Fréttablaðið - 13.11.2021, Síða 38
Við þökkum fyrir stuðninginn
Reykjavík
A. Margeirsson ehf, Flúðaseli 48
Aðalverkstæðið ehf, Malarhöfða 2
Aðalvík ehf, Síðumúla 13
Afl - Múr ehf, Urðarbrunni 28
Antiksalan ehf, Þórunnartún 6
ARGOS ehf-Arkitektastofa Grétars og
Stefáns, Eyjarslóð 9
Arion banki hf, Borgartúni 19
Arkiteo ehf, Hvassaleiti 39
Atvinnueign ehf, Síðumúla 13
Auglýsingastofan ENNEMM,
Skeifunni 10
Auglýsingastofan Korter ehf,
Skútuvogi 6
Augnablikk ehf, Bíldshöfða 18
Álnabær ehf, verslun, Síðumúla,
Keflavík og Akureyri
Ásbjörn Ólafsson ehf,
Köllunarklettsvegi 6
B.B. rafverktakar ehf, Bíldshöfða 18
Bakarameistarinn ehf, Stigahlíð 45-47
BBA FJELDCO ehf, Katrínartúni 2
Betra líf ehf, Kringlunni 8
Bílaréttingar og bílasprautun Sævars
ehf, Skútuvogi 4
Bókhaldsstofa Haraldar slf,
Suðurlandsbraut 32
BSI bifreiðaverkstæði ehf, Ásgarði 4
BSRB, Grettisgötu 89
Bygg Ben ehf, Lambhagavegi 29
Conís ehf, verkfræðiráðgjöf,
Fellsmúla 26
Curvy.is - tískuverslun, Fellsmúla 26
Drífa efnalaug og þvottahús,
Hringbraut 119
Elding Trading Co ehf, Grenimel 45
Endurskoðun VSK ehf, Stórhöfða 33
Engo verkefni ehf, Sporhömrum 12
EÖ Raf ehf, Skólavörðustíg 8
Ferill ehf, Mörkinni 1
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga,
Suðurlandsbraut 22
Fiskkaup hf, Fiskislóð 34
Fjöður ehf, þvottahús, Ármúla 44
Flügger ehf, Stórhöfða 44
Flutningaþjónusta Arnars ehf,
Þingási 46
Flutningur ehf, Fannafold 179
Gjögur hf, Kringlunni 7
Golfskálinn, golfverslun, Bíldshöfða 16
Grettir, vatnskassar ehf, Vagnhöfða 6
Guðlaugur A. Magnússon,
skartgripaverslun, Skólavörðustíg 10
Gull og silfur ehf, Laugavegi 52
Gunnar Örn - málningarþjónusta,
Álftahólum 6
Gúmmívinnustofan SP dekk ehf,
Skipholti 35
H og S byggingaverktakar ehf,
Bláskógum 16
Halldór Jónsson ehf, Skútuvogi 11
Hársnyrtistofa Dóra, Langholtsvegi 128
Heggur ehf, Bíldshöfða 18
Hitastýring hf, Ármúla 16
Hjá Ingvarsson ehf, Vesturási 5
Hollt og gott ehf, Fosshálsi 1
Hótel Leifur Eiríksson ehf,
Skólavörðustíg 45
Hreinsitækni ehf, Stórhöfða 37
Húsaklæðning ehf-www.husco.is,
Kaplaskjólsvegi 93
Hússtjórnarskóli Reykjavíkur,
Sólvallagötu 12
Höfðahöllin bílasala, Funahöfða 1
Höfðakaffi ehf, Vagnhöfða 11
Icepack ehf, Krókhálsi 4
Jarðlist ehf, Ljósheimum 2
Jón Auðunn Kristinsson -
Pípulagningameistari, Efstaleiti 27
Jón Bergsson ehf, Kletthálsi 15
K.F.O. ehf, Grundargerði 8
Kaffifélagið, Skólavörðustíg 10
Kanon arkitektar, Laugavegi 26
Klettur-Skipaafgreiðsla ehf,
Korngörðum 5
Landslag ehf, Skólavörðustíg 11
Landsnet hf-www.landsnet.is,
Gylfaflöt 9
Litsýn ehf
L’occitane - Kringlan
Málarasmiðjan ehf, Mánatúni 1
Málmtækni hf, Vagnhöfða 29
Meba- úr og skart, Kringlunni og
Smáralind
Multivac ehf, Draghálsi 18
Nói-Síríus hf, Hesthálsi 2-4
Nýja sendibílastöðin hf, Knarrarvogi 2
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins,
Kringlunni 7
Olíudreifing ehf, Hólmaslóð 8
Orka ehf, Stórhöfða 37
Ortis tannréttingar slf, Faxafeni 11
Ósal ehf, Tangarhöfða 4
ÓV jarðvegur ehf, Vesturlandsvegi 200
Pétur Stefánsson ehf, Vatnsstíg 22
Pfaff hf, Grensásvegi 13
Prófílstál ehf, Smiðshöfða 15
Rafeindastofan ehf, Faxafeni 12
Rafha ehf, Suðurlandsbraut 16
Rafstjórn ehf, Stangarhyl 1a
Rafsvið sf, Viðarhöfða 6
Rannsókna- og háskólanet Íslands,
Dunhaga 5
Reiðhjólaverzlunin Berlín,
Háaleitisbraut 12
Reykjafell hf, Skipholti 35
Rikki Chan ehf, Kringlunni 4-12
og Smáratorgi 1
Rima Apótek, Langarima 21-23
Rýni endurskoðun ehf,
Suðurlandsbraut 18
S4S ehf, Guðríðarstíg 6
Sameyki stéttarfélag í almanna-
þjónustu, Grettisgötu 89
Samrás ehf verkfræðistofa,
Hólmaslóð 2
Samtök starfsmanna fjármálafyrir-
tækja-SSF, Nethyl 2e
SHV pípulagningaþjónusta ehf,
Funafold 54
Sigurjónsson & Thor ehf, Lágmúla 7
Sjávargrillið ehf, Skólavörðustíg 14
Sjúkraþjálfunarstöðin ehf, Þverholti 18
Skjaldbaka ehf, Lofnarbrunni 18
Skolphreinsun Ásgeirs sf, Unufelli 13
Skóarinn í Kringlunni ehf,
Kringlunni 4-6
Spektra ehf, Laugavegi 178
Sprinkler pípulagnir ehf, Bíldshöfða 18
Stansverk ehf, Hamarshöfða 7
Stál og stansar ehf, Vagnhöfða 7
Stjörnuegg hf, Vallá Kjalarnesi
Straumkul ehf, Viðarási 79
Styrja ehf, Depluhólum 5
Suzuki á Íslandi, Skeifunni 17
Svampur ehf, Vagnhöfða 14
SVÞ-Samtök verslunar og þjónustu,
Borgartúni 35
Systrasamlagið ehf, Óðinsgötu 1
Tannlæknastofa Sigurjóns Arnlaugs-
sonar ehf, Skólavörðustíg 14
Tannréttingar sf, Snorrabraut 29
Trévirkinn ehf, Súðarvogi 7
Trivium ráðgjöf ehf, Borgartúni 20
Tölvar ehf, Síðumúla 1
Tösku- og hanskabúðin ehf,
Laugavegi 103
Umbúðamiðlun ehf, Korngörðum 5
Útfaraþjónusta Rúnars Geirmunds-
sonar, Þverholti 30
Útgerðarfélag Reykjavíkur hf,
Fiskislóð 14
Vals tómatsósa ehf
Verkfræðistofa Stanley Pálssonar,
Skipholti 50b
Verslunartækni ehf, Draghálsi 4
Verslunin Álfheimar, Álfheimum 2
Vesturröst-Sérverslun veiðimanna,
Laugavegi 178
Vélar ehf, Vatnagörðum 16
Vélvík ehf, Höfðabakka 1
Við og Við sf, Gylfaflöt 3
Víkurós ehf, bílamálun og réttingar,
Bæjarflöt 6
Víkurvagnar ehf, Hyrjarhöfða 8
VT Þjónustan ehf, Esjugrund 18
Würth á Íslandi ehf, Norðlingabraut 8
Xanadú snyrtistofa, s: 577 2121,
Eddufelli 2
Zeppelin arkitektar, Skeifunni 19
Þráinn skóari ehf, Grettisgötu 3
Seltjarnarnes
Borgarblöð ehf, Eiðistorg 13-15
Vogar
Kvenfélagið Fjóla
Toggi ehf, Suðurgötu 2A
Kópavogur
Allt-af ehf, Baugkór 30
AMG Aukaraf ehf, Dalbrekku 16
AP varahlutir ehf, Smiðjuvegi 4
Arkís arkitektar ehf, Vesturvör 7
Arnarljós, Digranesheiði 45
Automatic ehf, heildverslun,
Smiðjuvegi 42, rauð gata
Ásborg slf, Smiðjuvegi 11
Bak Höfn ehf, Jöklalind 8
Bergnes skiltagerð, Smiðjuvegi 4
Bílamálunin Varmi ehf, Auðbrekku 14
Bíljöfur ehf, gul gata, Smiðjuvegi 34
Blikkarinn ehf, blikksmiðja, Auðbrekku
3-5
Blikkform ehf, Smiðjuvegi 6
Blikksmiðjan Vík ehf, Skemmuvegi 42
Einar Beinteins ehf - Dúklagninga-
meistari, Grófarsmára 8
Fagtækni ehf, Akralind 6
Fríform ehf, Askalind 3
GG Sport, Smiðjuvegi 8, græn gata
S J Ú K R A Þ J Á L F U N
R E Y K J A V Í K
Ré t t i n g
&
Sprau t u n
E S T . 1 9 9 3
Jose Rivera greindist óvænt
með 2. stigs krabbamein í
blöðruhálskirtli. Eiginkona
hans, Laila Margrét Arn-
þórsdóttir, segir stuðning
og þjónustu Framfarar hafa
gripið þau í áfallinu.
„Það var í mars sem Jose átti erindi
við hjartalækni og fer þá í blóð-
prufu þar sem PSA-gildi benda til
mögulegs krabbameins í blöðru-
hálskirtli. Hann var einkennalaus
með öllu en var næst kallaður á
fund Rafns Hilmarssonar þvag-
færaskurðlæknis sem greindi
okkur frá því að Jose væri með
2. stigs krabbamein í blöðruháls-
kirtli. Það voru tíðindi sem var
erfitt að meðtaka og slógu Jose
strax út af laginu, ekki síst þar sem
tvær systur hans féllu ungar frá
úr krabbameini. Orðið krabba-
mein olli því mikilli skelfingu hjá
mínum manni,“ greinir Laila frá.
Á læknafundinum með Rafni
urðu hjónin eðlilega felmtri slegin.
„Ég gleðst enn yfir því að hafa
fylgt Jose á þennan fund. Rafn
læknir var nærgætinn, yfirvegaður
og yndislegur í alla staði, en það
breytti ekki því að Jose varð ómót-
tækilegur fyrir öllu sem fram fór á
fundinum, nema þeirri staðreynd
að hann værir með krabbamein.
Sjálf var ég líka í áfalli því frétt-
irnar komu eins og þruma úr
heiðskíru lofti. Ég sá hvað Jose var
brugðið og ákvað að taka flug-
freyjuna á þetta strax og setja
súrefnisgrímuna á mig áður en ég
hjálpaði Jose,“ segir Laila.
Okkar mesta gæfa
Laila segir fæsta vita hvers þeir eigi
að spyrja lækna um á stundu sem
þessari.
„Ég þekkti Guðmund G. Hauks-
son, framkvæmdastjóra Fram-
farar, af öðrum vettvangi og vissi
að hann hefði gengið í gegnum
það sama, en á sama tíma vissi ég
ekki af tilvist Framfarar né Bláa
trefilsins. Ég ákvað samdægurs
að hafa samband við Guðmund
og þar vorum við bara gripin
strax. Það er að mínu mati okkar
mesta gæfa, að hafa fengið ráðgjöf,
stuðning og leiðsögn frá aðila sem
gat uppfrætt okkur um næstu
skref og þjónustu. Undir eins fékk
ég mikið af upplýsingum sem ég
gat unnið úr og smám saman gefið
manninum mínum þegar ég sá að
hann varð móttækilegur fyrir því.“
Önnur heillastjarna sem Laila
segir hafa verið yfir þeim hjónum
eru góð vinahjón.
„Konan hafði greinst með
brjóstakrabbamein og tók minn
mann strax í gjörgæslu, kynnti
hann fyrir Ljósinu og þar hjálpaði
mikið að þau gátu talað um sam-
eiginlega reynslu, á meðan ég og
maðurinn hennar gátum rætt
málin sem aðstandendur.“
Laila fær ekki nógsamlega
þakkað stuðninginn frá Framför.
„Það sem stendur upp úr er að
mér finnst ég aldrei hrædd. Það
er ónotalegt að vera haldin þeirri
tilfinningu, en nú þegar ég hef
fengið þennan ótrúlega fallega
stuðning og ráðgjöf hjá Framför
veit ég að allt verður í lagi. Ég vildi
bara óska að allir á þessari vegferð
sæktust eftir ráðgjöf Framfarar,
því það skiptir sköpum í veikinda-
og bataferlinu. Okkur var bara
pakkað inn í bómull og ég vildi að
allir væru jafn lánsamir.“
Væri bæði skelkaðri og týndari
Allir sem greinast með blöðru-
hálskirtilskrabbamein og
aðstandendur þeirra geta leitað til
Framfarar.
„Við fórum strax í ráðgjafar-
viðtal og höfum alltaf farið saman:
ég hef aldrei sent Jose einan. Við
hittum bæði Guðmund og Þráin
Þorvaldsson og fengum reynslu-
sögur og betri útskýringar á
mörgu sem ég hafði ekki rænu á
að spyrja um á læknafundinum,
né hefði Jose getað borið sig eftir
björginni sjálfur þá, eins og hann
var á sig kominn. Ég sá fljótt hvað
þetta gerði Jose gott, sem og sam-
skiptin við vinahjónin sem voru í
sömu sporum og Rafn lækni sem
hélt líka fallega utan um okkur.
Ég hvet því alla sem eru í þessum
sporum til að leita allrar aðstoðar
sem er í boði og það sem fyrst. Sjálf
hefði ég verið mun skelkaðri og
týndari, hefði ég ekki strax fengið
þetta mikla og góða utanumhald.
Nú lítum við Jose á krabbameinið
sem verkefni sem þarf að takast á
við og vitum að lífslíkur eru góðar.
Engu að síður þarf að vera vakandi
fyrir því að finna meinið og vera
meðvitaður um það, en allt gerir
þetta að verkum að við eigum
auðveldara með að takast á við
verkefnið og vitaskuld er ekkert
annað í boði,“ segir Laila.
Jose hefur ekki enn þurft að fara
í aðgerð vegna krabbameinsins en
ákveðið var að hann færi fyrstu
sex mánuðina í virkt eftirlit.
„Jose er líkamlega hress en á
auðvitað sínar erfiðu stundir,
eins og gefur að skilja. Hann gerir
sér grein fyrir að PSA-gildin geta
hækkað á einu augnabliki og að
þá þurfi að grípa til aðgerðar,
og þá tökumst við á við það. Við
vitum nákvæmlega út á hvað þetta
gengur og höfum fengið dýrmæt-
an aðlögunartíma í virka eftir-
litinu og með stuðningi Framfarar.
Við erum ótrúlega lánsöm,“ segir
Laila. ■
Okkur var pakkað inn í bómull
Laila hafði samdægurs samband við Framför þegar maður hennar greindist með krabbamein. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Það sem stendur
upp úr er að mér
finnst ég aldrei hrædd.
Það er ónotalegt að vera
haldin þeirri tilfinningu,
en nú þegar ég hef fengið
þennan ótrúlega fallega
stuðning og ráðgjöf frá
Framför veit ég að allt
verður í lagi.
Laila Margrét Arnþórsdóttir
4 13. nóvember 2021 LAUGARDAGURblái trefillinn