Fréttablaðið - 13.11.2021, Side 71

Fréttablaðið - 13.11.2021, Side 71
Magnús Friðbergsson mælir með sæbjúgnahylkjum frá Arctic Star, en hann finnur mun á sér eftir að hann fór að nota þau. Sæbjúgu inni- halda yfir fimmtíu tegundir af næringarefnum. Í Kína eru sæbjúgu þekkt sem heilsubótarfæði og notuð til bóta við hinum ýmsu meinum. Kín- verjar kalla sæbjúgu gjarnan „gin- seng hafsins“ og til eru sagnir um notkun sæbjúgna þar fyrir meira en þúsund árum. Arctic Star sæbjúgnahylkin inni- halda yfir fimmtíu tegundir af nær- ingarefnum sem geta haft jákvæð áhrif á lífeðlisfræðilega starfsemi mannslíkamans, til dæmis er mikið kollagen í þeim, en það er eitt helsta uppbyggingarprótein líkamans. Finnur mikinn mun á sér Á síðustu árum hefur Arctic Star sérhæft sig í þróun á fæðu- bótarefnum, svo sem framleiðslu, markaðssetningu og sölu á hágæða sæbjúgnahylkjum. -Hylkin eru framleidd úr íslensk- um, hágæða, villtum sæbjúgum Sæbjúgnahylkin eru bylting Magnús er betri í hnjám og finnur minna fyrir lið­ verkjum eftir að hann fór að taka sæbjúgnahylkin. áður. Að minnsta kosti gerði ég það ekki með bros á vör og það tók mig langan tíma að jafna mig eftir álag,“ útskýrir hann. Magnús, sem er 71 árs, hafði fengið að heyra frá lækni að mikið slit væri í hnjám hans og ekki væri von á að það gengi til baka. „Hann sagði mér að kíkja á fæðingardaginn minn og að ég gæti ekki búist við að fara aftur í tíma. Mér fannst vont að heyra þetta og var því tilbúinn að prófa ýmislegt sem gæti mögulega lagað þetta. Sæbjúgnahylkin frá Arctic Star virka mjög vel á mig og ég mæli með að fólk prófi þau.“ n Arctic Star sæbjúgnahylki+D3 fást í flestum apótekum og heilsubúð­ um ásamt Hagkaupum, Fjarðar­ kaupum og á Heimkaup.is. Kvintettinn Hviða var stofnaður í desember árið 2019 af fimm ungum tón- listarmönnum. Hljómsveitin leitast við að spila þunga- vigtarverk blásarakvint- etts-tónbókmenntanna og samanstendur af fimm með- limum frá fjórum löndum. johannamaria@torg.is Þrír meðlimir hljómsveitarinnar eru fastráðnir hjá Sinfóníuhljóm- sveit Íslands. Það eru Julia Hant chel óbóleikari, Bryndís Þórisdóttir á fagott og Frank Hammarin horn- leikari. Finn Schofield á klarínett og Björg Brjánsdóttir þverflautu- leikari eru sjálfstætt starfandi tón- listarmenn og spila bæði reglulega með Sinfóníunni. „Við kynntumst öll við að spila saman og það var Julia sem átti frumkvæðið að því að stofna hljómsveitina. Hana langaði að stofna kvintett og hóaði í okkur. Þannig varð hljómsveitin til,“ segir Björg Brjánsdóttir. Fimm áttir Bryndís nam við Konunglega Tón- listarháskólann í Kaupmannahöfn. Hún hefur verið aukamaður hjá Dönsku útvarpshljómsveitinni og Sinfóníuhljómsveit Sjálands og spilar reglulega með hljómsveitum á borð við Hljómsveit Íslensku óperunnar og Caput. Frank Hammarin frá Kaliforníu er með meistaragráðu frá The Pea- body Institute í Baltimore. Kennari hans þar var Denise Tryon. Sam- hliða starfinu hefur hann spilað kammertónlist á alþjóðlegum vettvangi. Julia Hantschel er frá Aachen í Þýskalandi. Hún stundaði nám við Musikhochschule Freiburg im Breisgau, Sibeliusarakademíuna í Helsinki og í Hochschule für Musik í Basel. Hún hefur kennt víða um heim og komið fram sem einleikari. Finn Alexander Schofield er frá Nýja-Sjálandi. Hann er með meistaragráðu frá Tónlistarháskól- anum í Zürich og master í kammer- músík við Tónlistarháskólann í Trossingen í Þýskalandi. Finn hefur spilað á námskeiðum fyrir marga af frægustu klarínettuleikurum heims. Björg Brjánsdóttir útskrifaðist af einleikarabraut frá Tónlistar- háskóla Noregs 2017. Hún er stofnandi kammersveitarinnar Elju. Hún er fastur flautuleikari tónlistarhópsins Caput og með- limur flautuseptettsins Viibra sem hefur unnið með Björk Guðmunds- dóttur frá árinu 2016. Tveir Íslendingar, Þjóðverji, Nýsjálendingur og Bandaríkja- maður. Hvernig hefur þessi þjóða- blanda áhrif á hljómsveitina? „Ég hef í raun aldrei pælt í því að við séum frá mörgum löndum. Við tölum mest saman á ensku og það er alveg fyndið að heyra fjóra mismunandi enska hreima. Það er samt mjög skemmtilegt að við séum úr svona mörgum áttum og gefur okkur alveg örugglega mjög mikið.“ Mér skilst að kvintettinn hafi hálfgert gælunafn. Kvíðakvintett- inn. Viltu útskýra þessa nafngift? „Þetta grín spratt út frá því að nafnið okkar Hviða hljómar ansi líkt „kvíða“, sérstaklega þegar það er sagt í samræðum á ensku. Við gerum samt auðvitað okkar besta til að vinna vel á kvíða og halda í spilagleðina í flutningnum, Hviða er betri en kvíði,“ segir Björg og hlær. Bestu minningarnar tengdar hljómsveitaræfingum „Við erum öll sammála um að kvin- tettinn sé mjög beintengdur Covid- 19 faraldrinum, en hann var stofn- aður áður en fyrsta bylgjan skall á. Við byrjuðum að æfa í febrúar 2020 fyrir fyrstu tónleikana okkar sem áttu að vera í apríl. Þetta var í fyrstu bylgjunni á tíma þegar maður hitti aldrei neinn, en við stofnuðum faraldurskúlu og hittumst til að spila saman. Það er eitthvað mjög fallegt við það að hafa getað hist og gert músík saman þó að það væri búið að aflýsa öllum tónleikum um ófyrirséðan tíma og það gaf okkur mikið. Tónleikarnir í apríl breytt- ust í stafræna tónleikaheimsend- ingu tónleikaraðarinnar „Heima í Hörpu“ frá Eldborg. Æfingar með kvint ettinum eru einar af mínum bestu minningum frá Covid-tím- anum,“ segir Björg. Hvernig hefur gengið að halda tónleika og æfa á faraldurstímum? „Þetta hefur verið ævintýralegt eins og hjá mörgum. Fyrstu tón- leikar 2020 urðu að streymistón- leikum. Næstu tónleikum frest- uðum við tvisvar og héldum þá loks í Dómkirkjunni í febrúar 2021 við góðar undirtektir. Við þurftum svo að fresta tón- leikum á vegum tónleikaraðarinn- ar Tíbrár í Salnum í Kópavogi um daginn vegna sóttkvíar hjá tveimur meðlimum. Þeir tónleikar verða á dagskrá núna á þriðjudaginn 16. nóvember í Salnum. Á dagskrá verður fáheyrð blásaratónlist með frönsku ívafi. Þarna eru fjölbreytt verk eftir Jaques Ibert, Maurice Ravel, Jean Françaix og Francis Poulenc. Þetta verður heilmikil frönsk veisla og með okkur kemur fram píanóleikarinn Mathias Hal- vorsen sem flytur með okkur frá- bæran sextett Poulenc fyrir píanó og blásarakvintett.“ Klæjar í fingurna Kvintettinn segir Björg leitast við að taka fyrir þungavigtar- verk blásarakvintetts-tónbók- menntanna og á sama tíma finna minna spiluð verk sem eru vel verð áheyrnar. „Verk sem eru krefjandi og dýnamísk fyrir alla spilara og tala til okkar sem heild. Við vorum svo heppin að fá risa- stóran bunka frá Blásarakvintett Reykjavíkur og nýttum Covid- rólegheitin í að spila í gegnum fjöldann allan af verkum. Þannig uppgötvuðum við alls konar verk sem við þekktum ekki fyrir. Svo er auðvitað kúnstin að púsla saman verkum þannig að þau myndi fal- lega heild. Stundum eru andstæð- urnar áhugaverðastar og stundum er skemmtilegast að hafa rauðan þráð í gegnum efnisskrána. Það má segja að bæði eigi við um efnis- skrána á þriðjudaginn: verkin eru öll frönsk en gjörólík á sinn hátt. Við erum búin að vera að æfa þessa dagskrá fyrir Tíbrá síðan í ágúst og klæjar í fingurna að fá að flytja þessa fallegu tónlist. Við erum komin í góða þjálfun að færa til og aðlaga okkur síbreyti- legum aðstæðum, en vonumst að sjálfsögðu til þess að geta haldið tónleikana á þriðjudaginn með glæsibrag,“ segir Björg. Hvað er svo á döfinni? „Við höfum fengið mörg spenn- andi verkefni í vetur. Við munum meðal annars fara í skólaheim- sóknir að spila Pétur og úlfinn fyrir kvintett og sögumann. Flautan er þá fuglinn, klarinettið er köttur- inn, óbóið er öndin, hornið er úlfurinn og fagottið túlkar afann. Pétur er sá eini sem er ekki skrif- aður með sérstakt hljóðfæri, en hans persónu er skellt inn í ýmis önnur hljóðfæri. Þá verðum við með tónleika í Hörpu þann 13. desember með ólíkri efnisskrá frá Tíbrártónleikunum,“ segir Björg að lokum. n Hviða er betri en að kvíða Kvintettinn var stofnaður á vetrardögum 2019 og fékk gælunafnið Kvíða­ kvintettinn, enda hófu meðlimir hljómsveitaræfingar í miðjum heims­ faraldri. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Það er eitthvað fallegt við að hafa getað hist og gert músík saman þó að það væri búið að aflýsa öllum tónleikum um ófyrir- séðan tíma og það gaf okkur mikið. sem eru veidd í Atlantshafinu. Magnús Friðbergsson hefur tekið sæbjúgnahylkin frá Arctic Star undanfarin ár. „Vinur minn kynnti mig fyrir sæbjúgnahylkjunum og þar sem ég hafði lengi verið slæmur í hnjám, með liðverki og lítið getað beitt mér, ákvað ég að prófa. Tveimur til þremur vikum seinna fann ég mikinn mun. Nú hef ég tekið sæbjúgnahylkin í nokkur ár og fer allra minna ferða án óþæginda. Það er algjör bylting frá því sem áður var. Nú get ég gert hluti eins og að fara í langar gönguferðir, sem ég gat varla gert ALLT kynningarblað 5LAUGARDAGUR 13. nóvember 2021
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.