Heilsuvernd - 01.03.1950, Qupperneq 17
HEILSUVERND
9
„Krabbameinið er vöntunarsjúkdómur, óþrifnaðarsjúkdómur og
sjálfseitrunarsjúkdómur .... Krabbameinið er lokastigið í heilli keðju
meltingartruflana. Það er síðasti kapítulinn í sögu um ófullnægj-
andi hreinsun ristilsins og meltingarvegarins í heild."
Dr. med. Robert Bell, varaforseti Alþjóðafélags krabba-
meinsrannsókna, segir:
„Krabbamein er blóðsjúkdómur .... Orsökin er sú, að blóðið er
til langframa hlaðið eiturefnum, m. a. frá gömlum, rotnandi saur
í ristli...Ef unnt væri að haga mat og drykk eftir raunveruleg-
um þörfum likamans, þannig að engu líffæri væri ofboðið, væri
tvennt unnið: langt líf og fullkomin heilbrigði. Mannsævin yrði
100 ára eða meira, og dauðann mundi ekki bera að í mynd sjúk-
dóma, heldur mundum við líða út af í svefni.
Við megum vera þess viss, að ofneyzla matar og drykkjar, sem
ofreynir ýms líffæri líkamans, á sök á öllum tegundum sjúkdóma
langt fram yfir það, sem menn grunar.“
Dr. med. Erwin Stribning, þýzkur læknir, segir:
„Við verðum að kappkosta að hindra, að við fáum krabbamein, og
það mun takast, ef við bara lifum náttúrlegu lífi, og fyrst og fremst
á náttúrlegu fæði.....Orsök krabbameins í ristli er áreiðanlega
ofneyzla kjöts og eggja, sem vaida mikilli rotnun í ristlinum, eins
og bezt má marka af hinni viðbjóðslegu lykt af hægðunum; hinsveg-
ar er lítil lykt af hægðum þeirra manna, sem lifa á mjölkur- og
jurtafæði."
Lœkning á krábbameini. Venjulegar aðferðir eru fólgnar
í uppskurði eða radíum- og röntgengeislum. Lyf þekkjast
ekki við þessum sjúkdómi. Um árangurinn af þessum að-
gerðum skiptir umsögnum lækna mjög í tvö horn. Fyrir
nokkrum árum var talið, að við hina frægu Mayo-stofnun í
Ameríku tækist með uppskurði að lækna 8,6% sjúklinga
með magakrabba. Við útvortis krabbamein er árangurinn
oftast meiri. Venjulega er þá miðað við það, að sjúkdóm-
urinn hafi ekki tekið sig upp innan 5 ára frá aðgerðinni. En
þótt tekizt hafi í bili að eyða krabbameini með uppskurði
eða geislum, er það á einskis manns færi að segja, hvort
sjúkdómurinn sé raunverulega læknaður. f meiri hluta
tilfella sýnir reynslan, að hann tekur sig upp aftur eftir
nokkra mánuði eða ár. Sumir læknar hafa litla trú á þess-