Fiskifréttir


Fiskifréttir - 17.12.1999, Blaðsíða 36

Fiskifréttir - 17.12.1999, Blaðsíða 36
36 FISKIFRETTIR 17. desember 1999 Fréttir LJÓSIÐS5 LANDINU Þessi einstæða bók hins landskunna fréttamanns Ómars Ragnarssonar fjallar um atburði er snerta þjóðina alla - um örlög og upplifun fólks, sem áferð um óbyggðirnar norðan Vatnajökuls komst í nána snertingu við þau tröllauknu öf I sköpunar og eyðingar, lífs og dauða, sem gera þetta svæði einstakt á jarðríki. ÓWl RAGNARS50* LjÓ^W (0odí-lW Hér er sagt frá ferð þriggja japanskra vísindamanna sem mættu örlögum sínum í Rjúpnabrekkukvísl og sérstæðu atviki er átti sér stað er Omar fór með aðstandendum mannanna til að kveðja sálir þeirra. Þá er sagt frá erlendri konu sem hélt ein síns liðs upp á íslensk öræfi um hávetur til að sinna köllun sem hún fékk. í bókinni er einnig sagt frá skelfilegum atburði sem varð við Bergvatnskvísl og þeirri örvæntingu sem bókarhöfundur upplifði er eiginkona hans "týndist" á þeim slóðum. Ómar Ragnarsson hefur einstaka tilfinningu fyrir landinu sínu, fólki og atburðum, hvort sem hann upplifir þá sjálfur eða setur sig í spor annarra. Það hefur hann sýnt í fýrri metsölubókum sínum, MANGA MEÐ SVARTANVANGA, FÓLK OG FIRNINDI OG MANNLÍFSSTIKLUR. SJÓMAIMNA IALMANAK ISKERPLU Sjómanna- almanak Skerplu Sjómannaalmanak Skerplu 2000 er komið út. í bókinni eru nú tæplega 900 litmyndir af ís- lenskum skipum auk tæknilegra lýsinga á þeim. Myndir er fleiri en áður og upplýsingarnar um skipin ítarlegri. Skipaskráin er í tveimur hlutum, annars vegar þilfarsskip og hins vegar önnur skip. Sérstök skrá er um opna vélbáta. Ennfremur er skrá yfir útgerðir og skip á þeirra vegum. Þá er skrá yfir kvóta allra aflamarksskipa og skrá yfir króka- báta. Sérstakur kortakafli er nú í bókinni. Þar er m.a. að finna kort um afla og veiðar á íslandsmiðum frá Hafrannsóknastofnun. Þá er kafli um hafnir landsins með ljós- myndum og kortum. Að öðru leyti hefur sjómannaalmanakið að geyma alla helstu efnisþætti slíkra rita hvað varðar sjávarföll, fjar- skipti, veður, öryggismál o.s.frv. Kvótaþing Viðskipti 5,- á Kvótaþingi -11. des. Kvótategund Magn Meðalverð (kg) (kn/kg) Þorskur 591.246 120,39 Ýsa 109.051 82,93 Ufsi 124.599 38,06 Karfi 28.000 42,16 Steinbítur 1.500 33,56 Langlúra 200 40,02 Sandkoli 500 22,52 Skrápflúra 5.000 21,26 Sfld 200.000 5,00 Úthafsrækja 7.264 35,00 rule LENSIDÆLUR Vélar & Taeki ehf. Tryggvagötu 18-101 Reykjavík Símar: 552 1286-552 1460 Fax:562 3437 V&T@vortex.is á netinu: www.fiskifrettir.is

x

Fiskifréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.