Fréttablaðið - 13.11.2021, Side 50
Bændasamtök Íslands
leita að öflugum starfskrafti
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg
starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er
grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
hæfni viðkomandi í starfið.
Upplýsingar um starfið veitir Vigdís Häsler
framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands.
Umsóknir, merktar Umsókn um starf sérfræðings,
berist eigi síðar en 22. nóvember nk. á netfangið
vigdis@bondi.is.
Vakin er athygli á því að þeir sem
ráðnir verða geta haft starfsstöð utan
höfuðborgarsvæðisins.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf
sem reynir á frumkvæði og úthald í áhuga-
verðum verkefnum á fagsviði nautgriparæktar.
Sérfræðingur á fagsviði nautgriparæktar
ber m.a. ábyrgð á:
▶ Faglegum og félagslegum verkefnum
viðkomandi búgreinar.
▶ Úrvinnslu gagna og miðlun upplýsinga um
mjólkur- og kjötframleiðslu.
▶ Ytra umhverfi greinarinnar og hagsmunagæslu.
▶ Þjónustu, ráðgjöf og miðlun upplýsinga
til félagsmanna.
▶ Aðkoma og undirbúningur að endurskoðun
búvörusamnings.
Menntunar- og hæfniskröfur:
▶ Menntun sem nýtist í starfi.
▶ Þekking á starfsemi félagasamtaka.
▶ Gott vald á úrvinnslu og framsetningu
tölulegra upplýsinga.
▶ Hæfileiki til að starfa í teymi og færni
í samskiptum.
▶ Hæfileiki til að vinna sjálfstætt.
▶ Frumkvæði og metnaður.
▶ Færni til að vinna í hópi og hæfni til að
leiða mál til lykta.
▶ Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
Bændahöllin Hagatorgi 1, 107 Reykjavík
Háskólinn á Akureyri auglýsir lausar til umsóknar tvær
100% stöður lektora við Hjúkrunarfræðideild HA
Umsóknarfrestur er til og með 13. desember 2021
Upplýsingar um starfið veita:
Margrét Hrönn Svavarsdóttir – mhs@unak.is – 460 8471
Sigríður Sía Jónsdóttir – siaj@unak.is – 460 8472
Helstu verkefni og ábyrgð
• Leitað er að öflugum einstaklingum til að annast kennslu, rannsóknir og stjórnun við deildina
• Næsti yfirmaður er formaður Hjúkrunarfræðideildar
• Starfsvettvangur er Háskólinn á Akureyri
Háskólinn á Akureyri er eini háskólinn á Íslandi sem býður upp á sveigjanlegt nám í hjúkrunar-
fræði. Námið er fjögurra ára nám til BS prófs. Niðurstöður kannana meðal stúdenta sýna ánægju
með gæði og innihald námsins. Nám í hjúkrunarfræði er fyrir öll kyn
Fastráðið starfsfólk deildarinnar er tæplega 20 - metnaðarfullur hópur, samsettur af akademísku
starfsfólki, verkefnastjórum og aðjúnktum. Einnig koma fjölmargir stundakennarar að kennslu í
deildinni bæði í fræðilegu og klínísku námi
Hæfniskröfur
• Doktorspróf frá viðurkenndum háskóla
• Þekking og reynsla í samræmi við alþjóðleg viðmið fyrir viðkomandi starfsheiti á fræðasviðinu, staðfest
með áliti dómnefndar
• Reynsla af kennslu og rannsóknum á háskólastigi er skilyrði
• Krafist er góðrar hæfni í mannlegum samskiptum, góðrar færni í að miðla þekkingu og skipulagshæfni
• Gott vald á íslensku og ensku, jafnt töluðu sem rituðu máli. Miðað er við að umsækjandi uppfylli skilyrði
í samræmi við málstefnu skólans á starfstíma
Frekari upplýsingar um starfið
• Stöðurnar eru veittar frá og með 1. júní 2022
• Ráðningartími er tímabundinn til fimm ára en viðkomandi getur
óskað eftir ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum samkvæmt
reglum nr. 258/2016 um störf dómnefndar og ráðningar akademískra
starfsmanna við Háskólann á Akureyri
• Framgangur í stöðu dósents eða prófessors kemur til greina við ráðn-
ingu hafi umsækjandi hæfi til þess að mati dómnefndar
Sótt er um starfið á heimasíðu Háskólans á Akureyri eða Starfatorgi
Einnig er möguleiki á ráðningu í hlutastarf
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is
12 ATVINNUBLAÐIÐ 13. nóvember 2021 LAUGARDAGUR