Heilsuvernd - 01.03.1950, Side 18

Heilsuvernd - 01.03.1950, Side 18
10 HEILSUVERND um aðgerðum. Þannig segir James Ewing, formaður krabbameinsfélags í Ameríku, einn þekktasti læknir á sviði krabbameins: „Sennilega nær tala þeirra, sem læknast af magakrabba, ekki 1%“. Fleiri þekktir læknar taka í sama strenginn. Hér eru ummæli tveggja þýzkra lækna: Dr. med. Friedrich Wolf segir: „Enn í dag er mjög um það deilt, hvort yfirleitt sé hægt að lækna krabbamein. Reynsla mín er sú, að eina ráðið til fullkominnar lækn- ingar séu mataræðisreglur ... Krabbamein er sjúkdómur í öll- um likamanum og getur ekki læknazt til fulls nema með breyting- um á mataræði og lifnaðarháttum." Dr. med. Bernhard Aschner segir: „Það eitt að skera burtu krabbamein eða lækna það með geislum er ekki fullnægjandi lækningaaðferð, heldur verður líkaminn allur jafnframt að verða aðnjótandi réttrar meðferðar. Hin blinda trú á hnífinn er oft vanhugsuð fordild. Til þess að komast hjá hættulegum uppskurði við krabbameini, eru til ýmsar vægari aðferðir, sem valda ekki truflunum á líffærum líkamans eða starfi þeirra.“ Þá verður að geta þess, að fjöldi sjúklinga deyr af völdum skurðaðgerðarinnar sjálfrar, sjúklingar ,sem margir hefðu getað lifað vikur eða mánuði eða ef til vill fengið fullan bata með öðrum aðferðum. Sumir læknar eru beinlínis á móti skurðaðgerðum og einkum geislalækningum, vegna þess að af þessum að- gerðum stafi sjúklingnum meiri hætta en batavon, og sérstaklega með hliðsjón af því, að hægt sé að ná betri árangri á annan hættuminni máta, sbr. ummæli dr. Aschn- ers hér að ofan. Meðal þessara lækna má nefna dr. Nolfi, sem lesendur HEILSUVERNDAR kannast við. Sumir telja óheppilegt að skýra frá þessum hlutum, því að það veiki um of trú manna á þá ,,einu“ möguleika, sem sjúklingarnir hafi til bata, hnífinn og geislana. Já, ef þetta væru „einu“ hugsanlegu leiðirnar, þá væri ef til vill réttara að láta kyrrt liggja. En nú hefir þegar verið á það bent, og verður gert ítarlegar síðar, að þekktir læknar, sem hafa sízt minni þekkingu og reynslu í þessum efnum en aðrir

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.