Fréttablaðið - 13.11.2021, Page 92

Fréttablaðið - 13.11.2021, Page 92
Ég hreifst af henni mjög ungur, ekki síst vegna þeirrar mögn- uðu ástarsögu sem hún hefur að geyma. Verkið Hýperíon eftir Fried­ rich Hölderlin er komið út á íslensku í þýðingu Arthúrs Björgvins Bollasonar. kolbrunb@frettabladid.is „Mig hafði dreymt um það síðan ég var í háskóla í Þýskalandi að þýða þessa óvenjulegu bók. Ég hreifst af henni mjög ungur, ekki síst vegna þeirrar mögnuðu ástarsögu sem hún hefur að geyma“, segir Arthúr Björgvin. Hölderlin er fyrst og fremst þekktur sem ljóðskáld. „Hannes Pétursson hefur þýtt talsvert af ljóðum eftir hann, Helgi Hálfdanar­ son sömuleiðis og Kristján Árnason hefur þýtt eitt kvæði. Svo má ekki gleyma Steingrími Thorsteinssyni sem þýddi hann fyrstur manna á íslensku í ljóðasafninu Svanhvít sem kom út árið 1877, með þýðing­ um eftir hann og Matthías Jochums­ son,“ segir Arthúr Björgvin. Óður til ástarinnar Hýperíon er eina prósaverkið sem Hölderlin lauk við. „Þetta er ein merkasta saga rómantískra bók­ mennta í Þýskalandi. Sagan ber þess skýrt merki að vera skrifuð af ljóðskáldi og hefur verið kölluð lengsta prósaljóð á þýsku. Ég gerði mér sérstakt far um að miðla þeim ljóðræna blæ sem er á sögunni og laga textann að orðfæri róman­ tískra skálda okkar Íslendinga á 19. öld. Þar sótti ég meðal annars inn­ blástur í ljóð þeirra Jónasar Hall­ grímssonar og Steingríms Thor­ steinssonar. Það var mjög heillandi verkefni að koma þessum texta í íslenskan búning. Íslenskan er sérdeilis móttækileg fyrir róman­ tískum texta af þessu tagi, enda bæði „orða frjósöm móðir“ og blæ­ brigðarík.“ Hýperíon gerist á Grikklandi og segir sögu ungs manns á 18. öld. „Verkið er andóf gegn vissum öfgum upplýsingastefnunnar, þar sem skynsemi og skilningur áttu að fara með öll völd og fegurðin og listin voru gerðar hornreka. Hýperíon er tilfinningaþrunginn lofsöngur um fegurðina, skáld­ skapinn og náttúruna, og um leið heillandi óður til ástarinnar,“ segir Arthúr Björgvin. Tímalausir töfrar Ástin í lífi Hölderlins sjálfs endur­ speglast í bókinni. „Þegar Höld­ erlin var heimiliskennari hjá bankastjórahjónum í Frankfurt varð hann ástfanginn af eigin­ konu bankastjórans. Þetta var eitt frægasta ástarævintýri þýskra bók­ mennta og endaði með skelfingu, þegar hinn kokkálaði eiginmaður komst að því hvað var á seyði. Höl­ derlin og ástkona hans héldu þó áfram að hittast á laun og hann reisti henni fjölmarga minnisvarða í ljóðum sínum. Fyrirmynd stóru ástarinnar í lífi unga mannsins sem flækist um Grikkland í sögunni Hýperíon, er bersýnilega Susette Gontard, ást­ kona Hölderlins sjálfs. Skömmu eftir að sambandi þeirra lauk veslaðist Susette upp og dó og ekki löngu seinna veiktist Hölderlin á geði. Hann var settur á spítala í bænum Tübingen. Einn daginn kom smiður til læknanna og sagði: „Þessi maður skrifaði Hýperíon. Hann er snillingur og má ekki veslast upp á spítala. Má ég taka hann heim til mín?“ Hölderlin bjó sem hugstola maður á heimili þessa velgjörðarmanns síns í rúma þrjá áratugi,“ segir Arthúr Björgvin og bætir við: „Bókin sem hafði þessi djúpu áhrif á handverksmann á bökkum árinnar Neckar fyrir tvö hundruð árum, býr enn yfir tíma­ lausum töfrum sem ég tel að muni heilla íslenska lesendur.“ n Tilfinningaþrunginn lofsöngur Arthúr Björgvin segir það hafa verið heillandi verkefni að vinna að þýðingunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Skáldið ógæfusama, Hölderlin. LEIKHÚS Njála á hundavaði Höfundur: Óþekktur Borgarleikhúsið Leikarar: Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson Leikgerð: Hjörleifur Hjartarson Leikstjórn: Ágústa Skúladóttir Leikmynd og búningar: Þórunn María Jónsdóttir Tónlist: Hundur í óskilum Lýsing og myndbönd: Ingi Bekk Hljóð: Þorbjörn Steingrímsson Leikgervi: Þórunn María Jónsdóttir og Elín S. Gísladóttir Aðstoðarleikstjóri og framleiðslustjóri: Vigdís Perla Maack Sigríður Jónsdóttir Nýaldarpakkið á Bergþórshvoli og stjörnuparið á Hlíðarenda eru mætt aftur í Borgarleikhúsið, með pompi og prakt í bland við góðan slurk af gamaldags blóðsúthell­ ingum og hefnd að víkingasið. Höfundur eða höfundar Njálu eru kannski óþekktir, en ekki fer á milli mála að Njála á hundavaði, sem frumsýnd var síðastliðna helgi, kemur beint úr ranni Hunds í óskilum, þeirra Eiríks Stephensen og Hjörleifs Hjartarsonar. Að þessu sinni fara Eiríkur og Hjörtur aðeins öðruvísi leið að efninu en áður, þó að húmorinn sé auðvitað hornsteinn sýningarinnar eins og þeir eru þekktir fyrir. Sjald­ an hefur íburður þeirra kumpána verið meiri, enda má segja að þetta sé þeirra stærsta sýning til þessa. Í stað þess að æða yfir íslenska sögu með laustengdum bröndurum og söngnúmerum, þá kafa þeir djúpt ofan í eina frásögn sem inniheldur ríf lega 600 persónur, spannar nokkra áratugi og takmarkast ekki við landsteinana. Einstök sviðsframkoma Að smala öllum söguþræðinum og hundruðum persóna í tveggja klukkutíma langa leiksýningu er sannkallað grettistak (afsakið vísun í aðra Íslendingasögu). Handritið hefði alveg þolað frekari styttingu, nokkrum lengri brönd­ urunum og sumum frásögnum hefði mátt koma í annan farveg, til dæmis framsetningunni á Þor­ gerði dóttur Hallgerðar, sem situr illa. Sýningin er sterkust þegar Njála er sett í samhengi við sam­ tímann, aukapersónur á borð „hinn Höskuld“ fá að njóta sín og kristni­ takan er tekin til bæna. Ættarsagan endalausa, sem einkennir bæði smæð landsins og sápuóperukeim Íslendingasagnanna, er nefnilega bráðfyndin og alltaf að endurtaka sig. Einn af helstu kostum dúettsins er metnaðurinn, bæði fyrir texta­ smíði og leikmunum. Leikgleðin er líka einkennandi. Hvor um sig hafa þeir einstaka sviðsframkomu og varla er hægt annað heldur en að hrífast með þeim. Þeir eru síðastir til að taka sjálfa sig alvarlega, enda skilgreina þeir sig ekki sem leikara heldur sagna­ og tónlistarmenn. Gunnarshólmi taka tvö er lista­ smíð þar sem gert er stólpagrín að hinu fræga ljóði Jónasar Hall­ grímssonar, en annað erindið hefst á þennan veg: „Já Gunnarshólmi er langt og köflótt kvæði / um kappa í bland við grasa­ og steinafræði / sem þjóðskáld orti þunnur eins og pappi / þegar hann var í Fljóts­ hlíðinni á vappi.“ Frábærar lausnir Herlegheitunum stjórnar Ágústa Skúladóttir sem ekki er ókunnug vitleysunni í parinu, enda er þetta í þriðja sinn sem hún er við stjórnvöl­ inn. Hún gerir margt vel og finnur ágætan farveg fyrir netta stjórn­ leysið sem fylgir Eiríki og Hjörleifi, en hefði mátt stíga fastar til jarðar. Þórunn María Jónsdóttir hannar bæði leikmynd og búninga. Hundur í óskilum er þekktur fyrir að smíða hljóðfæri úr öllum sköpuðum hlutum og finnur nokkrar frábærar lausnir til að hreinlega umkringja sig af tækifærum. Þá verður sérstak­ lega að nefna búning Hallgerðar, höfuðfötin og hárkollurnar sem spila stórt hlutverk í sýningunni, þar kemur aðstoð Elínar S. Gísla­ dóttur sér vel. Ingi Bekk dýpkar síðan sviðsmyndina með nokkuð smellinni myndbandsvinnu sem hefði jafnvel mátt nota meira. Njála á hundavaði mun án efa slá í gegn hjá fjölmörgum aðdáendum tvíeykisins Hunds í óskilum og ekki veitir af hlátri í skammdeginu. Seint verða þeir Eiríkur og Hjörleifur sakaðir um þung efnistök, en Njála reynist þeim aðeins erfiðara verk­ efni en oft áður. NIÐURSTAÐA: Hægt er að treysta Hundi í óskilum fyrir óstýrilátri skemmtun og leiftrandi snilld á köflum. Njála, taka tvö eða þrjú Sjaldan hefur íburður þeirra kumpána verið meiri. MYND/AÐSEND kolbrunb@frettabladid.is Kammermúsíkklúbburinn heldur tónleika vetrarins í Norðurljósasal Hörpu sunnudaginn 14. nóvember klukkan 16. Þar f lytur Ssens­strengjatríóið frá Noregi þrjú verk, eftir Schubert, Haf liða Hallgrímsson og Beet­ hoven. Ssens­tríóið, sem stofnað var 2014, fékk Hafliða til að skrifa fyrir sig strengjatríó sem frumflutt var í Osló í febrúar 2020, tólf stutta kafla, sem saman mynda sveig. Eftir þann flutning tók efnið að þróast með tónskáldinu uns úr varð nýtt tríó, byggt á hinu fyrra en þó óháð því, og nú er frumf lutt á Íslandi. Tríóið nefnir Haf liði Lebensfries (Lífsstrigi) eftir málverki Edvards Munch, og tileinkar það Ssens­tríó­ inu. n Lífsstrigi Hafliða Hafliði Hallgrímsson tónskáld. Tríóið nefnir Hafliði Lebensfries (Lífsstrigi) eftir málverki Edvards Munch. 48 Menning 13. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.