Fréttablaðið - 11.11.2021, Page 1

Fréttablaðið - 11.11.2021, Page 1
2 2 2 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F I M M T U D A G U R 1 1 . N Ó V E M B E R 2 0 2 1 Útsýni Albarns varð að plötu Dómur um Sigurverkið Lífið ➤ 34 Menning ➤ 30 JAFNRÉTTI Foreldrar sem Frétta­ blaðið hefur rætt við segja að kostn­ aður við tómstundir barna og ung­ menna, ekki síst í íþróttum, komi í veg fyrir þátttöku. „Mér finnst sárast að gjaldtakan sem fylgir sumum tómstundum bitni svo rosalega á börnum tekju­ lægri heimila,“ segir Sæunn Guð­ mundsdóttir móðir. Dýr keppnisferðalög séu fyrir­ staða sem skapi sorg hjá efnaminni börnum. Sum geti ekki tekið þátt þegar tilgangurinn sé að sameina hópa. Dæmi eru um að íþróttafélög hafi sett í lög að kostnaður megi aldrei verða meiri en sem nemur frístundastyrk frá hinu opinbera. SJÁ SÍÐU 10 Sorg hjá fátækari íþróttabörnum Mmm ... Safaríkar klementínur eru bestar núna! Krónan mælir með! TILBOÐ Í NETVERSLUN NETTÓ SINGLES DAY Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, hlaut í gær verðlaun á Heimsþingi kvenleiðtoga, fyrir framlag sitt til jafnréttismála. Hér fagnar hún viðurkenningunni ásamt Silvönu Koch-Me- hrin, Vigdísi Finnbogadóttur, Katrínu Jakobsdóttur og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur. Í ræðu sagði Jóhanna að allar þjóðir ættu að gefa konum tækifæri – í þágu allra. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu telur að hátt hrávöruverð muni vara fram á vor. Verkefnisstjóri ASÍ segir hrávöruverð oft ekki stóran hluta af því endanlega. helenaros@frettabladid.is VIÐSKIPTI Hækkanir á ýmiss konar vöru og þjónustu hafa verið mjög áberandi í umræðunni síðustu daga. „Allir eru sammála um að svona miklar hækkanir hafa ekki sést nema kannski á stríðstímum. Þetta eru mjög skrítnir tímar,“ segir Andr­ és Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu. Að sögn Andrésar hafa frá því seint á síðasta ári orðið fordæmalausar hækkanir á allri hrávöru, til mat­ vælaframleiðslu eða iðnaðarfram­ leiðslu. Því til viðbótar séu hækkanir á flutningskostnaði einnig miklar. Hann segir allt viðskiptaum­ hverfið og almenning þar með talinn finna fyrir áhrifum hækkananna. „Þetta hefur óhjákvæmilega áhrif inn í allt efnahagslífið, með tilheyr­ andi áhrifum á heimili í landinu.“ Andrés segir að samkvæmt Alþjóða­ bankanum og öðrum greiningar­ aðilum muni ástandið líklega versna áður en það batnar. Ástandið muni vara fram á vor. Auður Alfa Ólafs­ dóttir, verkefnisstjóri verðlags­ eftirlits ASÍ, segir ástæðu til að hafa áhyggjur af því að verðbólga sé töluð upp. Umræða um verðhækkanir á hrávöru geti leitt til verðbólgu og virkað sem stýrandi spádómur. Slík umræða geti grafið undan peninga­ stefnunni. „Nauðsynlegt er að hafa í huga að hækkun á hrávöruverði á ekki að leiða sjálfkrafa til verðhækkana á vöru og þjónustu,“ segir hún. Oft sé um tímabundnar sveiflur að ræða og hrávöruverð sé ekki stór hluti af endanlegu verði. Innlend verslun hafi komið vel út úr faraldrinum. n Fordæmalausar verðhækkanir sem sjást jafnan ekki nema á stríðstímum Þetta hefur óhjá- kvæmilega áhrif inn í allt efnahagslífið og með tilheyrandi áhrif- um á heimili í landinu. Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.