Fiskifréttir


Fiskifréttir - 17.12.1999, Blaðsíða 7

Fiskifréttir - 17.12.1999, Blaðsíða 7
FISKIFRETTIR 17. desember 1999 7 Smábátar Á bryggjunni á Arnarstapa. (Mynd/Fiskifréttir: Heiðar Marteinsson. Þorskafia- hámark 1995-1999: Hefur aukist um 1.368% í Grindavík Ævintýralegur uppgangur hefur verið á síðustu árum í útgerð smábáta sem skráðir eru í Grindavík. Á fiskveiðiárinu 1995/96 voru þorskaflahámarksbátar þaðan með 185 tonn en á yfirstandandi fisk- veiðiári eru heimildirnar 2.716 tonn. Þess ber reyndar að geta að heildarúthlutun þorskaflahámarks á þessum fjórum árum hefur auk- ist um tæp 127%, en aukningin hjá Grindavíkurbátunum í þessu kerfi er hvorki meira né minna en 1.368%. Hlutur þeirra af heildinni jókst úr 1,3% í 8,41% og er ekkert byggðarlag á landinu sem stærri skerf af kökunni. Þennan mikla uppgang má að mestu leyti rekja til Stakkavíkur hf. sem hefur byggt upp mikinn smábátafiota. Bátar frá Bolungarvík í þorskaflahámarkskerfmu eru með næstmestan hlut af heildinni eða 6,63% en voru með 4% þegar kerf- ið tók gildi fyrir fjórum árum. Bol- ungarvíkurbátar hafa 2.142 tonna þorskaflahámark á yfirstandandi fiskveiðiári en höfðu 568 tonn árið 1995. Rétt er að minna á útgerð smábáta ræðst verulega af því hvar fiskurinn gefur sig til hverju sinni og því er ekki alltaf samhengi milli skráningarstaðar viðkomandi báts og löndunarstaðar og allur gangur á því hvar aflinn er unninn. Þannig eru bátar Stakkavíkur hf. ekki bundnir við Grindavík í þessu efni. Reykjanes og Vestílrðir auka mest við sig Ofangreindar upplýsingar má lesa úr tölum sem birtust í skriflegu svari sjávarútvegsráðherra við fyr- irspurn Einars K. Guðfinnssonar alþingismanns um þróun afla- marks. Þar kemur ennfremur fram að Reykjanes og Vestfirðir eru þau kjördæmi sem aukið hafa mest við sig aflaheimildum í þorskaflahá- markskerfmu eða um 180% í tonn- um. Reyndar ber að minna á að heildarúthlutun þorskaflahámarks hefur á þessu tímabili aukist um meira en helming eða úr 14 þús. tonnum í rúm 32 þús. tonn. Aukn- ingin nemur 127%, eins og áður sagði. Þorsktonnunum í þessu kerfi fjölgaði á Vestfjörðum úr rúmum 2.900 tonnum í 8.300 tonn og Reykjanes fékk úthlutað 7.700 tonnum á móti 2.700 tonnum áður (sjá töflu). Öll kjördæmi eru með fleiri tonn í þorskaflahámarkskerf- inu nú en fyrir fjórum árum. Aukn- ingin er hins vegar minnst á Suður- landi eða rúm 30%. Sé litið á töfluna yfir hlutfalls- lega breytingu innan þorskaflahá- markskerfísins kemur í ljós, að út- hlutun til báta á Reykjanesi hefur aukist úr 19,2% af heild í 23,9%. Vestfirðir hafa farið úr 20,6% í 25,6%. Hlutur Austurlands stendur nokkurn veginn í stað, en önnur kjördæmi hafa misst hlutdeild. Úthlutað þorskaflahámark eftir kjördæmum (tonn m.v. óslægðan fisk) Suðurland Reykjanes Reykjavík Vesturland Vestfirðir Norðurl. vestra Norðurl. eystra Austurland 1995/96 511 2.714 868 2.633 2.938 569 1.864 2.133 1996/97 819 3.170 1.154 3.800 4.310 868 2.976 3.868 1997/98 960 4.098 1.377 4.249 4.664 957 3.278 5.069 1998/99 1.285 6.627 2.036 4.466 7.415 1.110 3.635 5.029 1999/00 672 7.707 1.702 4.632 8.266 987 3.406 4.920 Heimild: Fiskistofa Hlutfallsleg úthlutun þorskaflahámarks (tonn m.v. óslægðan fisk) Suðurland Reykjanes Reykjavík Vesturland Vestfirðir Norðurl. vestra Norðurl. eystra Austurland 1995/96 3,6% 19,1% 6,1% 18,5% 20,6% 4,0% 13,1% 15,0% 1996/97 3,9% 15,1% 5,5% 18,1% 20,6% 4,1% 14,2% 18,4% 1997/98 3,9% 16,6% 5,6% 17,2% 18,9% 3,9% 13,3% 20,5% 1998/99 4,1% 21,0% 6,4% 14,1% 23,5% 3,5% 11,5% 15,9% 1999/00 2,1% 23,9% 5,3% 14,3% 25,6% 3,1% 10,5% 15,2% Heimild: Fiskistofa Bakki hf. í Bolungarvík: Grænlenski rækju- frystitogarinn kominn til landsins — hefur fengiö nafniö Lindi Grænlenski rækjufrystitogarinn Tunnelik, sem Bakki hf. í Bolungarvík keypti nýverið, kom til Reykjavíkur um síðustu helgi. Togaranum hefur nú verið gefið nafnið Lindi og mun hann fara til rækjuveiða á Flæmingja- grunni á næsta ári undir eistneskum fána. Að sögn Egils Guðna Jónsson- ar, forstjóra NASCO ehf. sem er aðaleigandi Bakka hf. í Bolungar- vík, er Lindi nú í klössun í Reykjavík og einnig verður skipt um veiðarfæri áður en hann held- ur til veiða. Togarinn mun nýta hluta sóknardaga Eista á rækju- veiðunum Flæmingjagrunni en alls hafa níu eistnesk skip leyfi til veiða í samtals 1667 daga á næsta ári. NASCO hefur ráðið yfir drjúgum hluta eistnesku leyfanna en um nk. áramót rennur út samn- ingur við eigendur tveggja togara sem nýtt hafa tvö leyfanna sem NASCO ráðstafar. Mun Lindi fá leyfi annars togarans og eins er í ráði að fá annan togara fljótlega í viðskipti. Álasund Skipamiðlun Iðavöllum 3d 230 Keflavík Sfmi: 421-6318 -Fax: 421-6317 - Netfang: alasund@alasund.is Heimasíða: www.alasund.is Til sölu Frystitogari 40,60 x 8,50 - Nohab 2050 - Sm. 1989 ísfisktogari 46,50 x 9,00 - MAK1500 (98) - Sm. 1974 ísfisktogari 50,70 x 10,30 - Deutz 2200 (85) Sm. 1974 Línubátur 35,5 x 7,10 - Alpha 500 - Sm. 1974 m. beitningarvél Línubátur 33,2 x 7,33 - Alpha 600 - Sm. 1975 m. beitningarvél Tog- og netabátur 34,4 7,0 - Cat 912 - Sm. 1964 Nóta og togskip 52,00 x 10,0 - Nohab 3150 (95) - Sm. 1978 Nóta og togskip 55,00 x 9 - Cat (90) 3050 — Sm. 1978 Nótaskip 56,30 x 9,00 - Nohap 1400 - Sm. 1972 Togbátur 23,82 7,27 - Cat 918 - Sm. 1988 Togbátur 22,15 x 6,50 - Cat 530 - Sm. 1988 Togbátur 25,89 x 6,70 - MWM 650 - Sm. 1972 Togbátur 25,99 x 6,50 - Mitsubishi 650 (99) - Sm. 1960 Dragnót, tog- og netabátur 14,9 x 3,83 - Volvo P 270 - Sm. 1981 ATH. NY HEIMASIÐA OG NETFONG ÖSKUM ÚTGERÐUM OG SJÓMÖNNUM GLEÐILEGRA JÖLA OG FARSÆLDAR Á KOMANDIÁRI

x

Fiskifréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.