Heilsuvernd - 01.03.1950, Blaðsíða 15

Heilsuvernd - 01.03.1950, Blaðsíða 15
HEILSUVERND 7 konar niðursuðuvörur, m. a. framleiddar úr grænmeti, sem leyft er að flytja til landsins til þess að eyðileggja það og margfalda í verði í stað þess að lofa fólki að kaupa það og eta nýtt og óskemmt og fyrir tiltölulega lágt verð. Heróp vort ætti að vera: Burt með hvíta hveitið, hvíta sykurinn, sætindaátið, tóbakið og áfengið. Vér þurfum að flytja inn ómalað korn og mala það eftir hendinni. Eftir mölunina verða í því breytingar, sem stefna að því að gera það að því, sem það áður var, að moldu. Með sölu á forn- möluðu og oft eiturmenguðu mjöli eru framin hin verstu svik. Er það ekki líkt og að greiða kaup með krónum, sem eru 10—20% af verðgildi þeirra? Það bætir ekki úr skák, þótt fólkið sé svo illa að sér, að það kjósi heldur verðlágu krónuna. Fyrsta boðorð réttrar manneldisfræði verður: Lifandi, náttúrleg og ósoðin jurtafæða, það er fyrsta skilyrðið til fullkomins þroska og varðveizlu hans. Aðeins slík næring er trygging fyrir góðri heilsu. En góð heilsa er bezta trygg- ingin fyrir góðri afkomu þjóðar og einstaklinga. r**/ r**/ ALÞJÖÐAÞING NÁTTÚRULÆKNA. Alþjóðafélag náttúrulækna heldur ársþing sitt í júní í siimar vestur í Wyoming í Bandaríkjunum. Ritstjóri HEILSUVERNDAR er heiðursfélagi i því og átti þess kost að sitja þingið en varð að hætta við það vegna gjaldeyrisörðugleika. 1 stað þess hefir hann verið beðinn að senda þinginu greinargerð yfir heilsufar og lifnaðar- hætti Islendinga og starf NLFÍ. Mun þessi skýrsla verða lesin á þinginu ásamt kveðju frá NLFl. r^/ r*/ r^/ GJAFAEINTÖK. HJÁLPIÐ OSS TIL AÐ ÚTBREIÐA HEILSUVERND. Með þessu hefti er áskrifendum sent spjald, sem þeir eru vinsam- lega beðnir að rita á nöfn tveggja manna, er ekki hafa séð ritið en líklegt má telja, að muni gerast áskrifendur eða það eigi erindi til. Mun þá verða sent til þeirra eitt eintak af ritinu ókeyyis.

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.