Fiskifréttir


Fiskifréttir - 28.09.1990, Page 7

Fiskifréttir - 28.09.1990, Page 7
föstudagur 28. september 7 Velheppnuð sjávarútvegssýning — sýningargestir voru færri en „betri“ 11.500 gestir sóttu íslensku sjávarútvegssýninguna 1990 í Laug- ardaishöll, sem lauk um síðustu helgi. Það er talsvert færra en á síðustu sýningu en hana skoðuðu 15.500 manns. A hinn bóginn er það samdóma álit bæði íslensku og erlendu skipuleggjendanna, að nú haíí sýningargestir flestir verið úr röðum manna sem starfa í sjávarútvegi og minna borið á fólki sem sótti sýninguna eingöngy fyrir forvitni sakir. Því segi tölur um aðsókn á svona sýningar ekki alla söguna. Patricia Foster framkvæmd- stjóri sýningarinnar nefndi í sam- tali við Fiskifréttir, að það væri þumalputtaregla, þegar vörusýn- ingar væru annars vegar, að viðun- andi teldist ef hver fermetri sýn- ingarrýmis drægi að sér einn sýn- ingargest. Sýningarrýmið í Laugardalshöll hefði verið rúmir 5.000 fermetrar en gestirnir hefðu orðið rúmlega helmingi fleiri. „Annars skiptir ekki höfuðmáli hversu margir gestir koma á svona sýningar, heldur hvort það er rétta fólkið og mér heyrist á sýnendum að svo hafi verið að þessu sinni,“ sagði Patricia Foster. Bjarni Pór Jónsson skrifstofust- jóri Félags íslenskra iðnrekenda tók undir þessi orð og sagði að markvisst hefði verið unnið að því að fá fagmenn á sýninguna fremur en almenning, m.a. með því að auglýsa hana nær eingöngu í fag- blöðum sjávarútvegsins en ekki t.d. í sjónvarpi. Bjarni Þór sagði, að íslensku sýnendurnir væru al- mennt mjög ánægðir með hvernig til hefði tekist og væntu sér góðs af framhaldinu, því árangurinn af svona sýningu kæmi ekki allur í ljós í einu. Þar sem sýningin var stærri en svo að hún rúmaðist í Laugardals- höllinni voru reistir tveir sýningar- skálar við hlið hallarinnar og dúki Patricia Foster. tjaldað yfir. í óveðrinu í síðustu viku losnaði þakið af öðrum skál- anna á kafla og litlu munaði að illa færi. Patricia Foster kvað einsýnt að útvega þyrfti betri skála fyrir næstu sýningu eftir þrjú ár. Hins vegar leist henni ekki á að flytja sýninguna í nýju handboltahöllina í Kópavogi, sem til stendur að reisa. Sýninguna þyrfti að hafa í Reykjavík í nálægð við hótel og aðra þjónustu. Sigurjón Óskarsson skipstjóri úr Vestmannaeyjum ásamt starfsmanni Slippstöðvarinnar. Forseti íslands, ráðherrar og skipuleggjendur sýningarinnar skála við opnunina (Mynd R.Th.S.) Samherjamenn, Þorsetinn Vilhelmsson og Þorsteinn Már Baldvinsson. Jón Magnússon útgerðarmaður á Patreksfirði.

x

Fiskifréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.