Heilsuvernd - 01.03.1950, Síða 27

Heilsuvernd - 01.03.1950, Síða 27
HEILSUVERND 19 Að lokum lætur landlæknir þess getið, að þessum bréf- um hans hafi „hvorki verið sinnt né svarað“. — Það skal tekið fram, að skýrsla þessi er gefin út árið 1949. En landlæknir minnist ekki á alvarlegustu hlið þessa máls. Er hér ekki átt við misnotkun á fé sjúkrasamlaga og almennings, sem er hreint ekki lítil, því að þessar aðgerðir eru dýrar. Aðalatriðið er það, að þegar hálseitlar eru tekn- ir að óþörfu úr börnum og unglingum, eru þeir sviptir mjög þýðingarmiklu líffæri, sem á m. a. veigamikinn þátt í sóttvörnum líkamans. Er því hér um misþyrmingu að ræða, hreinustu limlestingu, að vissu leyti alvarlegri en það að missa hönd eða fót. Það er því ekki nógsamlega hægt að brýna það fyrir fólki, að hafa vaðið fyrir neðan sig í þessum efnum og leyfa ekki slíkar aðgerðir á börnum sínum, fyrr en það hefir fengið staðfestingu frá fleirum en einum lækni um það, að eitlarnir séu virkilega orðnir það skemmdir, að nauðsynlegt sé að taka þá burt. KARTÖFLUVATN er gott við tannskemmdum, linar magaverki og gott við sjúkdómum í maga og þörmum. Hráar rifnar kartöflur blandaðar hunangi eru mjög ljúffengar. Hrár kartöflusafi er góður við magasýrum, gerjun og lofti í þörmum. Josef Magerl, dósent í Heidelberg, hefir notað hráar kartöflur árum saraan við magabólgum og of miklum sýrum, með ágætum árangri. FRÚ NOLFI KEMUR TIL ISLANDS. Það hefir lengi staðið til, að danski kvenlæknirinn frú Kirstine Nolfi, sem lesendur HEILSUVERNDAR kannast vel við, komi til íslands á vegum NLFl. Nú hefir frúin nýlega tjáð forseta NLFl, að hún muni geta komið hingað seint í ágúst í sumar. Mun hún senni- lega dvelja hér hálfan mánuð og flytja fyrirlestra í Reykjavík og ef til vill víðar um landið. 1 sumar er frúin boðin í fyrirlestraferð til Hollands, og kemur hingað að þeim leiðangri loknum.

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.