Fréttablaðið - 11.11.2021, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 11.11.2021, Blaðsíða 24
Sjöfn Þórðardóttir sjofn @frettabladid.is S Í G I L D K Á P U B Ú Ð Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is Laxdal er í leiðinniFylgið okkur á FB TILBOÐSDAGAR Á VÖLDUM VÖRUM 20% afsláttur LAXDAL .IS Að eiga sér draum og koma honum í framkvæmd er afrek út af fyrir sig. Katla Guðmundsdóttir skartgripa- hönnuður er ein þeirra sem lét draum sinn rætast þegar hún byrjaði að hanna sínar eigin skartgripalínur. Vinnustofa Kötlu er hjá SIGN sem er í Hafnarfirði, við Fornabúðir, á heillandi stað við höfnina. SIGN er bæði skartgripaverslun og vinnu- stofa, þar sem töfrarnir gerast í hönnun skartgripa. Katla gekk til liðs við SIGN fyrir liðlega ellefu árum og byrjaði þá að hanna skart- gripi samhliða því að selja skart. Í dag eru Katla og Sigurður Ingi Bjarnason gullsmiður saman með vinnustofuna og blómstra saman í verkum sínum. Mikil sveitastelpa Katla er fædd og uppalin á Sauðár- króki hjá foreldrum sínum og bróður. „Ég var mikið í sveit sem barn og unglingur hjá afabróður mínum og fjölskyldu hans á Melstað í Óslandshlíð. Þannig að ég er mikil sveitastelpa í mér og elska sveitina. Þaðan kemur eitt af mínum uppáhaldsáhugamálum, sem er hestamennska. Ég nýt þess að fara í útreiðartúra úti í nátt- úrunni og þar fæ ég líka innblástur í hönnun mína,“ segir Katla, sem veit fátt skemmtilegra en að vera í kringum hesta. Katla var bæði í grunnskóla og framhaldsskóla á Sauðárkróki. Lítil stelpa að skapa sér ævintýraheima Katla Guðmundsdóttir skartgripahönnuður er ein þeirra sem lét draum sinn rætast þegar hún byrjaði að hanna sínar eigin skartgripa- línur. Móðir náttúra nefnist þetta hálsmen. Skartgripalína frá Kötlu sem nefnist Lóa og er ákfalega falleg. „Ég bjó í Svíþjóð um tíma og hef ávallt haft mikinn áhuga á allri hönnun og list. Ég stefndi alltaf á leirlist eða fatahönnun á mínum yngri árum en er menntuð snyrti- fræðingur, ótrúlegt en satt,“ segir Katla og segir að örlögin hafi síðan leitt hana í skartgripahönnunina. Katla er móðir og nýtur sín í því hlutverki líka. „Í dag á ég þrjú yndis- leg börn, þau Árna Tuma 17 ára og tvíburana Árveigu Ólöfu og Bjarna Kristin sem eru 14 ára,“ segir hún og bætir því við að þau veiti henni innblástur í listina. Fallegt ferli „Ég hef ávallt haft áhuga á skart- gripahönnun og þá sér í lagi hvernig skartgripurinn er búinn til og hvernig efnin verða að því sem skapað er. Hvernig sköpun hönnuðarins er yfirfærð í tilbúinn hlut, allt frá hugmynd, markaðs- setningu og til þess sem síðan ber skartið, finnst mér fallegt ferli.“ Er einhver saga bak við hönnun þína og ástríðuna í því sem þú ert að gera? „Kannski bara sagan mín, lítil stelpa sem var skítug upp fyrir haus úti að leika sér og skapa ævin- týraheima. Þessi stelpa fylgir mér svolítið í öllu sem ég geri. Stundum er hönnunarferlið eins og ævintýri, innblástur getur verið ævintýra- legur.“ Tileinkuð mömmu sem greindist með krabbamein fyrr á árinu Katla hannaði nýverið nýja skartgripalínu sem nú hefur litið dagsins ljós. „Nýjasta línan er ólík hinum. Hluti af henni er grófur en fínlegur á sama tíma, keðjur sem mynda einingu og heitir Samspil. Annar hluti, sem heitir Lóa, er pen með mikið af steinum sem líkjast tári en tár myndast vegna tilfinn- inga hvort sem er vegna gleði eða sorgar. Þennan hluta línunnar tileinkaði ég mömmu minni, sem greindist með brjóstakrabbamein fyrr á árinu og er að takast á við það verkefni. Mamma mín heitir Ólöf og er kölluð Lóa.“ Katla segist aðallega fá inn- blásturinn í hönnun sína frá fólkinu sem stendur henni næst. „Ég leitast mikið eftir því að hafa gaman í kringum mig og hlæja sem mest, það veitir mér líka mikinn innblástur.“ Andstæður heilla mig mikið Hvernig myndir þú lýsa hönnunar- stílnum þínum? „Ég leitast eftir að láta and- stæður mætast og finna jafnvægi þar á milli.“ Þegar kemur að vali að formum og táknum, er eitthvað sem heillar þig frekar en annað? „Andstæður heilla mig mikið, svart og hvítt, mjúkt og hart, slétt og hrjúft og svo framvegis.“ Þegar Katla er spurð hvort hún eigi sér uppáhaldsskart sem hún hefur hannað er hún með það á hreinu. „Móðir náttúra-línan sem ég hannaði árið 2018, annars er auðvelt að halda upp á nýjustu línuna sem er í gangi hverju sinni,“ segir Katla dreymin á svip. Áttu þinn uppáhaldshönnuð þegar kemur að hönnun á skarti og fylgihlutum? „Sigurður Ingi Bjarnason er alltaf í mestu uppáhaldi hjá mér. Hann veitir mér mikinn innblástur og hvatningu, sem er innblásin krafti í mína hönnun. Langar að flytja upp í sveit Þegar Katla horfir til framtíðar seg- ist hún enn eiga fullt af draumum sem hana langar að fylgja eftir. „Ég á mér marga drauma, eigin- lega of marga, mig langar að flytja upp í sveit og vinna við sköpunina okkar og vera meira í hesta- mennsku. Svo ætla ég einhvern tímann að læra að mála myndir,“ segir hún að lokum og hlakkar til að halda áfram að láta drauma sína rætast, innblásin af sköpunarkrafti og sköpun sinni. n 4 kynningarblað A L LT 11. nóvember 2021 FIMMTUDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.