Fréttablaðið - 11.11.2021, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 11.11.2021, Blaðsíða 22
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Þær eru þrjár stöllurnar sem standa á bak við netmarkaðstorgið Heimapopup.is, þær Olga Helena Ólafsdóttir, Eyrún Anna Tryggva- dóttir og Sara Björk Purkhús. „Við Eyrún eigum barnavöruverslunina Von verslun og Sara á Purkhús & SisBis,“ segir Olga. „Ævintýrið byrjaði árið 2017 þegar við vorum sjálfar nýbúnar að stofna okkar eigin netverslanir. Við tókum eftir að það vantaði hentugan vettvang fyrir netversl- anir að sýna varninginn sem þær eru að selja. Þá datt okkur í hug að bjóða upp á pop-up markað fyrir netverslanir. Fyrsta markaðinn héldum við jólin 2017. Þá vorum við tólf verslanir sem sýndum og seldum vörur okkar og afrakstur- inn var mjög góður.“ Með hverjum markaði fjölgaði netverslunum sem tóku þátt. „Þetta óx hratt og við fórum úr tólf netverslunum í Síðumúla upp í 90 verslanir í Vík- ingsheimilinu,“ segir Olga. Yfir á netið Eins og frægt er orðið hafði Covid- 19 faraldurinn áhrif á mannamót og í tilfelli pop-up markaðanna færðust þeir yfir á netið, en í nýrri mynd. „Fólk var hvatt til þess að halda sig heima til að lágmarka smit og versla frekar á netinu. Við þurftum að finna nýjar leiðir til að halda markaði. Þá varð til hugmyndin um vefmarkaðinn Heimapopup.is þar sem fjöldi netverslana kemur saman undir einum hatti, til að auglýsa þá afslætti og tilboð sem þær bjóða upp á tiltekna helgi eða ákveðna daga. Á þeim tveimur árum sem Heimapopup.is hefur verið starf- andi höfum við haldið fjölda einstakra tilboðsviðburða og að Eyrúnu, Olgu og Söru fannst vanta vettvang fyrir netversl- anir til að sýna vörur sínar. Pop up hug- myndin færðist svo á netið í faraldrinum og hefur aldrei verið sterkari. Yfir 200 versl- anir taka nú þátt í Single’s Day. FRÉTTABLAÐIÐ/ sjálfsögðu tökum við þátt í öllum stóru tilboðsdögunum eins og Singles’ Day, Black Friday og Cyber Monday.“ Hundruð verslana á einum stað Í ár eru yfir 200 verslanir skráðar á Singles‘ Day á Heimapopup.is. „Þetta er tíundi netmarkaðurinn okkar og hefur úrvalið af netversl- unum á okkar snærum aldrei verið meira. Vöruúrvalið hefur að sama skapi aldrei verið fjölbreyttara. Þú finnur eitthvað fyrir alla, heimilis- vörur, lífsstílsvörur, snyrtivörur, hönnun, handverk, barnavörur, útivistarvörur, fatnað, skart, raf- tæki og margt fleira,“ segir Olga og bætir við: „Það sem er svo skemmti- legt við þetta fyrirkomulag er að viðskiptavinir kynnast nýjum fyrirtækjum og uppgötva versl- anir sem þeir hafa ekki séð áður. Verslanirnar eru með frábær tilboð og flestir með einhvern afslátt af öllum vörum. Það verður aldeilis hægt að gera góð kaup í jólapakk- ann eða bara fyrir sig sjálfa/n.“ Einfalt og þægilegt Heimapopup.is er mjög þægilega uppsett og er auðvelt að finna allt það sem þú leitar að. Síðunni er skipt niður í f lokka sem auðveldar viðskiptavinum að skoða úrvalið. Á forsíðunni er síðan listi með öllum fyrirtækjunum. „Það er aragrúi af spennandi verslunum á Íslandi. Á Heimapopup.is eru þær komnar saman undir einn hatt, sem gerir viðskiptavinum ótrúlega auðvelt fyrir að finna allt sem hugurinn girnist, hvort sem er handa sjálfum sér eða í jólagjafir handa vinum og vandamönnum.“ Veglegur afsláttur til miðnættis „Við opnum fyrir vefsíðuna á mið- nætti 11. nóvember og erum með opið fram til miðnættis 12. nóvem- ber. Einhverjar verslanir eru með valdar vörur á miklum afslætti en langflestar eru með góðan afslátt af stórum hluta vara sinna, eða jafnvel öllum vörum í tilefni dagsins. Enn fremur bjóða margar verslanir upp á fría sendingu, jafn- vel beint heim að dyrum. Þetta heillar sérstaklega viðskiptavini á landsbyggðinni, en kemur sér auð- vitað vel fyrir alla.“ Olga segir að Dropp þjónustan sé stórsniðug, en fyrirtækið er með skilastöðvar um land allt og sækir vörur í vöruhús nokkrum sinnum á dag. „Það eru mjög margar net- verslanir á Heimapopup.is að nýta sér Dropp, enda er fyrirkomulagið þægilegt fyrir bæði verslunareig- endur og viðskiptavini. Ef við- skiptavinur kaupir vöru fyrir hádegi þá getur hann sótt hana á næstu Dropp-stöð samdægurs. Kaupendur fá varninginn hratt og örugglega og seljendur losna að sama skapi við vörur af lager sínum.“ Ætlar að nýta sér Singles’ Day Sjálf segist Olga vera búin að búa til dágóðan lista yfir jólagjafir sem hún ætlar að versla á Singles’ Day. „Ég sé fram á að geta strikað út mjög mikið af þessum lista með því að versla eingöngu við net- verslanirnar á Heimapopup.is. Jólagjafainnkaup á netinu eru einstaklega hentug lausn, sérstak- lega fyrir upptekið fólk. Sjálf er ég mjög upptekin í eigin verslun fyrir jólin og kann vel að meta það að geta fundið allt sem mig vantar á netinu. Ég þarf ekki að eyða tíma í ferðalög á milli verslana og hef allan sólarhringinn til þess að versla á mínum eigin hraða, án þess að hafa áhyggjur af opnunar- tíma verslana. Svo skemma ekki fyrir öll þessi frábæru tilboð sem netverslanirnar eru að bjóða upp á í tilefni Singles‘ Day. Sem eigandi netverslunar þá tek ég eftir því að fólk er snemma byrjað að versla jólagjafirnar í ár, sem er nokkuð fyrr heldur en hefur verið síðustu ár. Viðskiptavinir vita að það ríkir vöruskortur í landinu á nánast öllum vöruflokkum og það getur verið erfitt fyrir verslanir að flytja inn vörur með stuttum fyrirvara ef þær klárast. Það er því mjög líklegt að Singles‘ Day útsöludagurinn verði einstaklega stór í ár,“ segir Olga og hvetur fólk til þess að nýta sér afsláttinn í dag í netverslunum Heimapopup.is. n Skoðaðu úrvalið af hundruð netverslana sem bjóða upp á stór- tækan afslátt í tilefni dagsins á heimapopup.is. Ég sé fram á að geta strikað út mjög mikið af þessum lista með því að versla ein­ göngu við netversl­ anirnar á Heima­ popup.is. Olga Helena Þetta er tíundi net­ markaður­ inn okkar og hefur úrvalið af netversl­ unum á okkar snærum aldrei verið meira. Olga Helena Það er mjög líklegt að Singles’ Day útsöludagurinn verði einstaklega stór í ár. Olga Helena 2 kynningarblað A L LT 11. nóvember 2021 FIMMTUDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.