Heilsuvernd - 01.03.1950, Page 35
HEILSUVERND
27
fyrr og síðar, að frost hafi verið í svefnhúsum að næturlagi, án
þess að fólki yrði meint af. Og þótt þess sé sjaldnast kostur, þá er
mikill munur á því, hvort hitinn í svefnherbergjunum er t d. 10 stig
eða 20 stig, eins og víða mun eiga sér stað, þar sem fólk virðist
vera hrætt við að opna glugga að næturlagi eða hefir aðeins opna
eina litla rúðu, sem hverfandi lítið gagn gerir til loftræstingar eða
kælingar.
(A6 mestu úr „Vára förlcylningssjukdomar“, eftir Are Waerland).
r**/ r**/ r+~/ r**/
DUGLEGUR SÖLUMAÐUR.
HEILSUVERND birti í síð-
asta hefti mynd af Skarphéðni
Gíslasyni frá Vagnsstöðum i
A-Skaftafellssýslu, er má kalla
brautryðjanda náttúrulækn-
ingastefnunnar þar í sýslu. —
Hér kemur svo mynd af einum
ötulasta liðsmanni okkar í
Reykjavík, Jóni Halldórssyni,
innheimtumanni, Njálsgötu 23,
sem margir lesendur munu
kannast við. Hann hefir um
skeið annazt innheimtustörf fyr
ir HEILSUVERND og fyrir
NLFf og innt þetta erfiða og
vanþakkláta starf af hendi með
alveg sérstakri lipurð og kost-
gæfni. Auk þess hefir hann selt
HEILSUVERND og bækur
NLFf í Reykjavik og Hafnar-
firði og orðið mikið ágengt.
Hefir enginn einn maður komið
ritinu í hendur eins margra og hann. NLFÍ stendur í mikilli þakkar-
skuld við Jón, og er þess óskandi, að það fái að njóta starfskrafta
hans sem lengst.
HEILSUVERND beinir þeim tilmælum til lesenda sinna og vel-
unnara, að þeir geri afgreiðslunni aðvart, ef þeir vita af mönnum,
sem vildu taka að sér að selja bækur og rit NLFÍ. Verða greidd
full sölulaun, eða 20% af útsöluverði bókanna.
Jón Halldórsson