Heilsuvernd - 01.03.1950, Qupperneq 12
4
HEILSUVERND
ar. Vísindamönnum hefir tekizt að reikna út göngu him-
inhnattanna, en sem betur fer geta þeir ekki raskað göngu
þeirra, eins og þeim hefir tekizt að sundra atómunum. —
Náttúrulækningastefnan lítur á heilbrigðan mannslíkama
sem friðarríki hinna óteljandi fruma, en sjúkdóma hins
vegar sem uppreisn, sem líkaminn reynir að útrýma. Eina
ráðið til sigurs er að útrýma orsökunum til ófriðarins.
Fyrir rúmum áratug var hinn heimsfrægi náttúrulæknir
Bircher-Benner frá Sviss fenginn til þess að flytja fyrir-
lestra í London. Honum hafði tekizt að lækna fjölda sjúkl-
inga með þekkta og óþekkta sjúkdóma, sem aðrir læknar
kunnu engin ráð við. Notaði hann náttúrleg ráð, svo sem
lifandi fæði og náttúrlegar lífsvenjur. Hann kom upp
heilsuhæli, sem hann kallaði „Hinn lifandi kraft“. Dvaldi
ég þar um tímá árið 1938, og voru þar þá rúmlega 100
sjúklingar. Sá ég þar marga merkilega hluti, sem kalla
mætti lækningakraftaverk, enda náði hælið heimsfrægð.
Frá dr. Bircher-Benner hefi ég sagt nánar í 2. hefti
HEILSUVERNDAR 1949. Hann telur hinn gamla mæli-
kvarða um hitagildi fæðunnar villandi og oft rangan, hinn
rétti mlikvarði sé sólarorka fæðunnar, og hann leggur
mesta áherzlu á, að fæðan sé fersk og lifandi.
1 byrjun fyrirlestra Bircher-Benners í London kynnti
Sir Robert McCarrison hann fyrir áheyrendum á þessa leið:
„Vér lifum á tímum hinna mestu framfara á öllum
sviðum læknisfræðinnar. Samt sem áður fjölgar sjúkum
mönnum stöðugt, og sjúkdómar verða fleiri, sjúkrahús eru
byggð, og lyfjum fjölgar. Er nú svo komið, að menn spyrja
sjálfa sig með áhyggjusvip, hvort engin leið sé út úr þessu
kviksyndi sjúkdómanna. Þessi læknir, Bircher-Benner,
bendir oss á þessa leið. Hann er einn hinna fáu starfandi
lækna, sem hefir unnið sér heimsfrægð. Til hans leita
ekki aðeins sjúkir úr hans heimkynnum, heldur hvaðan-
æva að.“
Hér segir McCarrison, þessi heimskunni vísindamaður,
það feimnislaust, að sjúkdómar fari vaxandi meðal menn-