Fiskifréttir


Fiskifréttir - 17.12.1999, Blaðsíða 25

Fiskifréttir - 17.12.1999, Blaðsíða 25
FISKIFRÉTTIR 17. desember 1999 25 Verferðir Frá Holtavörðuheiði. Konungsvarðan. Skammt frá henni er Hæðar- steinn, þar sem vermenn áðu jafnan á leið sinni yfir heiðina og nýlið- ar í hópnum urðu að gangast undir strangan dóm gætu þeir ekki innt ákveðnar „tolIgreiðslur“ af hendi. Tvídægru. Annálar frá þeim tíma eyða ekki mörgum orðum í þennan mannskaða en greina þó frá hon- um. I Skarðsannál segir: „Mann- skaði af vermönnum á Tvídægru, dóu 13, en margir örkumlaðir á höndum og fótu.“ Og í Vatns- fjarðarannál segir: „Dóu 13 menn á Tvídægru og margir fengu ör- kuml.“ Guðmundur Björnsson, land- læknir, sem notaði skáldanafnið Gestur, orti magnað kvæði um þessa helför og notar þjóðsagnar- minnið, að vermennirnir haft verið frá biskupsstólnum á Hólum, og verið ódælir og óráðþægir rétt eins og Hólamenn sem áttu að hafa hrapað fram af Vermannabana. Stef þessa kunna ljóðs er þann- ig: Þó að hönd sé helköld og hrikti kjúkum í, ekki léttast Hólamanna högg fyrir því. Og viðkvæðið er táknrænt fyrir það sem sannarlega var er menn héldu í verið, svo sem m.a. kemur fram í lýsingu Kristleifs Þorsteins- sonar sem vitnað er í hér að fram- an: En heima sitja meyjar og mœðast af sorgum. I ljóði sínu lýsir skáldið helför Hólamanna yftr Tvídægru og tekst á meistaralegan hátt að bregða dulúð yftr atburðinn, m.a. þannig að þegar mennirnir gáfust upp og lögðust niður þá fannst hinum þeir „heyra í bylnum hljóð úr Líka- böng“, en Líkaböng nefndist klukka sú sem var í sáluhliðinu á Hólum. Skáldið kemur líka vel til skila lýsingum á hroka vermann- anna og jafnframt hreysti þeirra, sem nær hámarki er fóstursonur biskupsins, einn vermanna nær til byggða en er synjað um nætur- greiða. Þá reiðir hann hnefa til höggs og fylgir því svo vel eftir að hnefi hans fer í mél og bæði hann og sunnlenski bóndadurgurinn detta dauðir niður. Bæði í Þjóðsögum Jóns Árna- sonar og í Gráskinnu Gísla Kon- ráðssonar eru sögur um Hóla- mannahögg og eru þær nokkuð keimlíkar. I þeim fyrrnefndu segir svo: „Tólf menn frá Hólum ætluðu einu sinni suður á land til sjóróðra, en fengu moldöskubyl á Tvídægru svo þeir urðu þar allir úti nerna einn. Hann komst hálfdauður af þreytu og helkaldur til næsta bæjar. Bóndinn á bænum, sem Hólamenn höfðu árið áður hætt og misboðið, erfði það við manninn og í staðinn fyrir að veita honum, svo illa á sig komnum sem hann var, góðan beina, sagði hann með miskunnar- lausri hæðni: „Nú eru Hólamanna klakksekkir farnir að léttast.“ Þá svaraði hinn þó hann væri kominn í opinn dauðann. „En fyrir það létt- ast ekki Hólamannahögg,“ og rak Flestir nýlióar vildu gjarnan sleppa viö aö fara Holtavöróu- heiöi. Þaö var ekk- ert þægilegt að láta taka út á sér liminn og teyma sig þrí- vegis í kringum Hæöarstein. bónda um leið aleflis kjaftshögg. En svo var maðurinn kalinn að handleggurinn féll af honum við höggið og hann datt sjálfur dauður niður í sömu sporum.“ Gráskinna segir hins vegar svo: „Það er sagt að eitt sinn færu margir Hólamenn saman suður til vers sem oftar og ætluðu á Suður- nes. Telja sumir átján verið hafa. Sveinn einn var með þeim er þeim þótti lítilsverður og spottuðu hann mjög. Ráðsmaður á staðnum gaf sveininum loðkápu eina og kvað honum mundi að gagni koma. Lögðu þeir á Holtavörðuheiði í illu veðri. Ari hét sá er fyrir þeim var. Rak nú afarhríð á svo allir þeir sett- ust fyrir á heiðinni en eigi er getið glögglega hvar helst það var. Þó telja sumir sunnan Hæðarsteins verið hafa. Bleytuhríð hafði á verið en herti að síðan með hörkufrosti svo allt sýldi. Ari steig aldrei af hesti sínum og er mælt hann segði: „Kyrr situr Ari, hvergi trúi ég hann fari! “ Er það síðan orðið að al- mennu orðtaki. Er nú sagt að Ari riði frá þeim á lausum hesti til byggða allt suður til Sveinatungu eða Hvamms í Norðurárdal. Jafnan þóttu Hólamenn stórlátir og gems- miklir. Ari fann bónda fyrir dyrum úti og kvöddust þeir. Bóndi mælti sem í glett: „Nú taka að léttast Hólamanna klakkasekkir!“ Ari vildi eigi minna láta, reiddist og vildi slá bónda og sagði: „Þó léttast ekki Hólamannahögg!“ En þegar hraut armleggur Ara í sundur, svo var hann beinkalinn. Er þetta síðan að orðtökum orðið.“ Vera má að sú sagan um „Hóla- mannahöggið" og höndina bein- frosnu hafi orðið til út frá þeirri staðreynd að einn þeirra manna sem örkumluðust í hrakningunum 1588 missti báða armleggi. Sá hét Jón Flóventsson og var frá bænum Arnarstöðum í Eyjafirði. Gekk hann undir nafninu Jón handalausi meðan hann lifði og er vitað að þrátt fyrir fötlun sína gekk hann að almennum bússtörfum og þótti dugmikill og hraustur maður. Sex menn urðu úti á Mosfellsheiði þjóðsögum og sögnum er skáld- að í eyðurnar, bætt við og ýmislegt gert til þess að gera frásagnirnar æsilegri. En slíkt þarf raunar ekki til þegar fjallað er um ferðir ver- manna. Þar eru til margar frásögur um ógnvænlega hrakninga sem þeir lentu í, jafnvel skráðar af þeim sjálfum sem upplifðu þá. Slíkar frásagnir eru yfirleitt frá seinni öld- um, en sennilegt er að harmsögur hafi ekki síður orðið til á fyrri tím- um þegar leiðir voru jafnvel enn vandfarnari en þær urðu síðar. Hinn 8. mars árið 1857 urðu sex vermenn úr Biskupstungum og Laugardal úti á Mosfellsheiði en átta menn björguðust við illan leik og hlutu sumir örkuml af kalsárum. Einn þeirra manna sem komst lífs af úr hrakningunum var Guðmund- ur Pálsson á Hjálmsstöðum og skráði hann frásögn af atburðinum. Vermennirnir ætluðu til Reykjavík- ur og var fyrirhugaður áningarstað- ur þeirra fyrsta ferðadaginn að Kárastöðum og Heiðarbæ en þang- að komust þeir ekki vegna ófærðar og dimmviðris og urðu að taka sér náttstað á Þingvöllum og í Vatns- koti, en þaðan lögðu þeir síðan á Mosfellsheiði daginn eftir. Segir Guðmundur síðan í frásögn sinni: „Var veður þá allgott, léttur á vestan og útvesturloftið, en þykkur og dimmur í austrið. Frost var ekki mikið þá um morguninn, en snjór var mikill á jörðu, svo ófærð var fyllilega í hné. Sóttist ferðin því af- arseint. Byrjaði að hvessa á Vil- borgarkeldu, og herti þá jafnframt frosið, svo að fötin stokkgödduðust á okkur, og áttum við þá erfitt með að komast áfram. Á svonefndum Moldbrekkum, næstum því á miðri Mosfellsheiði, var sæluhúskofanefna, og töluðum við um, er veðrið versnaði, að reyna að ftnna kofann og láta þar fyrir berast. Þegar við hugðum okkur komna svo langt, dreifðum við okkur til að leita kofans, en gátum með engu móti fundið hann, enda var þá komin blindhríð með feiknafrosti og fannburði af norðri. Var þá eina lífsvonin, úr því sem komið var, að reyna að ná til bæjar á Bringum, en þangað var enn löng leið fyrir höndum. Héldum við svo áfram skáhallt við veðrið og höfð- um nóg með að halda hópinn og tvístrast ekki hver frá öðrum. I kringum sólarlagið fórum við að halda kyrru fyrir, því að flestir voru þá orðnir aðframkomnir af þreytu. Klakahúð var komin fyrir andlit okkar svo að augnanna naut ekki heldur við, og föt okkar einnig orðin stálfreðin. Ekki var neitt glæsilegt að hugsa til þess að láta fyrir berast þarna um nóttina, ekk- ert afdrep, allt slétt af jökli, og það feiknaveður, að ekki var stætt. Við fórum að pjakka með stöfunum niður í snjóinn til að reyna að fá eitthvert skýli, sem við gætum sest í. Fylltist það jafnharðan af snjó. Urðum við þó fegnir að fleygja okkur þar niður, því að þreyta og kuldi gengu mjög nærri okkur. Eftir þetta kom dimman, og hafði þá hver lítið af öðrum að segja, og mátti svo kalla, að hver og einn berðist við dauðann. Eg get ekki greinilega sagt frá öðrum en sjálfum mér þessa nótt. Átti ég eins og flestir hinna nóg með sjálfan mig, og var lítt fær um að rétta öðr- um hjálparhönd. Eg lá lítið niður, gerði allar til- Hafnargata 29 s. 426 7224 Grindavík þorskmaga (kúttmaga) og lifur Neptunus HF Fiskislóð 113 • 101 Reykjavík • Island Sfmi: 552 1380 • 552 2018 • Fax: 552 7720

x

Fiskifréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.