Heilsuvernd - 01.03.1950, Side 37
HEILSUVERND
29
AÐALFUNDIR FÉLAGANNA.
Náttúrulœkningafélag Reykjavíkur (NLFR) hélt aðalfund sinn
fimmtudaginn 16. marz í Guðspekifélagshúsinu. Formaður, Björn L.
Jónsson, tilnefndi sem fundarstjóra Ágúst Sæmundsson og flutti
síðan ítarlega skýrslu um störf félagsins á árinu 1949. Þá las Hjörtur
Hansson reikninga félagsins ásamt athugasemdum endurskoðenda,
svörum við þeim og tillögum fjárhagsnefndar. Eftir nokkrar um-
ræður voru tillögurnar samþykktar einróma og þar með reikning-
arnir.
Á félagaskrá NLFR voru um áramótin 1336 félagar, þar af 2
heiðursfélagar (Jónas Kristjánsson og Are Waerland) og 112 ævi-
félagar. Af ársfélögum eru 119 búsettir utan Reykjavíkur og Hafn-
arfjarðar.
Kosningar fóru þannig, að Björn L. Jónsson, veðurfræðingur, var
endurkjörinn formaður, og ennfremur hlutu þessir kosningu: Ágúst
Sæmundsson, framkvæmdastjóri, Björgólfur Stefánsson, kaupm.,
Marteinn Skaftfells, kennari, og frú Steinunn Magnúsdóttir. Endur-
skoðendur voru kosnir Björn Svanbergsson, gjaldkeri, og Dagbjart-
ur Gíslason, loftskeytamaður. Ennfremur var kosið í fastanefndir.
AÖalfundur Náttúrulœkningafélags Akureyrar (NLFA) var hald-
inn 19. febrúar. 1 því voru um áramótin 102 félagar, þar af 5 ævi-
félagar.
1 stjórn voru kosin: Formaður Barði Brynjólfsson, málárameistari,
og meðstjórnendur frk. Anna Laxdal, frú Ingibjörg Halldórsdóttir,
Guðmundur Pétursson, útgerðarmaður, og Páll Gunnarsson, kenn-
ari.
Aöalfundur Náttúrulækningafélags SiglufjarÖar ÍNLFSGJ var
haldinn 14. marz 1950. — Fráfarandi formaður, Sigurður Gunn-
laugsson, hafnargjaldkeri, gaf skýrslu um störf félagsins árið 1949.
Haldnir höfðu verið tveir fundir. Félagar í árslok voru 85, og eignir
kr. 3.022,01. — Á fundinum var sýnd kvikmynd af blóðinu, og lesinn
gamanþáttur.
Fráfarandi formaður baðst undan endurksningu, og var Kristmar
Ólafsson kosinn formaður Með honum voru kosin í stjórn: Auður
Jónsdóttir (ritari), Jón Jóhannsson (gjaldkeri), Ása Bjarnadóttir og
Jónas Jónasson. — Á fundinum gengu í félagið 17 manns, sem telur
því nú 102 félaga.
í næsta hefti verður sagt frá aðalfundum hinna félaganna.