Heilsuvernd - 01.12.1952, Qupperneq 11
HEILSUVERND
Brynjúlfur Dagsson,
læknir:
Dm tóbiih
og tóbohsnautn
Erindi flutt í ríkisútvarpið
27. júní 1952.
(Niðurlag).
Andardráttaiiíffærin verða einkum fyrir áhrifum af
tjörunni og sótinu í reyknum. Þó má geta þess hér, að
nefhol neftóbaksmanna eru blóðhlaupin og sollin; þeir
spilla mjög þefnæmi sínu og neföndun. — Reykurinn ertir
slímhúðina og veldur viðvarandi bólgu allt frá nösum og
kverkum niður í lungnablöðrur. Tóbaksmönnum er mun
hættara við kvefi, kverkaskit og öðru þvílíku, en hinum,
sem ekki reykja. Raddböndin bólgna, og röddin spillist;
er slíkt athugandi fyrir söngmenn. Og enn fleira kemur
til greina, t. d. hinn þráláti og hvimleiði hósti, sem oft
þjáir reykingamanninn, einkum þá, sem reykja mikið af
sígarettum. En þess eins skal að auki getið, að á síðari
árum hafa komið fram ákveðnar raddir um það, eins og
ég gat um í upphafi, að sígarettureykingar muni að öllum
líkindum vera meginorsök fjölgandi tilfella af lungna-
krabba og krabbameini í barkakýli. T. d. hefir tala þeirra,
er árlega deyja úr lungnakrabba í Englandi og Wales,
hækkað á síðustu 25 árum úr 612 í 9287, þ. e. rúmlega
fimmtánfaldazt. Telja þeir læknar, sem aðallega hafa rann-