Fréttablaðið - 13.11.2021, Page 67

Fréttablaðið - 13.11.2021, Page 67
Fjórðungur allra krabba- meina sem greinast hjá körlum er blöðruhálskrabba- mein. Þriðjungur þeirra karla sem lifa með krabba- meini hér á landi er með krabbamein í blöðruháls- kirtli. Nú eru um 90% þeirra sem greinast á lífi fimm árum eftir greiningu. Þráinn Þorvaldsson er stjórnar- formaður Krabbameinsfélagsins Framfarar. Hann greindist með blöðruhálskrabbamein 2005. „Læknirinn minn vildi að ég færi í meðferð. Á þessum tíma fóru nánast allir sem greindust í meðferð. Meðferð þýddi í lang- flestum tilfellum skurðaðgerð þar sem kirtillinn er fjarlægður en stundum geisla- og/eða hormóna- hvarfsmeðferð. Ég vissi ekkert um þennan sjúkdóm og það var auð- vitað áfall að fá þennan dóm, sem þetta var. Ég var svo heppinn að fá aðstoð vinar míns og herbergis- félaga af heimavist Menntaskólans á Akureyri, Jóhanns Heiðars Jóhannssonar, sem er læknir og meinafræðingur. Hann hjálpaði mér að skilja þennan flókna sjúk- dóm.“ Um svipað leyti komu fram nýjar kenningar erlendis um með- höndlun blöðruhálskirtilskrabba- meins og mágur Þráins, Sigmundur Guðbjarnason, fyrrverandi háskólarektor, sagði honum frá hugmyndum dr. Laurence Klotz í Kanada um að ekki þyrftu allir sem greindust að fara í meðferð. „Umræða um þetta var ekki komin hingað heim og læknarnir lögðu mikla áherslu á að ég færi í með- ferð. Ég var 61 árs og ekki tilbúinn í þetta ef ég ætti annan kost. Skurðaðgerð fylgja aukaverkanir, meðal annars getuleysi og þvagleki sem takmarka verulega lífsgæði. Svo vonaðist ég líka til að tækninni myndi fleygja hratt fram.“ Fyrir tíu árum völdu um tíu prósent Bandaríkjamanna sem kljást við þennan sjúkdóm það sem sem kallað er virkt eftirlit og felst í því að reglulega er fylgst með sjúklingum í stað þess að fjarlægja kirtilinn eða fara í aðra meðferð. Nú er hlutfallið komið yfir 50 pró- sent. Í Svíþjóð er hlutfallið 80-90 prósent meðal þeirra sem eru með lág gildi við greiningu. Fjórtán ár í virku eftirliti „Ég var í virku eftirliti í 14 ár frá því að ég greindist þangað til að fyrstu merki komu um að krabbameinið væri að vaxa og fór í meðferð fyrir tveimur árum. Ég fór ekki í skurðaðgerð heldur í geisla- og hormónahvarfsmeðferð. Það er talsverður munur á því að fara í meðferð 75 ára eða 61 árs. Allt að 80 prósent þeirra sem fara í skurðaðgerð missa getuna í það minnsta tímabundið.“ Árið 2014 stofnuðu Þráinn og Sigurður Skúlason leikari stuðn- ingshópinn Frískir menn fyrir þá sem ekki höfðu farið í með- ferð. Þráinn hafði sótt fundi hjá stuðningsmannahópnum Góðum hálsum sem er á vegum Krabba- meinsfélagsins. Þar fannst honum erfitt að hlusta á sögur þeirra sem farið höfðu í meðferð. „Mér fannst líka erfitt þegar ég var að segja frá því að ég hefði ekki farið í meðferð heldur í virkt eftirlit. Menn sögðu gjarnan: Það sagði mér enginn að ég gæti farið þessa leið sem þú fórst. Þetta varð til þess að við Sigurður stofnuðum hópinn Fríska menn.“ Þráinn, Sigurður og fleiri tóku þátt í að endurreisa félagið Fram- för, meðal annars vegna þess að þeir hugðust sækja um aðild að Evrópusamtökunum UOMO, sem eru heildarsamtök blöðruhálskirt- ilssamtaka í Evrópu. Innan þeirra eru 27 lönd. Til að fá aðild þurfti að hafa fullgilt félag. Markmið Fram- farar er að styðja við karlmenn sem hafa blöðruhálskirtilskrabba- mein. „Krabbameinsfélagið hefur stutt okkur vel með góðu fram- lagi úr Velunnarasjóði sem gerði okkur kleift að ráða kraftmikinn starfsmann í hlutastarf, Guðmund G. Hauksson. Tveir bæklingar eru í undirbúningi í samstarfi við Krabbameinsfélag höfuðborgar- svæðisins, annar um virkt eftirlit og hinn um kynlíf. Við erum líka í samstarfi við Félag þvagfæra- skurðlækna og og vinnum að hags- munum þeirra sem greinast og fara í meðferð.“ Innan Framfarar eru þrír stuðningshópar. Frískir menn fyrir greinda sem ekki hafa farið í með- ferð. Annar hópurinn er Blöðru- hálsar/Góðir hálsar, fyrir þá sem farið hafa í meðferð. Upplýsinga- þörf þessara hópa er mismunandi. „Við erum svo að setja af stað hóp fyrir maka, Traustir makar, en þessi sjúkdómur er í raun hjóna- sjúkdómur sem bitnar á báðum hjónum. Það má segja að í Framför séum við að skapa félagslega nánd manna sem fengið hafa þennan sjúkdóm sem og maka þeirra. Við leggjum áherslu á að auka þjónustuna við landsbyggðina. Menn eru náttúrlega dálítið ein- mana í dreifðari byggðum og við viljum þjónusta þá.“ Alþjóðlegt samstarf Þráinn átti þátt í að stofna í Banda- ríkjunum samtökin ASPI (Active Surveilance Patients Internatio- nal). „Við erum með Zoom-fyrir- lestra á netinu einu sinni í mánuði. Þetta eru samtök manna sem vilja benda á að þarna sé leið, ekki eigi allir að fara í meðferð og rétt sé að hugsa allavega málið. En við ráð- leggjum ekki.“ Í UOMO, Evrópusamtökunum, er lögð áhersla á bættar greining- araðferðir og bættar meðferðar- aðferðir, auk bætts upplýsinga- streymis og snemmgreiningar. Þráinn segir ekki allt neikvætt við að greinast með blöðru- hálskirtilskrabbamein. „Það er alltaf mikilvægt að líta á björtu hliðarnar en einblína ekki á þær dökku. Þegar við greindumst leiddi það til jákvæðara viðhorfs okkar hjónanna til lífsins. Maður vissi aldrei hvernig morgundagur- inn yrði og við ákváðum að njóta hvers dags og drifum í ýmsu sem við höfðum ætlað að bíða með þar til síðar. Við ákváðum til dæmis að ferðast meira og tókum upp enn heilbrigðara líferni. Það má segja að við höfum áttað okkur á því hvað lífið er dýrmætt og að það er ekki sjálfsagt.“ Gefandi að miðla af reynslu sinni Þráinn var framkvæmdastjóri Saga Medica sem hann stofnaði með Sigmundi mági sínum og fleirum. „Fljótlega eftir að ég greindist og sérstaklega eftir að ég hætti að vinna fékk ég tækifæri til að hjálpa öðrum, sem er afskaplega gefandi. Ég er búinn að tala við tugi manna í gegnum tíðina. Menn eru mjög þakklátir fyrir að einhver með reynslu og þekkingu gefi sér tíma til að fara yfir þetta með þeim og svara spurningum þeirra. Ég hef eignast ótrúlegan fjölda vina og kunningja bæði hérna heima og úti í löndum.“ Framtíðarsýn Þráins fyrir Fram- för er að félagið verði öflugt sam- félag manna til að bæta lífsgæði þeirra sem greinast með blöðru- hálskirtilskrabbamein og maka þeirra, í samstarfi við Krabba- meinsfélagið, Ljósið, lækna sem þjóna greindum og heilbrigðis- þjónustuna almennt. ■ Upplýsingar og stuðningur fyrir öllu Þráinn Þorvaldsson er brautryðjandi sem var í virku eftirliti vegna blöðruhálskrabbameins í fjórtán ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Ég vissi ekkert um þennan sjúkdóm og það var auðvitað áfall að fá þennan dóm, sem þetta var. Ég var svo heppinn að fá aðstoð vinar míns Jóhanns Heiðars Jóhannssonar, sem er læknir og meinafræð- ingur. Þráinn Þorvaldsson 5LAUGARDAGUR 13. nóvember 2021 BLÁI TREFILLINN
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.