Fréttablaðið - 11.11.2021, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 11.11.2021, Blaðsíða 58
Ég var í áramótaskaup- inu. Það var sena með presti sem spurði röð af ungum konum hvað barnið ætti að heita sem var kannski svo- lítið ýkt. is.rubix.com | Dalvegur 32a Pedrollo dælur Brunndæla Þurrkar niður að gólfi Verð frá kr. 33.913 Neysluvatnsdælur af ýmsum stærðum Verð frá kr. 41.236 Enski tónlistarmaðurinn og íslenski ríkisborgarinn Damon Albarn sendir í dag frá sér breiðskífuna The Nearer The Fountain, More Pure The Stream Flows, sem hann segir að hafi í raun orðið til andspænis tilkomu- miklu útsýninu út um risa- stóran stofugluggann heima í Grafarvogi. toti@frettabladid.is Damon Albarn var söngvari ensku hljómsveitarinnar Blur og ein skær- asta poppstjarna tíunda áratugarins þegar hann byrjaði að venja komur sínar til Íslands fyrir þremur ára- tugum. Hann komst fljótt að því að Ísland var land drauma hans og eftir að hafa látið til sín taka í reykvísku næturlífi þar sem hann gerði meðal annars gott mót á Kaffibarnum, tengdist hann landinu órjúfan- legum böndum og reisti sér hús við Grafarvoginn þar sem hann situr löngum og starir út um risastóran stofugluggann, en öll þau áhrifa- miklu undur sem þar ber fyrir augu urðu honum innblástur nýjustu plötunnar hans, The Nearer The Fountain, More Pure The Stream Flows, sem kemur út í dag. Setið við gluggann „Þetta er einfaldlega plata sem kemur út úr þessu útsýni,“ segir Damon Albarn og bítur kæruleysis- lega í epli áður en hann bendir út um flennistóran stofugluggann á heimili sínu í Grafarvogi. „Hún byrjaði hérna, í þessu her- bergi, og hún hefur allt. Örvænt- ingu, gleði og fagnar öllu því sem er þarna úti. Himinninn var heiður fyrir hálftíma. Síðan kom smá hagl- él og svo smá snjór og síðan kom stór regnbogi. Þetta er ótrúlega sveiflu- kenndur staður og breytingarnar svo dramatískar að það er bara hægt að horfa á þetta löngum stundum án þess að gera nokkuð annað. Fuglarnir gera sitt þegar þú horfir á þá gera nákvæmlega það sama á hverjum degi. Hér eru venjulega fimm, sex hrafnar og þegar ég er hérna fóðra ég þá. Þeir koma og gera alla sína loftfimleika og það er und- ursamlegt. Ég veit samt ekki hvar þeir eru núna. Stundum fara þeir í frí, þú veist. Svo koma þeir bara til baka einhvern daginn. Hrafnar og golfarar Ég elska að hafa hrafna í kringum húsið og finnst þeir vera einhvers Tær uppspretta Damons Albarn í Grafarvogi Damon Albarn hefur árum saman setið við píanóið þaðan sem hugurinn reikar út um stofugluggann þar sem lífið allt og tilveran myndhverfast í síkviku og tilkomumiklu umhverfinu sem hann reynir að fanga með tónum. MYND/AÐSEND Tíu sturlaðar staðreyndir um Blur: n Bandið á sex plötur sem toppað hafa breska vin- sældalista. n Bassaleikarinn Alex James elskar osta og býr til sinn eigin. n Bandið kallaði sig uppruna- lega Seymour. n Parklife (1994) var þeirra fyrsta plata til að slá í gegn. Hún hélst á vinsældalistum í Bretlandi í 90 vikur. n Sveitin gaf út lagið Song 2 sem smáskífu í Banda- ríkjunum í brandaraskyni. Útgefandinn elskaði lagið og það sló í gegn. n Damon Albarn var skakkur 1994 þegar hann tók upp lagið To The End. n Graham Coxon sló taktinn í laginu Miss America blind- fullur á stólfót. n Lagið Tender er samið um sambandsslit Damon Al- barn og tónlistarkonunnar Justine Frischmann úr hljómsveitinni Elastica. n Liam Gallagher úr Oasis þolir Blur ekki enn þann dag í dag, en Damon upp- lýsti Fréttablaðið um að hann og Noel, bróðir Liams, haldi sambandi og séu góðir vinir. konar félagsskapur.“ Damon hlær síðan þegar hann víkur að golfur- unum, sem þrátt fyrir að vera ein- hvers konar jaðarfyrirbæri í nátt- úrunni, eigi sinn þátt í því hversu hrífandi útsýnið er. „Ég hef setið hérna við píanóið árum saman, horft út um glugg- ann og látið hugann reika,“ segir Damon, sem notaði tækifærið þegar honum voru gefnar frjálsar hendur í tónlistinni. „Ég var spurður hvað mig lang- aði virkilega til þess að gera og ég sagðist vilja gera plötu starandi út um gluggann minn á Íslandi. Þann- ig að það mætti gjarnan borga mér fyrir að fá strengjatónlistarfólk til þess að sitja með mér dögum saman á meðan ég fengi þau til að reyna að spila þetta landslag og hreyfing- arnar í því við mismunandi birtu- skilyrði og reyna að túlka allt sem er í gangi þarna. Vindinn, grasið, fuglana …“ Endaði í ellefu lögum The Nearer The Fountain, More Pure The Stream Flows átti þannig upphaf lega að vera hljómsveitar- verk innblásið af íslensku landslagi. Heimsfaraldurinn truflaði þá vinnu en Damon ákvað að þróa það sem hafði orðið til í stofunni í Grafar- voginum í ellefu lög sem mynda plötuna, sem hann lagði loka- hönd á í roki og kulda á dimmum bar við sjóinn á Englandi,“ eins og hann lýsir því og bendir glaðlegur á að það sé huggun harmi gegn að á næsta ári fái hann tækifæri til þess að spila plötuna alla á tónleikum. „Þetta er líka í fyrsta skipti sem ég er með nýtt verkefni og það selst upp á tónleikana í tengslum við það áður en ég sem tónlistina. Þannig að ég verð enn að halda þessa tónleika í Evrópu.“ Svartir sandar draumalandsins Damon fékk nýlega íslenskan ríkis- borgararétt eftir að hafa verið með annan fótinn hérna í áratugi eftir að hann kom hingað fyrst og áttaði sig á að Ísland væri land drauma hans. „Ætli það séu ekki komin 30 ár síðan ég tékkaði mig inn á Hótel Sögu, meðal annars vegna þess að mig langaði að f lýja England sem var fyrir mér orðinn heldur eitr- aður staður,“ segir Damon, sem þá var byrjaður að finna fyrir óþægi- legum hliðum frægðarinnar með Blur. „Mér var á köf lum farið að finnast þetta mjög ónotalegt.“ Damon rekur síðan draum sem hann dreymdi oft sem barn. „Þar var ég að f ljúga yfir svartan sand á strönd og löngu síðar sá ég National Geographic-þátt um Ísland og átt- aði mig á að það var það sem ég var að fljúga yfir í draumum mínum. Ég geri ráð fyrir að ef ég hefði horft á þátt um Nýja-Sjáland þá hefði það verið staðurinn sem ég f laug yfir og þá hefði margt orðið öðruvísi. En mér fannst mjög eðli- legt að koma hingað vegna þess að ég á ættir að rekja til Danmerkur og fannst ég vera skandinavískur að hluta. Komst í skaupið Damon gerðist frekur til fjörsins í líf legu reykvísku næturlífi tíunda áratugarins og hélt mikið til á Kaffibarnum og gerðist hluthafi í staðnum til skamms tíma. Næturlífið hérna virtist eiga sér- lega vel við þig? „Hah! Ég var í áramótaskaupinu. Það var sena með presti sem spurði röð af ungum konum hvað barnið ætti að heita sem var kannski svo- lítið ýkt,“ segir Damon og hlær. „En ég naut mín hérna og það var frá- bært á þessum tíma að geta farið út og notið sín án þess að frægðin væri að trufla. Það var virkilega næs og mjög endurnærandi. Ég kunni vel við mig og ég kunni vel við fólkið og þetta var ekki f lókið þannig að ég kom hingað svona um það bil aðra hverja helgi og svo keypti ég íbúð við hliðina á Hótel Borg,“ segir Damon og bætir aðspurður, glottandi við, að hann sé ekkert endilega viss um að það hafi verið íslenskri kurteisi að þakka að hann gat spókað sig óáreittur í Reykjavík. „Kannski fannst þeim við bara ekkert merkilegri en þetta.“ Lífið er of stutt Damon segist ekki sakna glaumsins, gleðinnar og frægðarljómans sem hann var sveipaður á tíunda ára- tugnum með Blur. „Í rauninni ekki, en ég sakna heimsins eins og hann var fyrir tíma internetsins. Fyrir snjallsímana og allt þetta. Ég elska þann heim. Hann var frábær. Að einhverju leyti var sá heimur síðasta augnablikið sem mann- kynið var frjálst. Þú veist. Dóttur minni er ómögulegt að skilja tví- benta afstöðu mína til símans míns en ég segi henni að hún myndi skilja þetta ef hún hefði verið þar sem ég var. Við vitum að þú getur lifað án símans á meðan kvíðinn sem þessi nýja kynslóð glímir við þegar hún er skilin frá símanum og samfélags- miðlunum, er rosalegur. Þetta er eins og að taka krakk frá fíkli.“ Damon gerir heldur lítið úr met- ingi og ríg milli hljómsveita þegar Blur var upp á sitt besta og segir að hafi verið eitthvað um slíkt þá sé það allt gleymt og grafið. „Þú ert auðvitað mjög kappsfullur, er það ekki? En ég er ekki þannig lengur. Lífið er allt of stutt til þess að eyða því í svoleiðis og það er nógu erfitt að díla við sinn eigin skít þótt maður sé ekki að skipta sér af annarra,“ segir Damon, sem hefur fundið innri ró með aldrinum og við gluggann í Grafarvogi, sem vísar beint út í sköpunarverkið. n Poppstjarnan fann svarta sanda bernskudrauma sinna á Íslandi. MYND/AÐSEND. Tær uppspretta Önnur sólóbreiðskífa Damon Albarn, The Nearer The Fountain, More Pure The Stream Flows, kemur út í ýmsum myndum í dag; á streymisveitum, lituðum og svörtum vínil, á geisladiski og meira að segja hinni nánast gleymdu kassettu. Sérstök viðhafnarútgáfa verður einn- ig fáanleg, en sá pakki inni- heldur harðspjaldabók með ljósmyndum, upprunalegum textum og list eftir Damon ásamt glærum vínil, hágæða niðurhali og sjötommu vínil- plötu með aukalagi úr sömu upptökulotu og platan var tekin upp. Damon hefur undanfarið flutt lög af plötunni opinber- lega. Meðal annars á ARTE Concert Festival 2021. Hann mun síðan fylgja plötunni eftir, með íslenska vegabréf- ið sitt á lofti, á tónleikaferð í febrúar og mars á næsta ári og mun ljúka túrnum með tónleikum í Hörpu þann 11. mars. Damon Albarn Damon er langþekktastur sem stofnmeðlimur og söngvari Blur, en tók síðar einnig þátt í stofnun hljóm- sveitanna Gorillaz og The Good, The Bad & The Queen. Hann hefur hlotið Brit tón- listarverðlaunin sex sinnum, tvívegis hlotið Ivor Novello verðlaunin og ein Grammy verðlaun. 34 Lífið 11. nóvember 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 11. nóvember 2021 FIMMTUDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.