Heilsuvernd - 01.12.1952, Page 8
100
HEILSUVERND
Afleiðingum nútíma gervifæðu er prýðilega lýst í bréfi,
sem 14 ára stúlka skrifar föður sínum heim úr skólanum
og ég leyfi mér að taka upp hér, en það hefir verið birt áður.
„Við vorum skoðuð um daginn. Eg er 162,5 cm og 56 kg. Sjónin
ekki mjög góð, tennur ágætar. Prýðilegt heilsufar hjá mér. Þó
eru stelpurnar N.N. og N.N. (stöllur liennar) alltaf í rúminu.
Þær eru með alla sjúkdóma, sem nöfnum tjáir að nefna, t. d.
kvef, magapínu ásamt uppsölu og öllu tilheyrandi, beinkröm,
blöðrubólgu, bólgnum eitlum, botnlangabólgu, bronkítis, með
innfallið brjóst o. s. frv., og svo auðvitað lystarleysi og matvendni
fram úr hófi. Merkilegt að nokkur skuli vera hraustur nálægt
öllum þessum ósköpum. Svo koma auðvitað nýjar sjúkdómatil-
gátur á hverjum degi. Þær taka lýsi og járnmeðul og svo sjálfsagt
3—4 tegundir af dropum og pillum, og það oft á dag“.
Ég segi eins og faðir stúlkunnar, „bragð er að þá barnið
finnur“.
Ég þakka stúlkunni fyrir þetta ágæta bréf og óska henni
góðrar heilsu um langa og bjarta framtið.
Ég las með óhug það, sem einn ágætur læknir skrifar.
Hann er í meðalstóru læknishéraði og segir svo:
„Teknir 33 botnlangar, þar af 4 úr utanhéraðsfólki. Nær helm-
ingur eða 15 voru teknir í kasti, og voru þar af 3 sprungnir, en
2 með drepi, (annar sjúklingurinn barn 5 ára). Tveir sjúklingar
frá öðru héraði með sprunginn botnlanga, og var annar 8 ára
drengur; fengu báðir streptomycin. Langversta tilfellið var þó
4 ára gamall drengur, sem var fluttur um 40 km veg með sprung-
inn botnlanga inni á milli smáþarma og mjög mikla' lífhimnu-
bólgu“.
Segir síðan frá því, hvernig tókst að barga lífi drengs-
ins eftir langa og erfiða viðureign.
Gott er að eiga ágæta skurðlækna. Þeir væru þó ennþá
snjallari, ef þeir gætu kennt sveitungum sínum að búa svo
að börnum sínum, að þau fengju ekki botnlangabólgu.
Ég verð að segja, að illa horfir fyrir þjóð með slíka
innvortis kvilla tíða. Því að þar sem mikið er um botn-
langabólgu, þar er jafnframt mikið um magasár, sem aldrei
gróa. Það eru of sein vinnubrögð að lækna, þegar sjúkl-