Fréttablaðið - 13.11.2021, Qupperneq 39
Rekstrarstjóri
Sem rekstrarstjóri berð þú ábyrgð
á daglegum rekstri sjóbaðanna og
gistingarinnar í Hvammsvík.
Rekstrarstjóri þarf að tryggja að allt
sé eins og best verður á kosið og vera
til staðar til að taka á móti gestum
og sjá til að þeir fái bestu mögulegu
upplifunina með sínu fólki.
Sölu- og markaðsstjóri
Sem sölu- og markaðsstjóri sérð þú
um að byggja upp sterkt vörumerki
með áherslu á stafræna markaðs-
setningu. Þú vinnur markvisst að því
að hámarka sölu og þjónustu í gegnum
vefsíðu félagsins ásamt því að þróa
einstaka upplifun og viðburði fyrir
gesti þegar á staðinn er komið.
Umsjón með kerfum og fasteignum
Við leitum að sjálfstæðum einstaklingi
sem getur gert allt! Í Hvammsvík er
fjöldi húsa og húsakynna auk heita-
vatnsborholu, kaldavatnsbrunna,
sjódælu og dælustöðvar þar sem
blandað er saman köldum söltum sjó
við 90 gráðu heitt vatn til að tryggja
heitar laugar án nokkurra bætiefna á
sem náttúrulegastan máta. Um er að
ræða fjölbreytt starf í Hvammsvík og
er æskilegt að viðkomandi geti gengið
í öll tilfallandi verkefni.
Aðalbókari
Sem aðalbókari berð þú ábyrgð á
bókhaldi, launavinnslu, innheimtu og
innkaupum félagsins ásamt tengdra
félaga. Þú munt sjá um að færa
bókhaldið, afstemmingar, uppgjör
virðisaukaskatts, mánaðarleg uppgjör
og skil á bókhaldi til endurskoðenda.
Einnig munt þú sjá um samantekt
fjárhagsupplýsinga og skýrslugerð.
Starfsstöð er í Reykjavík með viðveru
í Hvammsvík.
Við leitum að kraftmiklum aðilum sem hafa brennandi áhuga á náttúru, heilsu og ferðalögum til að taka
þátt í og leiða spennandi uppbyggingu í Hvammsvík með sjóböðum, lúxusgistingu og einstakri upplifun.
www.hvammsvik.is
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Umsóknarfrestur er til og með 23. nóvember nk. Sótt er um störfin á www.vinnvinn.is.
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára