Fréttablaðið - 13.11.2021, Qupperneq 68
Við þökkum fyrir stuðninginn
GSG ehf, Aflakór 23
Hamraborg ehf, Lundi 92
HÁ hreinu ehf, Dalvegi 16c
HL Adventure ehf, Vesturvör 30b
Hvammshólar ehf, Hlíðarhvammi 2
Ingimundur Einarsson ehf málari,
Gnípuheiði 15
Krafla ehf
Lakkskemman ehf, Skemmuvegi 30
Landmótun sf, Hamraborg 12
Litalausnir málningarþjónusta ehf,
Hrauntungu 8
Lín design, Smáratorgi
LK pípulagnir ehf, Álalind 14
Loft og raftæki ehf, Hjallabrekku 1
Lyfjaval ehf, Hlíðasmára 2
Nobex ehf, Hlíðasmára 6
Rafbreidd ehf, heimilistækjaviðgerðir,
Akralind 6
Rafgeisli ehf, Hamraborg 1
Rafport ehf, Auðbrekku 9-11
Rennsli ehf, pípulagnir, Akralind 1
Reykofninn ehf-www.reykofninn.is,
Skemmuvegi 14
S.G.Gluggar og útihurðir ehf,
Smiðjuvegi 32
Sport & Grill - Smáralind
Sportvörur, Bæjarlind 1-3
Tekk og Habitat á Íslandi ehf,
Skógarlind 2
Topplagnir ehf, Smiðjuvegi 54
Garðabær
Fagval ehf, Smiðsbúð 4
Garðabær, Garðatorgi 7
H.Filipsson sf, Miðhrauni 22
Ingi hópferðir ehf, Ásbúð 50
Íslenskar matvörur ehf, Dyngjugötu 1
Nýþrif - ræstingaverktaki ehf,
Garðatorgi 2b
Stífluþjónustan ehf, Furulundi 1
Vélsmiðja Þorgeirs ehf, Miðhrauni 22
Hafnarfjörður
Atlas hf
Bílaverk ehf bílamálun og réttingar,
Kaplahrauni 10
Blikksmíði ehf, s: 5654111,
blikksmidi@simnet.is, Melabraut 28
Bortækni ehf, Stapahrauni 7
Dverghamrar ehf, Lækjarbergi 46
Enjo, Reykjavíkurvegi 64
Ergoline Ísland, heildverslun,
Steinhellu 8
Fiskvinnslan Útvík ehf, Eyrartröð 7-9
Fjarðargarðar ehf, Furuhlíð 8
Fjarðarmót ehf, Melabraut 29
Fjörukráin-Hótel Víking, Strandgötu 55
Fura málmendurvinnslan ehf,
Hringhellu 3
G.S. múrverk ehf, Hvassabergi 4
GT Verktakar ehf, Rauðhellu 1
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarhöfn, Óseyrarbraut 4
Hagtak hf, Melabraut 13-15
H-Berg ehf, Grandatröð 12
HH Trésmiðja ehf, Fífuvöllum 22
Hvalur hf, Reykjavíkurvegi 48
Íslenskir endurskoðendur/ráðgjöf ehf,
Bæjarhrauni 8
Ísrör ehf, Hringhellu 12
J.T. litir ehf, Ölduslóð 27
Micro-ryðfrí smíði ehf, Einhellu 9
Músik og Sport ehf, Reykjavíkurvegi 60
Myndform ehf, Trönuhrauni 1
Netorka hf, Bæjarhrauni 14
Rennilist ehf, Eyrartröð 8
Reykjavík Warehouse ehf
Sæblik ehf - Holtanesti, Melabraut 11
ThorShip, Selhellu 11
Trésmiðjan okkar ehf, Lyngbergi 19a
Úthafsskip ehf, Fjarðargötu 13-15
Verkþing ehf, Kaplahrauni 22
Víðir og Alda ehf, Reykjavíkurvegi 52a
VSB verkfræðistofa ehf,
Bæjarhrauni 20
Þaktak ehf, Grandatröð 3
Þvottahúsið Faghreinsun,
Reykjavíkurvegi 68
Álftanes
Brúðhjón, Lyngholti 13
Útgerðarfélagið Berg ehf, Túngötu 7
Reykjanesbær
algalif.com
Bílrúðuþjónustan ehf, Grófinni 15c
Blikksmiðja Davíðs slf, Borgarvegi 52
Ferðaþjónusta Reykjaness ehf
Gull og Hönnun ehf, Njarðvíkurbraut 9
H-nál saumastofa og verslun ehf
Ístek ehf, Hólagötu 31
Kostur matvöruverslun, Holtsgötu 24
M² Fasteignasala & Leigumiðlun,
Hólmgarði 2c
Miðstöð símenntunar á Suðurnesja,
Krossmóa 4a
Nesraf ehf, Grófinni 18a
Ný-sprautun ehf, Njarðarbraut 15
OSN lagnir ehf, Iðavöllum 7b
Rafiðn ehf, Víkurbraut 1
Rafkompaní slf, Bergási 4
SB Trésmíði ehf, Garðavegi 8
Skipasmíðastöð Njarðvíkur hf,
Sjávargötu 6-12
Skólar ehf, Flugvallarbraut 752
TM Bygg ehf, Steinási 31
Ungó, söluturn, Hafnargötu 6a
Víkurfréttir ehf, Krossmóa 4a
Grindavík
Grindin ehf
Lagnaþjónusta Þorsteins ehf,
Tangasundi 3
Northern Light Inn, Norðurljósavegi 1
Ó S fiskverkun ehf
Vísir hf, Hafnargötu 16
Þorbjörn hf, Hafnargötu 12
Suðurnesjabær
Aukin Ökuréttindi ehf, Vörðubraut 7
Bílaþjónustan Bakki ehf, Holtsgötu 10
Verslunarfélagið Ábót, Strandgötu 16
Vélsmiðja Sandgerðis ehf, Vitatorgi 5
Völundarhús ehf, Birkitúni 6
Mosfellsbær
Borgarplast hf
Dynkur ehf, Tröllateigi 18
Guðmundur S Borgarsson ehf,
Reykjahvoll 33
Hugmót ehf
Kjósarhreppur, Ásgarði
LEE rafverktakar ehf, Byggðarholti 1a
Réttingaverkstæði Jóns B. ehf,
Flugumýri 2
RG lagnir ehf, Furubyggð 6
Spíssar ehf - stífluþjónusta,
Brekkutanga 21
Útilegumaðurinn ehf, Bugðufljóti 7
Vélsmiðjan Sveinn ehf, Flugumýri 6
Akranes
Apótek Vesturlands ehf,
Smiðjuvöllum 32
Bifreiðastöð Þórðar Þ. Þórðarsonar,
Smiðjuvöllum 15
Bílver, bílaverkstæði ehf, Innnesvegi 1
Framvinda ehf, Jaðarsbraut 25
Gallerý Snotra, Kirkjubraut 5
Gummi El ehf, Sóleyjargötu 4
Hafsteinn Daníelsson ehf, Geldingaá
Kaja organic ehf, Kalmansvöllum 3
Meitill - GT Tækni ehf, Grundartanga
Model ehf, Þjóðbraut 1
Veiðifélag Laxár í Leirársveit,
Kambshóli 1
Verkalýðsfélag Akraness, Þjóðbraut 1
Verslunin Bjarg ehf, Stillholti 14
Vélaleiga Halldórs Sigurðssonar ehf,
Smiðjuvöllum 10
Vélsmiðja Ólafs R Guðjónssonar ehf,
Smiðjuvöllum 6
Vogir og Lagnir ehf, Smiðjuvöllum 17
Borgarnes
B. Björnsson ehf, Múlakoti
Blómasetrið - Kaffikyrrð, Skúlagötu 13
Ensku húsin gistiheimili við Langá
Kræsingar ehf, Sólbakka 11
Límtré Vírnet ehf, Borgarbraut 74
PJ byggingar ehf, Staðarhóli
Snorrastaðabúið slf, Snorrastöðum 1
Sprautu- og bifreiðaverkstæðið
Borgarness sf, Sólbakka 5
Vatnsverk Guðjón og Árni ehf,
Egilsgötu 17
Velverk ehf, Brúarhrauni
Stykkishólmur
Dekk og smur ehf, Nesvegi 5
Skúrinn Veitingahús, Þvervegi 2
Ólafsvík
Steinunn ehf, Bankastræti 3
Hellissandur
Breiðavík ehf, Háarifi 53
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga,
Klettsbúð 4
KG Fiskverkun ehf, Melnesi 1
Nónvarða ehf, Bárðarási 6
Skarðsvík ehf, Helluhóli 1
Útnes ehf, Háarifi 67
Búðardalur
Ásklif ehf, Bergstöðum
Rjómabúið Erpsstaðir ehf
Reykhólahreppur
Þörungaverksmiðjan hf
Ísafjörður
Ferðaþjónustan í Heydal, Mjóafirði
Félag opinberra starfsmanna á
Vestfjörðum, Aðalstræti 24
Hamraborg ehf, Hafnarstræti 7
Skipsbækur ehf, Hafnarstræti 19
Smali ehf, Hafraholti 46
Tækniþjónusta Vestfjarða ehf,
Aðalstræti 26
Verkalýðsfélag Vestfirðinga,
Hafnarstræti 9
Bolungarvík
Bolungarvíkurkaupstaður
Stuðningshópurinn Frískir
menn er ætlaður einstakl-
ingum sem greinst hafa með
blöðruhálskirtilskrabba-
mein og hafa valið að vera í
virku eftirliti.
Frískir menn er stuðningshópur
innan félagsins Framfarar og er
ætlaður einstaklingum sem greinst
hafa með blöðruhálskirtilskrabba-
mein og hafa valið að vera í virku
eftirliti. Hópurinn var stofnaður
árið 2014 af hópi karlmanna og er
að öllum líkindum fyrsti hópur
sinnar tegundar í heiminum, segir
nýr stýrimaður hópsins, Guð-
mundur Páll Ásgeirsson.
„Tilgangurinn með stofnun
hópsins var að menn gætu stutt
hver annan með því að deila
reynslu sinni og tilfinningum í
jafningjahópi. En einnig að viða
að sér og koma á framfæri nýjustu
þekkingu á greiningu, mati og
meðferðarúrræðum blöðruháls-
krabbameina. Hópurinn hittist
reglulega þar sem boðið er upp á
fræðslu um nýjustu rannsóknir og
þróun auk þeirra möguleika sem
eru í boði. Þátttaka í starfi stuðn-
ingshópa er án endurgjalds.“
Eftirlit í stað meðferðar
Það voru þeir Þráinn Þorvalds-
son og Sigurður Skúlason leikari
sem áttu frumkvæði að stofnun
hópsins á sínum tíma í sam-
starfi við Krabbameinsfélagið.
„Stofnendur voru níu menn sem
voru í virku eftirliti, það er, höfðu
möguleikann á því vali vegna lágra
gilda við greiningu að fara ekki í
meðferð heldur láta fylgjast með
sér með reglulegum heimsóknum
til þvagfæralæknis og blóðprufum.
Þráinn hafði þá verið í virku
eftirliti frá því hann greindist með
blöðruhálskrabbamein árið 2005.
Hann vildi í lengstu lög sleppa
við mögulega fylgikvilla þeirra
meðferða sem í boði voru og vissi
að virkt eftirlit var æ algengara
viðbragð við lágáhættukrabba-
meinum í blöðruhálsi, til dæmis
í Bandaríkjunum, og kaus því að
láta á það reyna þrátt fyrir efa-
semdir margra.“
Deila reynslu sinni
Helsta markmið Frískra manna
að sögn Guðmundar er að halda
fundi þar sem karlar í virku eftirliti
segja sögur sínar og deila reynslu
sinni og tilfinningum hver með
öðrum. „Þetta er uppbyggjandi
og læknandi ferill sem á við um
flesta hópa sem kljást við veikindi
eða erfiðar sjúkdómsgreiningar
en er sérstaklega mikilvægt hjá
Frískum mönnum vegna þess að
blöðruhálskirtilskrabbamein hefur
verið og er mörgum feimnismál.
Við ræðum um allt mögulegt sem
tengist vandamálum hjá körlum
og miðlum eigin reynslu. Og það er
þessi nánd sem ég tel svo afskaplega
mikilvæga. Félagar í hópnum hafa
sagt að þeir hefðu viljað vera í svona
stuðningshópi þegar þeir greindust,
því þeim leið svo illa og voru svo
einir. Okkur líður svo miklu betur
þegar við tölum saman.“
Miðlun þekkingar
Annað af markmiðum Framfarar,
og þar með Frískra manna, er að
karlar sem greinast með krabba-
mein í blöðruhálskirtli fái strax
við greiningu auðskiljanlegar
upplýsingar um stöðu síns krabba-
meins og gefi sér gott tóm til að
vinna úr þeim upplýsingum og
leiti sér ráðgjafar hjá fagaðilum og
stuðnings þeirra sem verið hafa í
sömu sporum. „Frískir menn eru
á vissan hátt í þessum sporum í
hvert sinn sem þeir fara í eftirlit.
Öflun og miðlun þekkingar á öllu
því nýjasta sem varðar blöðruháls-
krabbamein er því eitt af megin-
markmiðum Frískra manna.“
Félagsskapurinn hefur meðal
annars haft frumkvæði að útgáfu
bæklings fyrir nýgreinda menn í
samstarfi við Krabbameinsfélag
höfuðborgarsvæðisins og er virkur
aðili að heimasíðu Framfarar.
„Þar verður fljótlega aðgengi-
legt fræðsluumhverfi fyrir þá sem
eru í þessu ferli og aðstandendur
þeirra. Auk þess hefur Þráinn
Þorvaldsson, fráfarandi stýri-
maður hópsins, verið mjög virkur í
alþjóðlegu samstarfi og stóð ásamt
fleirum að stofnun á bandarísku
samtökunum Active Surveillance
Patients International sem eru
alþjóðleg samtök karla sem eru
í virku eftirliti á krabbameini í
blöðruhálskirtli.“
Persónulegra samband
Starfsemi hópsins hefur eðlilega
legið niðri á Covid-tímum en það
lagast vonandi fljótlega, segir Guð-
mundur. „Hópurinn hefur ekki
verið fjölmennur en skráðir félagar
hafa mætt vel á fundi og látið vel
af starfseminni. Þeir sem starfa í
hópnum telja það líka kost að hver
stuðningshópur sé ekki of fjöl-
mennur. Nánara og persónulegra
samband myndast fyrir vikið milli
félaga í hópnum. Fram undan er að
styrkja starfið og kannski er mikil-
vægast að blása lífi í hópfundina
jafnskjótt og Covid linnir.“ ■
Líður miklu betur þegar við tölum saman
Guðmundur Páll Ásgeirsson er stýrimaður stuðningshópsins Frískra manna.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Tilgangurinn með
stofnun hópsins
var að menn gætu stutt
hver annan með því að
deila reynslu sinni og
tilfinningum í jafn-
ingjahópi.
Guðmundur Páll Ásgeirsson
6 13. nóvember 2021 LAUGARDAGURBLÁI TREFILLINN