Heilsuvernd - 01.03.1950, Page 30
22
HEILSUVERND
HeilhveitibrauO. 11 dl. heilhveiti; ca. 4 dl. mjólk; 15—20
gr. sveppager (eða 1—2 tesk. þurrger); 1% matsk. púð-
ursykur; 1 matsk. mulið kúmen; % tesk. salt.
öllu því þurra er blandað saman. Gerið er uppleyst í ylvolgri
mjólk. Volgri mjólk ásamt gerblöndunni er bætt í og deigið hnoðað
saman. Lagt i smurt mót, þar sem það lyftir sér um helming. Síðan
bakað i 3/4—1 klst. við fremur hægan hita.
Heilhveitilengjur. 5 bollar heilhveiti; 2 bollar súr mjólk;
4 matsk. púðursykur; 100 gr. smjörlíki; 3 tesk. lyftiduft;
ávaxtamauk; eggjablanda; saxaðar möndlur.
Öllu því þurra er blandað saman og smjörlíkinu núið saman við.
Vætt í með mjólkinni og deigið hnoðað saman. Flatt út í ca 1. cm.
þykka köku. Kakan skorin í ca. 15 cm. breiðar lengjur og brún-
irnar brotnar inn að maukinu. Brúnirnar eru penslaðar með eggja-
blöndu og lengjurnar bakaðar ljósbrúnar.
Heilhveititerta. 70 gr. heilhveiti; 2 matsk. smjörliki; 2
egg; 1 tesk. lyftiduft; 100 gr. púðursykur; % tesk. rif-
inn sítrónubörkur; 2 matsk. rjómi; ávaxtamauk; rjómi.
Kökuna má baka úr tómu heilhveiti, en hún lyftir sér betur og
verður samfeldari, sé lítilsháttar hveiti blandað saman við. Lyfti-
duftinu er blandað i hveitið og smjörlíkið brætt. Egg og sykur er
þeytt vel saman, unz það freyðir. Bráðið smjörlíki látið drjúpa i.
Heilhveitinu ásamt rifnum sítrónuberkinum og rjómanum blandað í,
deiginu hellt í vel smurt kringlótt mót og kakan bökuð við hægan
hita.
Bleytikaka. 1 bolli heilhveiti; 2 egg; 3 matsk. sjóðandi
vatn; 1 bolli sykur; 1 tesk. lyftiduft; 4—5 matsk. berja-
saft eða ávaxtasafi.
Egg og sykur er þeytt vel saman, unz það freyðir. Sjóðandi vatn-
inu smáhellt út í. Heilhveitið með óblönduðu lyftiduftinu hrært
saman við. Deiginu hellt í vel smurt kringlótt jólakökumót og bakað
við hægan hita 30—40 mín. Kakan er kæld og síðan lögð aftur i
mótið, pikkuð með gafli og safanum hellt yfir. Síðan hvolft á fat.
Vanillusósa eða þeyttur rjómi borið með.
Dagbjört Jónsdóttir.