Heilsuvernd - 01.12.1952, Blaðsíða 15

Heilsuvernd - 01.12.1952, Blaðsíða 15
HEILSUVERND 107 um víða veröld, virðist vera ein af þessum mannlegu ráð- gátum, sem svo erfitt er að leysa. Hvort sem það er nú heldur veikleiki holdsins eða .andans eða hvorttveggja, virðist það helzt vera einskonar flótti — úr öskunni í eldinn — frá erfiðleikum og basli daglega lífsins, eins og einn læknir hefir komizt að orði, sem nýlega hefir um þetta ritað. Tóbaksmenn skiptast yfirleitt í tvo flokka um skýr- ingar. Sumir þykjast ekki geta án tóbaks verið til að „róa og styrkja taugar sínar og skerpa hugsunina í amstri dægr- anna“. Aðrir eru ekki eins hátíðlegir, — segja blátt áfram, að tóbaksnotkun sé þægileg dægrastytting og ánægjuauki. En er það rétt?, spyr J. Mibashan, læknir í Höfðaborg í Suður-Afríku. Og svar hans er þetta: „Ánægja um tvítugt, ómótstæðilegur ávani um þrítugt, kvalafuil ástríða um fertugt (sbr. það, sem áður segir um tóbakskarlana fyrr- um); hjarta- og æðaeitrun um fimmtugt; lungnaþan og asthma, hjartakvöl, kveisa og e. t. v. lungnakrabbi milli fimmtugs og sextugs; sérstök athugasemd á dánarvottorð- inu eftir sextugt eða síðar, ef menn lifa svo lengi“. Þetta er ánægjan af tóbakinu, segir hann, og á þá við sígarettu- reykingarnar fyrst og fremst. í þessu sambandi er rétt að geta þess, að örfáir menn eru ótrúlegir þolskrokkar gagnvart tóbaki. En það eru ekki haldgóð rök að vitna í slíka örfáa einstaklinga. Það er árangurinn af athugun á öllum fjöldanum, er gefur þær niðurstöður, sem mestu máli skipta og mark er á takandi. Um lækningu á óhóflegri tóbaksnotkun er fátt að segja. Ýmislegt hefir verið reynt: Munnskolvökvar, munngúm, snuðvindlar eða sígarettur o. fl„ en flest reynzt gagnslítið. Skynsamlegar ráðleggingar og fortölur, með athugasemd um kostnaðarhliðina, sem ekki vannst tími til að minnast á, en er þó enganveginn þýðingarlítil, virðist oft reynast bezt. Oftast er bezt að hætta skyndilega og alveg. Bera ekki tóbak á sér og hafa það ekki á heimili sínu. Þetta er til- tölulega auðvelt, sé vilji fyrir hendi, enda er tóbaksnotkun öllu fremur vani en ástríða, og um hungurkvalir er sjaldan

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.