Fréttablaðið - 11.11.2021, Side 8
arnartomas@frettabladid.is
BRETLAND Áin Thames iðar nú af
lífi eftir að lýst hafði verið yfir að
hún væri „líffræðilega dauð“ árið
1957, vegna mengunar. Þetta kemur
fram í skýrslu Dýrafræðisamfélags
London um ástand árinnar.
Í sex áratugi hefur verið unnið að
því að bæta umhverfi árinnar og nú
finnast þar 115 tegundir af fiskum
og 92 tegundir af fuglum. Þar á
meðal er gráháfur, hákarlategund
sem er skráð í útrýmingarhættu,
sæhestar, álar og selir.
Þá voru skrásettir tæplega sex
hundruð hektarar af sjávarfiti,
grónu svæði sem er ýmsum líf-
verum lífsnauðsynlegt.
„Árósar eru eitt af vanræktustu
vistkerfum okkar,“ sagði Alison
Debney sem leiðir endurheimt vot-
lendis hjá félaginu.
„Þeir veita okkur hreint vatn,
vernd gegn f lóðum og eru mikil-
vægt búsvæði fyrir fiska og annað
dýralíf,“ sagði Alison.
Þrátt fyrir að í skýrslunni sé
ják væðu ljósi var pað á áhrif
umhverfisstarfsemi við ána, er
einnig bent á að hækkandi hitastig
vegna hamfarahlýnunar muni hafa
áhrif á lífríkið endurheimta. n
Íbúar við Leifsgötu 4 til 10
höfðu betur í kærumáli
gegn byggingarfulltrúanum
í Reykjavík sem gerður er
afturreka með þá ákvörðun
að aðhafast ekki meira en
orðið var vegna bakhúss sem
stendur á lóðinni í óleyfi.
gar@frettabladid.is
ÚRSKURÐIR Byggingarfulltrúanum
í Reykjavík ber að beita sér vegna
bakhúss sem reist var í óleyfi á Leifs-
götu fyrir 75 árum, segir úrskurðar-
nefnd umhverfis- og auðlindamála,
og tekur þar með undir sjónarmið
íbúa í næsta húsi.
Sótt var um leyfi til þess að reisa
bakhús við Leifsgötu 4 á árinu 1946
og Reykjavíkurborg hafnaði því að
veita leyfið, en húsið var byggt engu
að síður.
Allar götur síðan hefur umsókn-
um um ýmis leyfi tengd bakhúsinu
verið hafnað. Ráðist hefur verið
í ýmsar viðbótarframkvæmdir í
gegnum tíðina, sem borgin hefur
óskað eftir að verði fjarlægðar án
þess að við því hafi verið orðið.
Íslandsbanki eignaðist Leifs-
götu 4b á nauðungar uppboði vorið
2013. „Hinn 21. ágúst 2017 sendi
starfsmaður bankans tölvupóst til
starfsmanns umhverfis- og skipu-
lagssviðs Reykjavíkurborgar og
spurðist þar fyrir um hvað væri
til ráða með framhaldið,“ segir í
umfjöllun úrskurðarnefndarinnar.
Þar hafi verið vísað til þess að bank-
inn hefði lánað út á eignina í þeirri
trú að hún væri „nothæf“.
Í svari borgarstarfsmannsins hafi
Íslandsbanka verið bent á að varla
væri þar „gott ástand, til dæmis
með tilliti til brunavarna“ enda
væri skúrinn mjög nálægt fjölbýlis-
húsinu þar framan við. „Sennilega
væri best að þið létuð rífa þetta til
að losna við öll gjöld,“ var ráðið frá
borginni til bankans, sem fylgdi
ekki þeirri ráðleggingu heldur seldi
bakhúsið til eiganda í júlí 2019. Í
samningnum var tekið fram að
eignin væri „lóðarréttindalaus“ og
að uppi væri ósætti við íbúa á Leifs-
götu 4 til 10.
Eftir að Íslandsbanki seldi húsið
óskuðu íbúar í húsfélaginu Leifsgötu
4-10 eftir því við byggingarfulltrúa
að hann léti fjarlægja hið óleyfilega
bakhús. Töldu þeir að hafnar væru
óleyfilegar framkvæmdir og óheim-
il atvinnustarfsemi í eigninni.
Eftir þrjár vettvangsferðir full-
trúa byggingarfulltrúa á staðinn
og bréf til hins nýja eiganda ákvað
byggingarfulltrúi í júní í sumar að
aðhafast ekki meira að svo stöddu.
Húsfélagið Leifsgata 4 til 10 kærði þá
ákvörðun.
Úrskurðarnefndin tók undir með
íbúunum. Byggingarfulltrúa hefði
ekki verið stætt á að styðja ákvörð-
un sína um að aðhafast ekki frekar
með þeim rökum að óskum hans
hefði ekki verið sinnt, enda var þá
tilgangi skoðunarinnar ekki náð.
Þar að auki lægju fyrir gögn,
meðal annars myndupptaka sem
gáfu til kynna að bakhúsið væri nýtt
í atvinnuskyni. Full ástæða hefði
verið fyrir byggingarfulltrúa til að
rannsaka málið frekar.
Þá bendir úrskurðarnefndin á að
þrátt fyrir að eigandi mannvirkis
beri ábyrgð á eigin brunavörnum
taki eftirlit byggingar fulltrúa til
mannvirkja sem reist eru án tilskil-
ins leyfis, enda geri lög beinlínis
ráð fyrir að þvingunarúrræðum sé
beitt vegna ólöglegra mannvirkja.
„Verður að telja það ótækt að
ákvörðun um að aðhafast ekki
frekar vegna skorts á bruna-
vörnum, sem lúta skýrlega að
almannahagsmunum og í þessu
tilviki tengjast öryggi og heilsu
félagsmanna kæranda [húsfélags-
ins Leifsgötu 4 til 10] og annarra
íbúa hverfisins, sé rökstudd með
vísan til þess að ábyrgðin liggi hjá
eiganda mannvirkis,“ undirstrikar
úrskurðarnefnd umhverfis- og auð-
lindamála. n
Sennilega væri best að
þið létuð rífa þetta til
að losna við öll gjöld.
Úr ráðleggingum Reykjavíkur-
borgar til Íslandsbanka
Áin hýsir nú 115
tegundir af fiskum og
92 tegundir af fuglum.
bth@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL Fjölnir Sæmunds-
son, formaður Landssambands
lögreglumanna, segist ekki sjá að
ríkislögreglustjóri geti haft mikið
um mál Þorbjargar Ingu Jóns-
dóttur lögmanns að segja. Hann
hefði kosið að ríkissaksóknari tæki
málið upp.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
dómsmálaráðherra sagði í skrif-
legu svari við fyrirspurn Frétta-
blaðsins að ásakanir lögmannsins
um að réttarkerfið gerði manna-
mun væru mjög alvarlegar og að
hún myndi fela ríkislögreglustjóra
að rannsaka málið.
Landssamband lögreglumanna
fór hins vegar fram á með bréfi til
dómsmálaráðuneytisins að ríkis-
saksóknari hæfi sjálfstæða rann-
sókn.
Í Fréttavaktinni á sjónvarps-
stöðinni Hringbraut var Fjölnir til
svara, meðal annars um viðbrögð
Áslaugar Örnu dómsmálaráðherra.
„Það er allt í lagi að hún feli ríkis-
lögreglustjóra að skoða eitthvað og
setji upp einhverja nefnd. En eins
og við lítum á þetta hefur ríkislög-
reglustjóri ekkert rannsóknarvald
og hann er ekki stjórnandi rann-
sókna á landinu heldur ríkissak-
sóknari,“ segir Fjölnir.
Hann bætir við að ríkissak-
sóknari gefi lögreglustjórum og
héraðssaksóknurum tilmæli um
rannsóknir.
„Ríkislögreglustjóri hefur eitt-
hvað yf ir lögreglumönnum að
segja. En við erum að tala um rann-
sóknir brota og þá hljótum við að
leita til þess sem er yfir þessum
brotum sem er ríkissaksóknari.“
Fjölnir telur að Þorbjörg Inga sé
orðin vanhæf til að sitja í nefnd um
eftirlit með lögreglu. Spurður, ofan
á svokallað Ásmundarsalarmál,
þar sem nefndin hafði afskipti af
lögreglumönnum í þeirra óþökk,
hvort ummæli Þorbjargar Ingu nú
hefðu verið kornið sem fyllti mæli
lögreglumanna, svarar hann:
„Já, kannski dálítið.“ n
Vill að ríkissaksóknari
taki upp mál Þorbjargar
20%
AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM
Í VEFVERSLUN
11.11.
teogkaff i . is
Eins og við lítum á
þetta hefur ríkislög-
reglustjóri ekkert
rannsóknarvald.
Fjölnir
Sæmundsson,
formaður Lands-
sambands lög-
reglumanna Borginni gert að beita sér
gegn bakhúsi á Leifsgötu
Bakhúsið á Leifsgötu 4b var reist í óleyfi árið 1946 og er nágrönnunum þyrnir í augum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Iðar af lífi þrátt fyrir dánarvottorð
Thames var lýst sem líffræðilega dauðri 1957. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
8 Fréttir 11. nóvember 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ