Heilsuvernd - 01.03.1950, Page 25
HEILSUVERND
17
Þá segir próf. Dungal frá nýlegu lyfi, sem privin nefnist.
Það losi nefstíflur og ætti að vera til á hverju heimili. Eftir
umsögn lyffræðings, sem ritstjóri Heilsuverndar hefir átt
tal við, hefir lyf þetta aldrei gert verulegt gagn og er skað-
legt til lengdar og þegar orðið úrelt.
Við liðagigt þekkjast engin lyf, sem lækni hana. Beztu
ráðin við henni er lifandi og ósoðin lútargæf jurtafæða,
sbr. frásagnir á öðrum stað í þessu hefti. 1 þessu hefti er
einnig sagt frá ráðum við kvefi. 1 báðum þessum sjúkdóm-
um er mikil hjálp að svitaböðum.
1 danska blaðinu ,,Politiken“ er nýlega grein um lyfja-
notkun í Danmörku. Samkvæmt. upplýsingum frá dr. med.
A. H. Andersen, lyffræðiráðunaut ríkisstjórnarinnar,
eyða Danir 100 milljónum króna á ári í lyf. Hvert manns-
barn notar að meðaltali 2 svefntöflur á viku og nokkrar
höfuðverkjarpyllur (um 150 tonn á ári) og fjörefnalyf og
hægðalyf i tonnatali. Árið 1939 voru notuð 250 kg. af
ascorbinsýru (C-fjörefni) en 2 tonn árið 1948. Af svefn-
pyllum eru notuð 8—9 tonn á ári, og dæmi eru til þess, að
fólk hafi oltið af reiðhjóli vegna deyfandi áhrifa af of
miklu svefnpylluáti. Ráðunauturinn skýrir ennfremur frá
því, að í sjúkrahúsdeild nokkurri hafi 80% sjúklinganna
fengið svefnlyf og hafi verið erfitt að fá dregið úr því. Þá
getur hann þess, að miklar inntökur af sterkum D-fjörefn-
um geti skemmt nýrun og valdið æðakölkun.
r^ /-»-/ r*~'
NÁTTÚRULÆKNINGAFÉLAG STOFNAÐ
1 STYKKISHÓLMI.
Hinn 10 maí 1950 var haldinn stofnfundur Náttúrulækningafélags
Stykkishólms. Undirbúning hafði annazt frú Theodóra Daðadóttir,
en framkvæmdastjóri NLFl sótti fundinn og flutti þar erindi. ■—
Stofnendur voru 30. t stjórn voru kosnir: Formaður Vigfús Gunnars-
son, verzlunarmaður, gjaldkeri Óskar Ólafsson, trésmíðameistari og
ritari Guðmundur Bjarnason, gjaldkeri sjúkrasamlagsins. t varastjórn
Dagbjört Níelsdóttir, frú, og Theodóra Daðadóttir, frú. Endurskoð-
endur Árni Helgason, sýsluskrifari, og Jóhann Rafnsson, forstjóri.
Fundurinn samþykkti að sækja um inntöku í NLFt.