Fiskifréttir - 17.12.1999, Page 29
FISKIFRÉTTIR 17. desember 1999
29
Stórir fiskar Texti: ESE / Myndir: Ýmsir
Stórir fiskar hafa jafnan
vakið mikla athygii og á það
einkum við um sportveiði-
fiska eins og lax, urriða, sjó-
birting og bleikju. Stórir
nytjafiskar sem veiðast inn-
an eða utan landhelginnar
hafa einnig vakið verðskuld-
aða athygli veiðimannasam-
félagsins og einnig telst það
jafnan til tíðinda ef vart
verður við fágæta eða sjald-
séða fiska. Dr. Gunnar Jóns-
son, fiskifræðingur á Haf-
rannsóknastofnun, er örugg-
lega sá Islendingur sem er
fróðastur um sjávarfíska.
Bók hans Islenskir fiskar er
ómissandi uppsláttarrit en í
bókinni gerir Gunnar grein
fyrir öllum þekktum tegund-
um íslenskra fiska, lífshátt-
um þeirra og nytsemi. Fiski-
fréttir tóku hús á Gunnari
fyrir skömmu í því skyni að
forvitnast nánar um nokkra
af stærstu fískunum, sem
veiðst hefðu hér við land, og
hverjir hefðu veitt þá.
Einn af stærstu þorskum sem vitað er til að veiðst hafi hér við land. Þorskurinn var 167 sentímetrar á
lengd og 46 kfló að þyngd og kom hann í net hjá Naustavík EA í mars 1993 út af Eystrahorni. Þorskur-
inn var stoppaður upp og er hann nú varðveittur í húsakynnum Hafrannsóknastofnunar í Reykjavík.
Mynd/Fiskifréttir: Sigurjón Ragnarsson.
— spjallaö viö
Dr. Gunnar
Jónsson fiski-
fræöing um
stærstu fisk-
ana af hverri
tegund sem
vitaö er til aö
veiöst hafi hér
viö land
Eðlilega beinist áhugi flestra að
þekktum nytjategundum eins og
þorski, ýsu, ufsa og karfa en einnig
vekja stórar lúður og hákarlar alltaf
mikla athygli. Gunnar hefur haldið
til haga upplýsingum um stærstu
fiskana á Islandsmiðum miðað við
lengd og hér á eftir eru nefnd nokk-
ur dæmi um velþekktar tegundir:
Stærsti þorskur, sem vitað er til
að hafi veiðst við ísland, var 181
sentímetra langur og veiddist hann
Framhald bls. 30
Áhöfnin á Naustavík EA fékk 46 kílóa þorsk í net út af Eystrahorni:
Festi hausinn í
15 tommu gati á netinu
— rætt viö Gunnlaug Konráösson skipstjóra
— Ég var úti á dekki og var að fylgjast með netaspilinu þegar ég sá
tvo mjög stóra og fallega þorska koma upp undir yfirborðið. Sá
stærri losnaði úr netinu þegar hann kom upp úr sjónum en sem bet-
ur fer var ég með haka í hendinni og mér tókst á síðustu stundu að
krækja í hann áður en hann hvarf í djúpið. Við náðum honum við
borð við illan leik og þá kom í ljós að þetta var stærsti þorskur sem
við höfðum nokkru sinni séð, segir Gunnlaugur Konráðsson, skip-
stjóri á Naustavík EA, en hann og áhöfn hans fengu 167 sentímetra
langan og 46 kílóa þungan þorsk á netaveiðum undan Eystrahorni í
mars 1993.
Gunnlaugur segir að þótt skip-
verjum hafi þótt þorskurinn
merkilega stór þá haft ekki annað
staðið til en að gera að honum í
landi og verka hann í salt á hefð-
bundinn hátt.
— Af einhverjum ástæðum
langaði mig þó til þess að vita
hvað þorskurinn væri þungur áður
en gert væri að honum. Við blóðg-
uðum fiskinn úti á sjó en síðan var
gert að aflanum í aðgerðaraðstöðu
sem við höfðum á Höfn í Horna-
firði. Það var engin nægilega stór
vigt í aðgerðaraðstöðunni þannig
að ég hringdi í verkstjórann hjá
frystihúsi KASK og spurði hann
að því hvort hann gæti ekki vigtað
þorskinn fyrir okkur. Það var auð-
sótt mál og ég fór með þorskinn á
pallbíl niður í KASK þar sem vigt-
in var. Þegar þangað var komið
biðu mín skilaboð frá Jakobi Jak-
obssyni, fiskifræðingi og þáver-
andi forstjóra Hafrannsóknastofn-
unar, þess efnis að hann vildi
gjarnan fá fiskinn sendan til
Reykjavíkur. Ég gat ekki annað en
orðið við þeirri beiðni og því var
þorskurinn heilfrystur hjá KASK
áður en hann var sendur til Haf-
rannsóknastofnunar. Það var nú
aldrei meiningin að gefa stofnun-
inni þorskinn enda taldi ég að hægt
hefði verið að fá um 20 kíló af salt-
fiski í hæsta gæðaflokki úr þessum
eina fiski, segir Gunnlaugur en
þess má geta að við rannsóknir hjá
Hafrannsóknastofnun kom í ljós að
þorskurinn var 20 ára gamall. Að
loknum rannsóknum var þorskur-
inn stoppaður upp og er hann nú
varðveittur í húsakynnum Hafrann-
sóknastofnunar að Skúlagötu 4.
— Ég sendi aldrei reikning
vegna fisksins en eftir að ég sá
hann uppstoppaðan og ómerktan
hjá Hafró þá setti ég mig í samband
við Jóhann Sigurjónsson, sem nú
er forstjóri, og sagði honum að það
væri lágmark að sett væri smá
skilti við fiskinn þar sem greint
væri frá því hvenær hann hefði
veiðst og hverjir hefðu þar verið að
verki. Við því var orðið og við það
er ég sáttur.
Þorskanótin veiddi þessa
stóru þorska
Gunnlaugur segir að þegar stóri
þorskurinn veiddist hafi verið frek-
ar leiðinlegt veður, fimm stiga frost
og hálfgerð bræla. Netin voru með
7,5 tommu riðli og því hefði sá
stóri aldrei ánetjast nema vegna
þess að gat var á netinu.
— Hann festi hausinn í gati sem
samsvaraði stærð fjögurra möskva
og því má segja að við höfum veitt
hann í 15 tommu riðil. Hinn þorsk-
urinn, sem kom strax á eftir, var
fastur í tveggja möskva gati og sá
vó 37 kíló óaðgerður. Ég er þeirrar
skoðunar að við hefðum ekki náð
þessum fiskum ef við hefðum ver-
ið á stærra skipi. Á stærri netabát-
unum eru oft um tveir metrar frá
yfirborðinu og upp að borðstokkn-
um og fiskar af þessari stærð hefðu
örugglega dottið úr netunum og
sloppið ef reynt hefði verið að hífa
þá svo hátt, segir Gunnlaugur en
hann segir að núorðið sé mjög
sjaldgæft að fá þorska sem eru
meira en 25 kíló að þyngd.
— Þegar ég var á þorskanót á
Þorbirni II árið 1961 þá vorum við
oft að fá tvö til þrjú tonn í kasti af
þorskum sem voru örugglega 30 til
40 kíló að þyngd og sumir hafa ör-
ugglega verið þyngri. Ég man það
að það hélt enginn þessum fiskum
á dekkinu. Það var sama hvernig
menn reyndu að koma höndum á
þá, þeir sneru sig alltaf lausa. Eina
leiðin til þess að stoppa þá af var
að setja hnífinn í hausinn á þeim
Gunnlaugur Konráðsson
þar sem þeir veltust um á dekk-
inu, segir Gunnlaugur en hann
segist einu sinni hafa fengið stór-
an þorsk í net fyrir norðan land en
Gunnlaugur er frá Árskógssandi.
Sá þorskur var 36 kíló að þyngd,
forljótur og rýr á skrokkinn eftir
því sem Gunnlaugur segir frá.
Gunnlaugur segist vera þeirrar
skoðunar að þessir risastóru
þorskar séu enn til en hann telji
að þeir fari sínar eigin leiðir í
ætisleit þótt hann skili sér upp að
ströndinni á hrygningartímanum.
— Þorskar af þessari stærð
þurfa örugglega að éta gríðarlega
mikið. Þeir éta allt sem kjafti
kemur og eru sannkallaðir rán-
fiskar. Ég held að stóru þorskarn-
ir séu ekki mjög botnlægir heldur
séu þeir uppi í sjó og til þess að
hægt sé að veiða þá í net þá þyrfti
sennilega að vera 14 til 16 tommu
möskvi í netunum, segir Gunn-
laugur Konráðsson.