Fréttablaðið - 13.11.2021, Blaðsíða 41
Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarna-
dóttir (audur@vinnvinn.is) og Jensína K.
Böðvarsdóttir (jensina@vinnvinn.is).
Heilbrigðiseftirlit Vesturlands var stofnað árið
1999 af sveitarfélögum á Vesturlandi og starfar
í umboði Heilbrigðisnefndar Vesturlands.
Að Heilbrigðiseftirliti Vesturlands standa 11
sveitarfélög á Vesturlandi, það eru Akranes,
Hvalfjarðarsveit, Skorradalshreppur, Borgar
byggð, Eyja og Miklaholtshreppur, Snæfellsbær,
Grundarfjörður, Stykkishólmur, Helgafellssveit
og Dalabyggð ásamt Kjósarhreppi.
Hlutverk heilbrigðiseftirlits er að vinna í
almannaþágu með því að framfylgja þeim
lögum og reglugerðum sem heyra undir
stofnunina.
Framkvæmdastjóri
Heilbrigðiseftirlit Vesturlands óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra til að leiða daglegan rekstur
starfseminnar. Leitað er að öflugum einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á þjónustu við
nærsamfélagið í umhverfis- og lýðheilsumálum.
Framkvæmdastjóri þarf að hafa réttindi sem heilbrigðisfulltrúi eða menntun til að geta sótt sér slík
réttindi skv. reglugerð 571/2002 um menntun og skyldur heilbrigðisfulltrúa.
Helstu verkefni:
• Að vera í forsvari fyrir stofnunina og fylgja eftir hlutverki hennar.
• Daglegur rekstur og stjórnun þ.m.t. mannauðsmál.
• Móta framtíðarsýn, stefnumótun og markmiðasetningu.
• Skýrslu- og áætlanagerð ásamt kostnaðareftirlit.
• Samskipti við hagaðila þ.m.t. sveitarfélög, ráðuneyti og stofnanir stjórnsýslunnar.
Hæfniskröfur:
• Háskólapróf sem nýtist í starfi.
• Reynsla af rekstri og stjórnun.
• Reynsla af áætlanagerð og kostnaðareftirliti.
• Leiðtogahæfileikar.
• Lipurð í samskiptum og þjónustulund.
• Frumkvæði, metnaður og lausnamiðuð hugsun.
• Þekking á opinberri stjórnsýslu.
• Góð íslenskukunnátta og færni í tjáningu í ræðu og riti.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Umsóknarfrestur er til og með 23. nóvember nk.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Umsjón með starfinu hafa Hilmar G.
Hjaltason (hilmar@vinnvinn.is) og
Auður Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is).
Frumtak leitar að öflugum lögfræðingi með frumkvæði og hæfileika til að laga sig að fjölbreyttum
og krefjandi verkefnum. Lögð er höfuðáhersla á traust samstarf og stuðning við fyrirtækin í
eignasafninu. Bjóðum upp á sveigjanleika og tækifæri til að móta eigið starfsumhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Virk þátttaka í mótun og þróun á starfsemi félagsins.
• Lögfræðileg ráðgjöf og samningagerð í tengslum við fjárfestingar og útgöngur.
• Ráðgjöf og stuðningur við félög í eignasafni.
• Samskipti við stjórn og hluthafa.
• Umsjón með samskiptum við utanaðkomandi lögmenn félagsins.
• Ábyrgð á samskiptum við eftirlitsaðila.
Reynsla og hæfniskröfur:
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
• Greiningarhæfileikar og geta til að setja sig hratt inn í ólík viðfangsefni.
• Brennandi áhugi á nýsköpun.
• Reynsla af samningaviðræðum og samningagerð.
• Meistarapróf í lögfræði.
• Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
Umsóknarfrestur er til og með 23. nóvember nk.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um,
óháð kyni og uppruna.
Sjóðir Frumtaks fjárfesta í íslenskum
nýsköpunarfyrirtækjum sem eru með
framúrskarandi stjórnendateymi, hafa mikla
möguleika á skölun og geta orðið leiðandi á
sínu sviði á alþjóðavísu. Frumtak er leiðandi
fjárfestir og vinnur náið með fyrirtækjum
eignasafnsins. Höfuðáhersla er lögð á traust
samstarf og stuðning.
Nánari upplýsingar á frumtak.is.
Viltu taka þátt í uppbyggingu nýsköpunar?
Lögfræðingur
ATVINNUBLAÐIÐ 3LAUGARDAGUR 13. nóvember 2021