafa þetta of einfalt (ekki að það sé neitt að því).“ Svo ég dragi þetta saman, þetta er bara dásamlegt, allt saman (afsakið æsinginn og stóryrðin … eða nei, ég ætla ekki að afsaka það!). Eða eins og segir í lagi Ólafs Hauks Símonarsonar: „…ég líð engum skunkum að troða mér í staðlað mót./Ég er lifandi, lifandi, alveg sprelllifandi!“ » Annað er eftir þessu og þetta er bara svo hressandi eitthvað. Alvörutextar og -hugmyndir, tilfinn- anleg ástríða og óbilandi hugrekki. MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 2021 Systrasamlagið, Mengi og Smekkleysa taka höndum saman með Sumarborginni og efna til Óðinsflæðis á Óðinsgötu og Óðinstorgi í dag, laugardag, frá hádegi og fram á kvöld. Dagskráin hefst kl. 12 með fjölskyldujóga undir leiðsögn Íslenskra seiðkvenna, en kl. 13 leika þær á gong og skálar á Óðinstorgi. Í framhaldinu verður boðið upp á tónlist, en fram koma, í þessari röð: Benni Hemm og hljómsveit, DJ sóley, DJ Flugvél og geimskip, DJ Sley, DJ Stína Ágústsdóttir og DJ FM Belfast. Óðinsflæði með jóga og tónlist í dag Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir Heiðskýrt nefnist myndlistarsýn- ing sem Kristín Reynisdóttir opn- ar í Einkasafninu í Eyjafjarðar- sveit í dag, laugardag, kl. 14. Kristín sýnir þar ný verk sem hún hefur unnið inn í umhverfið í og við Einkasafnið að undanförnu. Sýningarstjóri er Aðalsteinn Þórs- son. „Sumarið 2020 hófst sýning- arröð listafólks sem hefur verið boðið til dvalar í safninu og sýnt afrakstur vinnu sinnar í safnhús- inu og umhverfis það,“ segir í til- kynningu frá safninu, en sýning Kristínar er fimmta sýning þess- ara sumarlistamanna. „Kristín hefur frá miðjum níunda áratugnum verið atkvæða- mikill myndlistamaður, með marg- ar einkasýningar á sínu nafni auk þess að hafa átt verk á fjölmörg- um samsýningum, bæði hér heima og erlendis. Hún lauk námi frá Akademie der Bildenden kunste í Düsseldorf í Þýskalandi 1989, eftir að hafa lokið námi við Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Verk Kristínar eru gjarnan innsetn- ingar í rými, sem gera hvort tveggja; að ávarpa þann sérstaka stað sem þau eru sett inn í og velta upp sammannlegum þáttum með tilvísanir í upplifanir og til- finningar.“ Sýningin er opin þessa og næstu helgi milli kl. 14 og 17. Kristín sýnir Heiðskýrt í Einkasafninu Speglun Kristín Reynisdóttir í spegli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.